Halli ríkissjóðs 2021 nú áætlaður 320 milljarðar króna

Breyt­inga­til­lögur meiri­hluta fjár­laga­nefndar hafa verið lagðar fram á Alþingi. Efna­hags­staðan hefur versnað frá því að fjár­lög voru kynnt 1. októ­ber, sem þýðir meiri fjár­út­lát rík­is­sjóðs en áætlað var.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra með fjárlagafrumvarp ársins 2021 í höndunum. Meirihluti fjárlaganefndar bætir 55,3 milljörðum króna við útgjöld ríkissjóðs, með breytingatillögum sem lagðar hafa verið fram.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra með fjár­laga­frum­varp árs­ins 2021 í hönd­unum. Meiri­hluti fjár­laga­nefndar bætir 55,3 millj­örðum króna við útgjöld rík­is­sjóðs, með breyt­inga­til­lögum sem lagðar hafa verið fram. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt þeim breyt­ing­ar­til­lögum sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar hefur lagt fram á Alþingi verður afkoma rík­is­sjóðs árið 2021 nei­kvæð um tæp­lega 320 millj­arða króna, eða 10,4 af vergri lands­fram­leiðslu. Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans, sem birt voru á vef Alþingis í kvöld.

Þegar fjár­lög voru kynnt á fyrsta degi októ­ber­mán­aðar var gert ráð fyrir 264 millj­arða króna halla á næsta ári. Í nefnd­ar­á­lit­inu segir að frá þeim tíma sem for­sendur frum­varpsin voru ljósar hafi efna­hags­fram­vindan reynst heldur lak­ari en gert var ráð fyrir. Því hefur enn verið bætt í efna­hags­að­gerðir af hálfu stjórn­valda og frek­ari mót­væg­is­að­gerðir kynntar, sem kalla á aukin fjár­út­lát.

Samtals er því gerð til­laga um 55,3 millj­arða króna hækkun á útgjöldum rík­is­sjóðs frá því sem áætlað var í fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt var 1. októ­ber. „Þyngst vega 19,8 millj­arðar kr. vegna við­spyrnu­styrkja og 6 millj­arðar kr. vegna fram­leng­ingar á hluta­bóta­leið,“ segir í umfjöllun nefnd­ar­innar.

Með þessum útgjöldum inni­földum er áætlað að útgjöld rík­is­sjóðs verði 180 millj­örðum króna hærri árið 2021 en þau voru á fjár­lögum árs­ins 2020. Hallinn er sem áður segir, áætl­aður 320 millj­arðar króna.

Sveitarfélög fá lítið fyrir sinn snúð

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans er vikið að kröfum full­trúa sveit­ar­fé­laga sem komið hafa fram í umræð­unni að und­an­förnu, um auk­inn fjár­stuðn­ing úr rík­is­sjóði til þess að mæta áhrifum far­ald­urs­ins. Meiri­hluti nefnd­ar­innar segir að það þurfi að hafa í huga að „upp­bygg­ing og fjár­mögnun sveit­ar­stjórn­ar­stigs­ins er afar frá­brugðin því sem tíðkast ann­ars staðar á Norð­ur­löndum og víða um Evrópu.“


Því gefi það vill­andi mynd að bera saman stuðn­ings rík­is­sjóðs hér á landi við stuðn­ing ann­arra landa sem búa við gjör­ó­lík kerfi.

„Sveit­ar­fé­lögin eru fjár­hags­lega sjálf­stæð og sam­an­borið við önnur lönd er stærri hluti tekna þeirra hér á landi í formi lög­bund­inna tekju­stofna en í formi beinna fram­laga úr rík­is­sjóði. Slíkt fyr­ir­komu­lag, þar sem sveit­ar­fé­lögin eru meira og minna háð lög­bundnum fram­lögum, þurfa að stunda sjálf­stæða fjár­mála­stjórn og búa í hag­inn þegar efna­hags­lífið er í upp­gangi til að geta staðið af sér nið­ur­sveiflu í hag­kerf­inu,“ segir meiri­hluti fjár­laga­nefndar, sem nefnir að sveit­ar­fé­lögum sem reiði sig að miklu leyti á ferða­þjón­ustu hafi þegar verið veittur stuðn­ingur.

„Ríkið mun sitja eftir með skulda­bagga sem þyng­ist um 20% af VLF á milli áranna 2019 og 2021, en á hinn bóg­inn er gert ráð fyrir að skuldir sveit­ar­fé­laga hækki um tæp­lega 3% af VLF á sama tíma,“ segir meiri­hluti fjár­laga­nefndar einnig, um stöðu sveit­ar­fé­laga.

Um 140 milljónum meira til RÚV en áætlað var

Samkvæmt meiri­hluta­á­lit­inu er gerð ein breyt­ing­ar­til­laga varð­andi fjár­út­lát rík­is­sjóðs til fjöl­miðla, en hún er sú að gert er ráð fyrir 140 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lagi til Rík­is­út­varps­ins, sökum þess að tekju­á­ætlun af útvarps­gjaldi hefur verið upp­færð frá því sem miðað var við í frum­varp­inu.

Reikna má með því að breyt­ing­ar­til­lögur við fjár­lögin komi til umræðu á Alþingi strax á morgun, fimmtu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár