Gjaldtaka vegna fiskeldis dugar ekki fyrir kostnaði við bætta stjórnsýslu og eftirlit

Þeir fjár­munir sem rekstr­ar­að­ilar fisk­eldis eiga að greiða fyrir afnot af haf­svæðum í íslenskri lög­sögu á næsta ári eru minni en það sem rík­is­sjóður ætlar að setja í bætta stjórn­sýslu og eft­ir­lit með fisk­eldi.

Alls á að leggja 175 millj­ónir króna í að bæta stjórn­sýslu, eft­ir­lit og heil­brigðis­kröfur í fisk­eldi á næsta ári, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2020. Það er 41 milljón krónum minna en lög­fest gjald­taka á fisk­eldi á að skila í rík­is­sjóð á næsta ári, en hún á að skila tekjum upp á 134 millj­ónum króna á árinu 2020.

Því munu skatt­greið­endur greiða meira í aukna stjórn­sýslu og eft­ir­lit með fisk­eldi en rík­is­sjóður mun inn­heimta í gjöld af þeim sem stunda atvinnu­grein­ina og geta haft af henni arð­semi.

Eitt helsta áherslumálið

Í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu vegna fjár­laga­frum­varps­ins er til­greint að 175 milljón króna fram­lagið vegna fisk­eldis sé meðal ann­ars til þess að styrkja eft­ir­lit og stjórn­sýslu Mat­væla­stofn­unar með fisk­eldi.

Jafn­framt verði það nýtt til að setja á fót raf­ræna gátt sem ætluð er til að birta opin­ber­lega til­teknar upp­lýs­ingar um grein­ina en slíkar gáttir eru þekktar meðal ann­ars í Færeyjum og Noregi. „Auk þess má nefna að inn í þess­ari tölu er gert ráð fyrir auknu fjár­fram­lagi til Umhverf­is­sjóðs sjó­kvía­eldis en sjóð­ur­inn hefur það meg­in­mark­mið að lág­marka umhverf­is­á­hrif sjó­kvía­eldis.“

Um er að ræða eitt helsta áherslu­málið í nýbirtum fjár­laga­frum­varpi sem heyrir undir mál­efna­svið Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

134 milljónir vegna gjaldtöku

Alþingi sam­þykkti 19. júní síð­ast­lið­inn stjórn­ar­frum­varp Krist­jáns Þórs um gjald­töku vegna fisk­eldis. Frum­varpið fól einnig í sér að stofn­aður verði fisk­eld­is­sjóðir og var Fiski­stofu falist að ann­ast fram­kvæmd lag­anna.

Alls starf­rækja sjö rekstr­ar­að­ilar eldi á fiski í sjó­kvíum á Íslandi og leggst gjaldið á þá. Aðrir sem stunda fisk­eldi, t.d. á landi, eru und­an­þegnir gjald­inu. Til­gangur gjald­tök­unnar á að vera að tryggja rík­is­sjóði beint end­ur­gjald vegna nýt­ingar haf­svæða í íslenskri lög­sögu.

Þetta gjald á að skila alls 134 millj­ónum króna í rík­is­sjóð sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi.

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) lögð­ust gegn sam­þykkt frum­varps­ins í sumar. Í frétta­bréfi SFS í júní sagði Heiðrún Lind Mart­eins­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri SFS, frum­varpið þrengja veru­lega að rekstr­ar­skil­yrðum fisk­eld­is­fyr­ir­tækja og myndi hamla veru­lega þeirri upp­bygg­ingu sem nauð­syn­leg sé í atvinnu­grein­inni svo hún geti til fram­tíðar skapað góð störf og skilað tekjum til sam­fé­lags­ins. „Margir þýð­ing­ar­miklir agn­úar eru á frum­varp­inu og um áhrif þeirra fást engin svör, hvorki frá ráð­herra né þing­mönn­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár