Hætta á að lánin hækki þó íbúðaverð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Áhætta lántaka
Áhætta lán­taka Már Wolfgang Mixa vill að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði í stað vísi­tölu neyslu­verðs. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Lækki íbúða­verð um 5 pró­sent á næstu tólf mán­uðum á meðan verð­bólga verður 4 pró­sent gæti kaup­andi sem greiddi 20 pró­sent af íbúð­ar­verði í útborgun tapað 41 pró­senti af eigin fé sínu á einu ári. Íbúðin lækkar þá í verði en verð­tryggða lánið hækkar. Þetta sýnir útreikn­ingur Más Wolfgangs Mixa hag­fræð­ings.

Raunverð íbúða hefur þegar lækkað, sam­kvæmt gögnum HMS, en urm­ull nýrra íbúða bíður þó enn tómur og óseldur. Það gæti kallað á enn frek­ari lækkun hús­næð­is­verðs en þegar hefur orðið. Már segir nær alla áhætt­una af verð­tryggðum lánum liggja hjá lán­tak­anum og vill tengja lánin við íbúða­verð í stað vísi­tölu neyslu­verðs.

Skellurinn kemur úr tveimur áttum

Dæmið sem Már tekur til að útskýra þetta er af íbúð sem kostar 50 millj­ónir króna og á hvílir 40 millj­óna króna verð­tryggt lán. Eigið fé kaup­and­ans er 10 millj­ónir. Lækki íbúðin um 5 pró­sent er hún metin á 47,5 …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ADA
    Anna Dóra Antonsdóttir skrifaði
    Mér hafa alltaf fundist skoðanir Más Mixa á verðtryggðum lánum einkennilegar, og ekki fara þær batnandi, hef nefnilega dulitla reynslu sjálf af fyrirbærinu verðtryggð lán.
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Sem sagt ekki afnema verðtryggingu heldur auka hana með því að skipta viðmiði við vísitölu neysluverðs út fyrir vísitölu húsnæðisverðs sem hefur hækkað tvöfalt meira frá aldamótum. Með öðrum orðum þannig að 10 milljón króna lán árið 2000 sem væri í dag jafnvirði 25 milljóna myndi í staðinn vera jafnvirði 50 milljón í dag. Af öllum hugmyndum um verðtryggingu sem hafa komið fram í opinberri umræðu hér á landi hlýtur þessi að vera sú snargalnasta!
    0
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Hann leggur til að verðtryggð húsnæðislán fylgi íbúðaverði en ekki vísitölu neysluverðs. Þá myndu bankarnir bera hluta áhættunnar. - Það mun örugglega ekki gerast. Engin ástæða til að bankarnir fari að taka áhættu, nema á mygluðum hótelbyggingum, sem þakka má fyrir hvern dag að ekki verði velt yfir á óbreytta neytendur.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár