Ólögleg lyf útbreiddari í frjálsum íþróttum en áður var talið

Notkun ólöglegra lyfja til þess að bæta árangur er mun útbreiddari í frjálsum íþróttum en áður var talið, en samkvæmt rannsókn sem unnin var á fimm þúsund einstaklingum í frjálsum íþróttum var einn af hverjum sjö með ólögleg lyf í blóðinu. Frá þessu er greint í The Sunday Times í dag, en þýska sjónvarps­stöðin ARD/WRD hefur gögn um rann­sóknina einnig undir höndum og hefur greint frá helstu niður­stöðum.

Í frétt Sunday Times af málinu segir að tveir af fremstu sérfræðingum heims í ólöglegri lyfja­notkun hafi verið fengnir til að fara yfir gögnin og sannreyna niður­stöðurnar, þeir Robin Parisotto og Michael Ashenden. Alþjóða frjáls­íþrótta­sambandið, IAAF, hefur gögnin til skoðunar og rann­sóknar, og er talið að þeim hafi verið lekið þaðan til fjölmiðla. Gögnin þykja mikið áfall fyrir frjálsar íþróttir í ljósi þess hversu útbreidd inntaka á ólöglegum lyfjum virðist vera innan frjáls­íþrótta­hreyfingarinnar.

Meðal þess sem Parisotto og Ashenden telja sig geta ráðið af gögnunum er að 146 verðlaun sem unnið var til í lang­hlaupum og göngu­greinum á ólympíu­leikum og heims­meistara­mótum, á árunum 2001 til og með 2012, hafi farið til fólks sem hafi verið að nota ólögleg lyf. Þetta er þriðjungur allra verðlauna í þessum greinum, og af þeim eru 55 gull­verðlaun. Enginn þessara 146 verðlauna­hafa hefur verið sviptur sínum verð­launum.

Fram kemur í gögnunum sem vísað er til að ekkert óeðlilegt, eða sem bendir til inntöku ólöglegra lyfja, hafi fundist í blóði sprett­hlauparans Usian Bolt frá Jamaíka, sem er heims­methafi í 100 og 200 metra hlaupi.


World anti-doping body 'very alarmed' by new scandal in athletics http://t.co/Om439paS0i #WADA #doping


— Agence France-Presse (@AFP) August 2, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár