Stærstu sjávarútvegsfyrirtækin styrktu ríkisstjórnarflokkanna

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír fengu allir hámarks­styrki frá ýmsum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í fyrra. Um helm­ingur styrkj­anna fyr­ir­tækja úr þeim geira til rík­is­stjórn­ar­flokka fór til Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír fengu alls um ell­efu millj­ónir króna í styrki frá lög­að­ilum í sjáv­ar­út­vegi á árinu 2018. Um er að ræða útgerð­ar­fyr­ir­tæki, fisk­vinnslur, fyr­ir­tæki sem starfa í fisk­eldi og eign­ar­halds­fé­lög í eigu stórra eig­enda útgerð­ar­fyr­ir­tækja.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í útdráttum úr árs­reikn­ingum Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna sem birtir voru á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar í gær.

[links]Mest fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn frá slíkum fyr­ir­tækjum, eða tæp­lega 5,3 millj­ónir króna. Það þýðir að helm­ingur þess fjár­magns sem greiddur var frá fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi til rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja fór til Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Af þeim 20 lög­að­ilum sem gáfu flokknum lög­bund­inn hámarks­styrk, 400 þús­und krónur, komu níu úr sjáv­ar­út­vegs­geir­anum. Framlög þeirra fyr­ir­tækja til Sjálf­stæð­is­flokks­ins námu 24 pró­sent af öllum fram­lögum lög­að­ila, sem voru alls rúm­lega 22,3 millj­ónir króna.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk næst mest stjórn­ar­flokk­anna frá sjáv­ar­út­veg­inum, eða rúm­lega 3,8 millj­ónir króna. Af þeim sjö lög­að­ilum sem gáfu flokknum 400 þús­und krónur voru sex úr sjáv­ar­út­vegi. Alls námu fram­lög lög­að­ila til Fram­sóknar 9,5 millj­ónum króna í fyrra og því voru styrkir úr sjáv­ar­út­vegi, eða 40 pró­sent allra styrkja frá lög­að­ilum.

Vinstri græn fengu alls tæp­lega 1,9 millj­ónir króna frá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum og fjórir af þeim fimm lög­að­ilum sem gáfu flokknum 400 þús­und króna fram­lag komu úr þeim geira. Alls voru fram­lög lög­að­ila til Vinstri grænna rúm­lega 3,3 millj­ónir króna og af þeirri upp­hæð kom tæp­lega 56 pró­sent frá fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi.

Stærstu sjávarúrvegsfyrirtæki gáfu flestum

Af stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum lands­ins gaf Samherji öllum flokk­unum þremur í fyrra. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn fengu 400 þús­und krónur frá sjáv­ar­út­vegs­ris­anum og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 200 þús­und.

[adspot]Sam­herji ehf., á 7,1 pró­sent alls úthlut­aðs kvóta á Íslandi. Síld­ar­vinnslan heldur svo á 5,3 pró­sent allra afla­heim­ilda, en hún er í 44,6 pró­sent eigu Sam­herja auk þess sem Kald­bak­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. Síld­ar­vinnslan gaf bæði Framsókn og Vinstri grænum 400 þús­und krónur í fyrra.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Berg­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­sent kvót­ans en það er að öllu leyti í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar. Það félag gaf Sjálf­stæð­is­flokknum 400 þús­und krónur.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, sem á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið FISK-Seafood sem heldur á 5,34 pró­sent heild­ar­kvót­ans, gaf Fram­sókn­ar­flokknum 200 þús­und krónur en hinum tveimur rík­is­stjórn­ar­flokk­unum 400 þús­und krónur á árinu 2018. FISK á 32,9 pró­sent í Vinnslu­stöð­inni í Vest­manna­eyjum sem er með fimm pró­sent heild­ar­afla­hlut­deild. Vinnslu­stöðin gaf Sjálf­stæð­is­flokknum 400 þús­und krónur í fyrra.

Ísfélag Vest­manna­eyja gaf bæði Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki 400 þús­und krónur.

Framsókn fékk líka hámarks­fram­lag frá Skinney Þinganes, Eskju, Arn­ar­laxi, Ramma og Löxum-fisk­eldi.

Vinstri græn fengu 400 þús­und krónur frá HB Granda, sem í dag heitir Brim, auk þess sem Brim, sem í dag heitir Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, gaf þeim 200 þús­und krónur.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk líka 400 þús­und krónur frá HB Granda, Þorbirni, Hval, Gjögur og eign­ar­halds­fé­lag­inu Hlér ehf., sem er í eigu eins eig­anda Nesskipa.

Fá aðallega fjármuni frá ríkinu

Meg­in­þorri fjár­magns sem fer í rekstur stjórn­mála­flokka kemur hins vegar nú úr rík­is­sjóði. Árið 2018 var fyrsta árið í rekstri þeirra stjórn­mála­flokk­anna sem eiga full­trúa á þingi frá því að fram­lög til þeirra úr rík­­is­­sjóði voru hækkuð um 127 pró­­sent, að til­­lögu sex flokka sem sæti eiga á Alþingi. Fram­lög úr rík­­is­­sjóði til flokk­anna átta á þingi áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna í fyrra en urðu 648 millj­­­­­ónir króna eftir að sú ákvörðun var tek­in. Einu flokk­­­­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­­­­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

[adspot]Þegar kosið verður næst, árið 2021, munu flokk­­­arnir átta sem náðu inn á þing í haust­­­kosn­­­ing­unum 2017 verða búnir að fá alls úthlutað rúm­­­lega 2,8 millj­­­örðum króna úr rík­­­is­­­sjóði vegna áranna 2018-2021 til að standa straum af starf­­­semi sinn­i.

Tekjur Vinstri grænna voru alls 146,7 millj­ónir króna í fyrra. Að upp­i­­­stöðu komu þær tekjur úr rík­­is­­sjóði, eða 124,5 millj­­ónir króna. Það þýðir að 85 pró­­sent af tekjum flokks­ins komu úr sam­eig­in­­legum sjóð­­um.

Vinstri græn fengu 16,9 pró­­sent í síð­­­ustu kosn­­ingum og ell­efu þing­menn kjörna.

Rekstur Vinstri grænna kost­aði alls 112 millj­­ónir króna í fyrra og því skil­aði rekst­­ur­inn tölu­verðum hagn­aði eða alls 33,6 millj­ónum króna. Flokk­­ur­inn skuld­aði 7,4 millj­­ónir króna í lok síð­­asta árs og lækk­­uðu skuldir hans milli ára úr 37,5 millj­­ónum króna.

Tekjur Sjálf­stæð­is­flokks­ins voru alls 367,6 millj­ónir króna í fyrra en alls komu 180,7 millj­ónir úr rík­is­sjóði. Það þýðir að tæpur helm­ingur af tekjum flokks­ins komu úr sam­eig­in­­legum sjóð­­um. Tekjur flokks­ins juk­ust um 48,2 pró­sent frá árinu 2017 en þá voru þær 248,1 milljón króna.

Rekstur flokks­ins kost­aði alls 373,7 millj­­ónir króna í fyrra. Flokk­­ur­inn skuld­aði 430,9 millj­­ónir króna í lok síð­­asta árs og hækk­uðu skuldir hans milli ára úr 421,8 millj­­ónum króna.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tap­aði rúm­lega tveimur millj­ónum króna í fyrra, sam­kvæmt árs­reikn­ingi, en rík­is­fram­lög voru bróð­ur­partur tekna flokks­ins. Tæp­lega 80 millj­ónir komu til flokks­ins úr rík­is­sjóði, í sam­an­burði við 44 millj­ónir árið 2017. Heild­ar­tekjur flokks­ins námu 121 milljón í fyrra.

Auk rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hefur verið birtur útdráttur úr árs­reikn­ingi Við­reisnar, sem Kjarninn fjall­aði ítar­lega um á mið­viku­dag. Fjallað verður um árs­reikn­inga ann­arra flokka sem eiga sæti á þingi þegar útdrættir úr þeim verða birtir á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár