Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur í dag eins og svo oft áður saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag, að þeirra mati.


  1. Þjóðernis­hreyfingin í Tyrklandi hefur hafnað stjórnar­samstarfi við stjórnar­flokkinn AK og neitar að verja minnihluta­stjórn flokksins. Áfram er því pólitísk krísa í Tyrklandi eftir kosningarnar þar í júní.

  2. Tölvuárás á ríkis­skattstjóra í Banda­ríkjunum var mun umfangs­meiri en áður hafði verið greint frá. Í árásinni náðust upplýsingar um 334 þúsund skatt­greiðendur.

  3. Búið er að bera kennsl á mann sem grunaður er um að hafa borið ábyrgð á sprengju­árásinni í Bangkok í gær. Sprengjan varð að minnsta kosti 21 að bana.

  4. Wall Street Journal greinir frá því að nú reyni stjórn­völd í Þýska­landi hvað þau geta að koma í veg fyrir uppreisn meðal þingmanna, en tveir dagar eru þar til þingið kýs um neyðarlána­samkomulag við Grikkland.

  5. Shell hefur fengið leyfi til þess að bora eftir olíu og gasi á norður­skautinu.

  6. Yfir 300 tölvu­póstar sem Hillary Clinton sendi úr einka­pósti sínum á meðan hún var utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna eru nú til skoðunar yfirvalda, sem munu kanna hvort í þeim hafi verið trúnaðar­upplýsingar.

  7. Jeff Bezos, forstjóri Amazon, hefur svarað frétta­flutningi New York Times um vinnu­menninguna innan stór­fyrir­tækisins. Hann segir frétta­skýring­arnar ekki endur­spegla þann vinnustað sem hann þekkir.

  8. Íran vill vinna að friði í Miðausturlöndum og vill eiga samstarf við önnur ríki á svæðinu um frið. Þetta segir Masumeh Ebtekar, vara­forseti Írans, í viðtali við BBC.

  9. Búið er að komast að flaki flugvélar sem hrapaði í Indónesíu um helgina. Stjórn­völd segja vélina gjörónýta og enginn hafi komist lífs af í slysinu.

  10. Brasilíska fyrir­tækið Petrobras gæti þurft að borga allt að 1,6 milljarða dollara í sekt vegna spillingar­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár