Grikkir og kröfuhafar ná saman

Samkomulag milli grískra stjórn­valda og kröfuhafa Grikk­lands um veitingu neyðar­láns náðist í nótt eftir langa fundar­setu. Eftir 23 klukku­stunda samninga­viðræður lágu skilmálar lánsins fyrir. Euclid Tsakalotos, fjármála­ráðherra Grikk­lands, sagði við fjölmiðla eftir fundinn að aðeins ætti eftir að ganga frá tveimur til þremur atriðum. Að öðru leyti liggi samningur um þriðja neyðar­lánið til Grikk­lands fyrir. Samkvæmt umfjöllun The Guardian er búist við að Grikkland fái nýtt 86 milljarða evra lán, en það hefur ekki verið staðfest endanlega.

Lántakan, og þau ströngu skilyrði sem henni fylgja, verða tekin fyrir á gríska þinginu á morgun og fimmtudag, samkvæmt áætlun. Á föstudag munu fjármála­ráðherrar evru­ríkjanna síðan yfirfara endanleg samnings­drög.


Mikilvægt er að Grikkjum sé veitt lánið fyrir 20. ágúst. Þá fellur 3,2 milljarða evra lána­greiðsla frá Seðla­banka Evrópu á gjalddaga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár