New York Times: Ísland var náunginn í partýinu sem lá meðvitundarlaus af drykkju úti í horni

Krónan gerði Íslandi kleift að bjarga sér í efnahags­hruninu og er ástæðan fyrir þeim efnahags­lega bata sem Íslendingar hafa upplifað á undan­förnum árum. Þetta segja Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson, leiðtogar stjórnar­flokkanna, í umfjöllun stór­blaðsins New York Times um íslenska efnahags­hrunið og viðbrögð stjórn­valda við því sem birtist í gær. Sigmundur Davíð segir auk þess að fjármagns­höftin sem sett voru í lok árs 2008, og stendur nú til að losa um, hafi virkað betur en nokkur hefði búist við. Þau séu hins vegar augljós­lega ekki varanleg lausn fyrir íslenska hagkerfið.

Ísland meðvitundarlaust úti í horni


Í grein­inni er saga hruns­ins á Íslandi rakin í nokkuð ítar­legu máli. Þar segir að íslensku bank­arnir hafi orðið meira en tíu sinnum stærri en þjóð­ar­fram­leiðsla lands­ins og þegar að þeir hafi hrunið hafi allt efna­hags­kerfið hrunið með þeim.

Eitt af því sem Íslendingar hafi ákveðið að gera var að setja upp fjármagns­höft. Greinar­höfundur segir að rökin fyrir því hafi verið afar sterk. "Ef Banda­ríkin og Evrópu drukku sig full af ódýru fjármagni, þá var Ísland náunginn í partýinu sem lá meðvitundar­laus úti í horni".

Í kjölfar hrunsins hafi gengið fallið, með tilheyrandi lækkun á raunvirði launa en jákvæðum áhrifum fyrir viðskipta­jöfnuð og leitt til minna atvinnu­leysi. Í stað þess að skera blóðugt niður hafi verið staðið vörð um helstu innviði velferðar­kerfisins á Íslandi og skattar verið hækkaðir til að verja þá stöðu. Þá hafi gengis­fellingin gert landið ódýrara heim að sækja sem hafi hjálpað verulega til við að draga að ferðamenn. Auk þess hafi verið boðið upp á niður­greiðslur á húsnæðis­skuldum. Svo hafi Ísland auðvitað gert eitthvað sem fæst önnur lönd gerðu í kjölfar banka­hrunsins, að fangelsa bankamenn fyrir efnahags­glæpi.

Allar þessar aðgerðir hafi skilað Íslandi á þann stað sem landið sé í dag, þar sem landið er að upplifa sitt lengsta sjálfbæra hagvaxtar­skeið með lágri verðbólgu og kaupmáttar­aukningu.

Stóran hluta ástæðunnar sé að finna í tekjum af auknum ferðamanna­straumi -fjöldi þeirra hefur tvöfaldast frá árinu 2006 - en einnig vegna þess að það var raun­hagkerfi - sem byggist á veiðum á fiski og vinnslu á orku - undir­liggjandi á meðan að landið fékk tíma­bundinn vott af geðveiki og hélt að það gæti orðið alþjóð­legur bankarisi. Vegna þessarra atvinnu­vega, sem búa til raun­veruleg verðmæti, virkuðu fjármagns­höftin mjög vel.

Rætt við sjö íslenska karlmenn, enga konu


Allir sem rætt er við í grein­inni, sjö íslenskir karl­menn en engin kona, virð­ast sam­mála um að fjár­magns­höftin séu hins vegar mjög til trafala í dag. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að fjár­magns­höftin hafi virkað betur en nokkur hafi búist við. Þau séu hins vegar aug­ljós­lega ekki var­an­leg lausn fyrir íslenska hag­kerfið. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að síð­ustu ár hafi verið eins og opin kennslu­stund í umræð­unni um hvort að ríki eigi að hafa sinn eigin gjald­miðil og hvað það þýði að vera hluti af sam­eig­in­legum gjald­miðli sem leggi ekki efna­hags­lega stöðu þíns ríkis til grund­vallar. Bjarni segir hins vegar einnig að höftin skaði mögu­leik­ann á utan­að­kom­andi fjár­fest­ingu og skemmi fyrir raun­hag­kerf­inu.

Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eru báðir á meðal viðmælenda New York Times.

Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eru báðir á meðal viðmælenda New York Times.
Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son eru báðir á meðal við­mæl­enda New York Times.

Guðmundur Kristjánsson, kenndur við Brim, er einn þeirra sem rætt er við í greininni. Þar er hann sagður vera sjómaður, þótt farið sé yfir þau atvinnu­tæki sem hann, einn stærsti útgerðar­maður landsins, á. Guðmundur segir meðal annars frá því að hann hafi viljað fjárfesta í nýju skipi en ekki getað það vegna þess að hann gat ekki tekið lán erlendis og á Íslandi gat hann bara fengið lánaðar krónur á mjög háum vöxtum. Hann er einnig mjög gagnrýnin á endur­reisn fjármála­kerfisins, og sérstak­lega viðskipta­bankanna, en tveir þeirra hafa nú um nokkurra ára skeið verið að mestu í eigu kröfuhafa föllnu bankanna. "Við erum eina landið sem lét brjálaða vogunar­sjóði eiga bankanna okkar í sjö ár," segir Guðmundur við New York Times.

Fleiri segja sögur af því hvernig höftin hafa haft áhrif á þá. Magnús Árni Skúlason hagfræðingur segir frá því þegar sonur hans vildi kaupa hlutabréf í Apple fyrir fermingar­peninganna sína en gat það ekki vegna hafta. Hluta­bréfin hafa síðan rúmlega fjór­faldast í verði.

Sagt að samningar við kröfuhafa skili 400 milljörðum


Að lokum er fjallað um aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda til að losa höft. Þar segir frá því að sam­komu­lag hafi náðst við kröfu­hafa föllnu bank­anna sem geri það að verkum að hægt verði að ráð­ast í þá fram­kvæmd. Hér­lendis hefur heild­ar­um­fang þeirra eigna sem slita­búin munu gefa eftir til rík­is­sjóðs sam­kvæmt sam­komu­lag­inu verið á reiki en sam­kvæmt New York Times er upp­hæðin um 400 millj­arðar króna. Ef sam­komu­lögin gangi ekki upp verði lagður á slita­búin stöð­ug­leika­skattur sem sé þeim mun dýr­ari.

Í greininni segir að þótt allir viðmælendur blaðsins virðist sammála um að það sé nauðsynlegt að losa um höftin þá hafi aðgerðin einnig vakið ótta um hvað muni fylgja í kjölfarið og hvort Ísland geti raun­verulega lifað af með eigin gjald­miðil.


Sigmundur Davíð og Bjarni segja báðir að íslenska krónan hafi gert Íslandi kleift að bjarga sér og ná þeim bata sem landið hefur náð eftir hrunið. Sumir viðmælendur New York Times eru hins vegar þeirrar skoðunar að heimurinn sé of stór og alþjóða­væddur til þess að lítil eyja með rúmlega 320 þúsund íbúa geti verið með sinn eigin fljótandi gjald­miðil. "Það er brjálæði fyrir okkur að vera áfram með eigin gjald­miðil," segir stjórnar­formaður Bogi Þór Sigur­oddsson, stjórnar­formaður Johan Rönning. Hann segir Íslendinga þurfa aðra valmöguleika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár