Segir viðbrögð stjórnarliða við skýrslubeiðni sýna grímulausa sérhagsmunagæslu

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, segir við­brögð stjórn­ar­liða við skýrslu­beiðni um sam­an­burð á greiðslum fyrir veiði­rétt í Namibíu og á Íslandi sýna að hún snerti „ein­hvern auman blett hjá rík­is­stjórn­inni.“

Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar.
Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Af við­brögð­unum að dæma er aug­ljóst að þessi skýrslu­beiðni snerti ein­hvern auman blett hjá rík­is­stjórn­inni því umræddir stjórn­ar­þing­menn mega greini­lega ekki til þess hugsa að almenn­ingur sé upp­lýstur um þetta ein­falda mál. Hér er sér­hags­muna­gæslan alger­lega grímu­laus. Kemur í sjálfu sér ekki á óvart þegar litið er á hvaða stjórn­mála­flokkar hljóta hæstu styrk­ina frá sjáv­ar­út­veg­inum.“ Þetta segir Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, í stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann deilir frétt um við­brögð Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við beiðni 18 þing­manna um skýrslu um sam­an­burð á greiðslum Sam­herja fyrir veiði­rétt í Namibíu og á Íslandi.

Þegar skýrslu­beiðnin var rædd á Alþingi í morgun sagði Bjarni að hún væri „auð­vitað ekk­ert annað heldur en ákveðið lýð­skrum sem að fer fram í kjöl­farið á alvar­legu máli sem upp­lýst hefur verið um og er til skoð­unar og rann­sóknar. Hér er þyrlað upp póli­tísku mold­viðri útaf ágrein­ings­efni sem hefur verið um veiði­gjöld á Íslandi og því haldið fram að útgerðin skammti sér veiði­gjöld eftir því að hún telur að sé hæfi­legt hverju sinni.“

Óli Björn Kárason og Birgir Ármanns­son, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýndu einnig skýrslu­beiðn­ina.

Visar í styrki sjávarútvegsfyrirtækja til stjórnarflokka

Þor­steinn segir í stöðu­upp­færsl­unni að nokkrir stjórn­ar­þing­menn hefðu farið á lím­ing­unum yfir þess­ari ein­földu skýrslu­beiðni. „Spurn­ingin er hvaða hags­muna þessir stjórn­ar­þing­menn­irnir eru að gæta með þessu fram­ferði sínu? Hér er beðið um ein­faldan sam­an­burð sem almenn­ingur hefur fullan rétt á að fá að vita eftir frétta­flutn­ing af Sam­herj­a­skjöl­unum. Þar kemur m.a. fram að greiðslur félags­ins fyrir veiði­heim­ildir í Namibíu séu tvö­falt hærri en hér á landi. Gott væri að fá skýr svör um hvort það sé rétt.

Af við­brögð­unum að dæma er aug­ljóst að þessi skýrslu­beiðni snerti ein­hvern auman blett hjá rík­is­stjórn­inni því umræddir stjórn­ar­þing­menn mega greini­lega ekki til þess hugsa að almenn­ingur sé upp­lýstur um þetta ein­falda mál. Hér er sér­hags­muna­gæslan alger­lega grímu­laus. Kemur í sjálfu sér ekki á óvart þegar litið er á hvaða stjórn­mála­flokkar hljóta hæstu styrk­ina frá sjáv­ar­út­veg­inum.“

Þar vísar Þor­steinn í að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír, Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokkur, fengu alls um ell­efu millj­ónir króna í styrki frá lög­að­ilum í sjáv­ar­út­vegi á árinu 2018. Um er að ræða útgerð­ar­fyr­ir­tæki, fisk­vinnsl­ur, fyr­ir­tæki sem starfa í fisk­eldi og eign­ar­halds­fé­lög í eigu stórra eig­enda útgerð­ar­fyr­ir­tækja.

Endurgjald háð pólitísku mati

Fyrsti flutn­ings­maður skýrslu­beiðn­innar er Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ur, for­maður Við­reisn­ar, en með henni eru sautján þing­menn úr Við­reisn, Píröt­um, Sam­fylk­ing­unni og þing­manni utan flokka.

Í grein­ar­gerð með skýrslu­beiðn­inni segir að ákvörðun veiði­gjalda hafi lengi verið ágrein­ings­mál í íslenskum stjórn­mál­um. Ekki hafi verið meiri­hluti fyrir því að láta gjald fyrir afnot af sam­eig­in­legri auð­lind lands­manna ráð­ast á mark­aði þar sem til­tek­inn hluti veiði­heim­ilda yrði ár hvert boð­inn til sölu til ákveð­ins tíma. Þess í stað hafi gjaldið verið ákveðið með lög­um, sem sætt hafa reglu­legum breyt­ing­um.

„End­ur­gjald fyrir einka­af­not af sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar hefur þannig verið háð póli­tísku mati. Það póli­tíska mat hefur aftur í veru­legum atriðum byggst á áliti þeirra hags­muna­að­ila í útgerð sem eru full­trúar þeirra fyr­ir­tækja sem gjaldið greiða. Með öðrum orðum hafa verið bein tengsl á milli þess sem útgerð­irnar hafa talið sig geta greitt og þess sem meiri­hluti á Alþingi hverju sinni hefur talið að þær gætu greitt,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þær upp­lýs­ingar sem fram hafi komið í svoköll­uðum Sam­herj­a­skjöl­um, sem RÚV fjall­aði um í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik, gefi til­efni til að bera saman hvað eitt af stærstu og áhrifa­rík­ustu fyr­ir­tækj­unum á þessu sviði sé reiðu­búið til að greiða fyrir veiði­rétt á Íslandi og í Namib­íu. Eftir yfir­lýs­ingar ráð­herra bæði í fjöl­miðlum og á þingi sé afar ólík­legt að rík­is­stjórnin hafi frum­kvæði að því að kanna þennan mik­il­væga þátt máls­ins til hlít­ar.

Samanburðarathugun unnin af óháðum aðila

Sam­an­burður af þessu tagi á, sam­kvæmt flutn­ings­mönnum beiðn­inn­ar, að geta stuðlað að mál­efna­legri umræðu um það mat sem ákvörðun veiði­gjalda bygg­ist á.

„Í Sam­herj­a­skjöl­unum kemur fram að greiðsla fyrir veiði­rétt í Namibíu hefur byggst á beinum greiðslum fyrir veiði­rétt og sér­stökum greiðslum til þeirra sem ráðið hafa mestu um úthlutun veiði­rétt­ar­ins.“

Að mati skýrslu­beið­enda færi best á því að sam­an­burð­ar­at­hug­unin verði unnin af óháðum aðila. „Rétt þykir að þeir óháðu aðilar taki heild­ar­fjár­hæð beggja þess­ara þátta með í sam­an­burð­in­um. Einnig telja skýrslu­beið­endur æski­legt að sam­ráð verði haft við þing­flokka um þá óháðu aðila sem fengnir verða í þessa þýð­ing­ar­miklu vinn­u.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár