Stofna stærsta verndarsvæði Atlantshafsins

Á eyjum í miðju sunn­an­verðu Atl­ants­hafi, mitt á milli Suður-Ameríku og Suður-Afríku, er dýra­lífið svo ein­stakt að ákveðið var að friða haf­svæðið umhverfis þær. Innan þess eru veiðar og hvers konar vinnsla nátt­úru­auð­linda bönnuð.

Tristan da Cunha-eyjaklasinn er á hjara veraldar.
Tristan da Cunha-eyja­klas­inn er á hjara ver­aldar. Mynd: Wikipedia

Haf­svæðið umhverfis afskekkt­ustu, byggðu eyjar heims verður gert að friðlandi. Í því má engin dýr veiða – hvorki í lofti né legi – og öll vinnsla nátt­úru­auð­linda innan þess verður bönnuð. Eyja­klas­inn Tristan da Cunha í Suður-Atl­ants­hafi, er breskt yfir­ráða­svæði og hafið við eyj­arnar sem á að friða er þrisvar sinnum stærra en Bretland og fjórða stærsta vernd­ar­svæði í hafi á jörðu, það stærsta í Atl­ants­haf­inu.

Eyjarnar eru nokkurn veg­inn miðja vegu milli Suður-Ameríku og Suður-Afríku. Til að kom­ast þangað þarf að leggja á sig sjö daga báts­ferð.

Lífríkið á og við eyja­kla­s­ann er stór­brotið. Þar má finna skjald­bökur, albatrosa, seli, hákarla og hvali, svo nokkur dæmi séu tekin. Á þessum slóðum eru ætis- og varp­stöðvar allra þess­ara dýra og margra ann­arra.

Hvata­menn frið­un­ar­innar eru sann­færðir um að vernd­unin eigi eftir að hafa jákvæð áhrif á humar­veiðar eyja­skeggja sem eru smáar í sniðum og stund­aðar utan hins frið­aða svæði.

Svæðið við Tristan da Cunha verður hluti af Bláa belt­inu, vernd­ar­verk­efni á vegum breskra yfir­valda sem nær nú yfir um 7 millj­ónir fer­kíló­metra af vist­kerfum hafs­ins.

Á einni eyj­unni er virkt eld­fjall. Á vet­urna er snjór á tind­inum og albatrosar verpa í hlíðum þess. Á og við strendur eyj­anna halda svo selir og mör­gæsir til og undan þeim eru risa­vaxnir þara­skógar á hafs­botni. Á þess­ari eyju er aðeins að finna eina trjá­teg­und, phylica arborea, sem ein­fald­lega er kölluð eyj­ar­tréð.

Á eyj­unum er aðeins ein byggð, lítið þorp þar sem allir eyja­skeggjar, um 245 tals­ins, búa. Þorpið heitir Edinborg heims­haf­anna sjö og íbú­arnir eiga rætur að rekja ýmist til Skotlands, Banda­ríkj­anna, Hollands eða Ítalíu.

Sá sem fyrstu upp­götv­aði eyj­arnar að því er talið er var portú­galski land­könn­uð­ur­inn Tristão da Cunha. Það var árið 1506 en búseta hófst ekki fyrr en árið 1816 þegar breskt her­lið var flutt þangað til að gæta þess að Frakkar björg­uðu ekki Napóleon Bónap­arte keis­ara úr útlegð á eyj­unni Sankti Helenu sem var þó í yfir 2.000 kíló­metra fjar­lægð.

Herliðið snéri ekki aftur heim, að minnsta kosti ekki allir sem í því voru. Það voru svo afkom­endur þeirra fyrstir fædd­ust þarna á hjara ver­aldar. Þeir lifðu á fisk- og humar­veiðum en rækt­uðu einnig kart­öflur og áttu nokkrar kindur.

En þó að fáir menn búi þá Tritsan da Cunha er nátt­úran ein­stak­lega fjöl­skrúðug og sjó­fuglar halda þar til í tug millj­óna vís.

Í sjónum umhverfis eyj­arnar synda svo hákarlar af teg­und sem eru í gríð­ar­legri útrým­ing­ar­hættu en þeir kunna vel við sig í þara­skóg­inum þar sem þeir ala upp ung­viði sitt. „Vist­kerfin á þessum stað er hvergi ann­ars staðar að finna í heim­inum,“ hefur National Geographic eftir Enric Sala sem rann­sakað hefur eyj­arnar.

Ljóst þykir af gervi­tungla­myndum að fiski­skip hafa lagt leið sína á þetta við­kvæma svæði en núna þegar það er komið undir hatt Bláa belt­is­ins verður hægt að setja meira fjár­magn í strand­gæslu og vernd.

Um 8 pró­sent af heims­höf­unum njóta ein­hvers konar verndar. Aðeins um 2,6 pró­sent þeirra eru alfarið friðuð gegn veiðum. Í nýrri rann­sókn sem birt var í vís­inda­tíma­rit­inu Proceedings of the National Academy of Science, er sýnt fram á að verndun efli fisk­veiðar. Höfundar rann­sókn­ar­innar segja að ef svæði þar sem veiðar eru bann­aðar yrðu stækkuð um aðeins 5 pró­sent myndi það auka fisk­afla á heims­vísu um að minnsta kosti 20 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár