Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir merkilegustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag. Eins og venjulega kennir ýmissa grasa á listanum.


  1. Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn vill ekki skuld­binda sig nýjum neyðarlána­samningi við Grikki.

  2. Búið er að finna brak og ferða­tösku á frönsku eyjunni Réunion. Talið er næstum víst að brakið sé úr týndu flug­vélinni MH370, sem hvarf sporlaust í fyrra, en nú er talið ólíklegt að ferða­taskan sé einnig úr vélinni. Samt sem áður er þetta stærsta vísbendingin um afdrif vélarinnar.

  3. Fjármála­eftirlitið í Hong Kong hefur sektað japanska bankann Nomura um 600 þúsund dali fyrir að hafa falið skugga­miðlara (e. rogue trader).

  4. Samsung gerði mistök með Galaxy S6 símann sinn, en gögn kóreska fyrir­tækisins sýna að það gerði ekki ráð fyrir eftir­spurninni eftir Galaxy S6 Edge.

  5. Jeremy Clarkson og félagar úr Top Gear hafa samið um gerð nýs sjónvarps­þáttar við Amazon. BBC ætlar að halda áfram að gera Top Gear þætti.

  6. Shell ætlar að reka 6.500 starfs­menn og selja eignir fyrir 20 milljarða dala, en nýjasta ársfjórðungs­uppgjör olíu­fyrir­tækisins sýnir að lækkandi olíuverð hefur haft mjög slæm áhrif á fjármálin.

  7. Hagvöxtur á Spáni var eitt prósent á öðrum ársfjórðungi, og miðað við sama ársfjórðung í fyrra var vöxturinn 3,1 prósent. Þetta eru bestu tölurnar síðan kreppan hófst árið 2008.

  8. Fólk í Zimbabwe skilur ekki hvers vegna Vesturlanda­búar eru svona miður sín yfir dauða ljónsins Cecil, en stjórn­völd hafa farið fram á að tann­læknirinn bandaríski sem drap ljónið verði fram­seldur og látinn svara til saka.

  9. Tyrkir eru að leika „hættu­legan leik“ og gætu verið að stofna til stríðs á tveimur vígstöðum, að mati sérfræðinga.

  10. Barack Obama Bandaríkja­forseti hefur fyrir­skipað verk­fræðingum að búa til hrað­virkustu tölvu heims. Hann vill að hún verði þrjátíu sinnum hraðari en hröðustu tölvurnar eru í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár