Neil Young ekki ánægður með að Donald Trump hafi notað Rockin´ in the Free World

Kanadíski tónlistar­maðurinn Neil Young, er verulega ósáttur með að Donald Trump, sem tilkynnti um framboð sitt sem forseta­efni repúblíkana í gær, hafi notað lag Young, Rockin´ in the Free World, við kynninguna. Eftir að dóttir Trump hafði kynnt föður sinn inn hljómaði lagið á miklum hljóð­styrk, en Trump telur sig mikinn boðbera frelsis. Trump fékk hins vegar ekki leyfi hjá Young fyrir að nota lagið og umboðs­maður hans, Elliot Roberts, sagði við Time magazine að tónlistar­maðurinn væri þar að auki ósammála pólitískum skoðunum Trump. Hann styrður framboð Bernie Sanders, sem sækist eftir útnefningu sem forseta­efni demókrata, opinber­lega.

Donald Trump, sem er heims­frægur milljarðamæringur, tilkynnti um framboð sitt til að verða forseta­fram­bjóðandi Repúblikana­flokksins klukkan þrjú í gær á fundi í Trump-turninum í New York. .Hann eyddi miklu púðri í að tala um samkeppni Banda­ríkjanna við Kína og Mexíkó og ógnina sem Banda­ríkjunum stafi af Íslamska ríkinu.

Ræða Trump hefur verið mikið í umræðunni frá því að hann tilkynnti um framboðið, enda skoðanir hans vægast sagt ekki allra.

https://www.youtube.com/watch?v=f0UB06v7yLY

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár