Fyrrverandi varaforseti FIFA svarar aftur fyrir sig með dramatísku myndbandi

Jack Warner, fyrr­verandi vara­forseti Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins FIFA, sendi frá sér myndband á Youtube í gær þar sem hann svarar þátta­stjórn­andanum John Oliver og gagnrýni Olivers á hann.

Warner, sem er grunaður um víðtæka spillingu og hefur meðal annars verið eftir­lýstur af Interpol, hefur undan­farið notast við myndbönd til að svara fyrir sig, en hann keypti tíma á sjónvarps­stöðinni TV6 í Trínidad og Tóbagó, heima­landi sínu, þar sem hann sagðist óttast um líf sitt og að hann hefði sannanir um spillingu annarra innan FIFA.
Hér má sjá upprunalegt myndband Warners, sem birtist fyrir viku síðan.

John Oliver, þátta­stjórnandi þáttarins Last Week Tonight, keypti í kjölfarið tíma á sjónvarps­stöðinni á miðvikudag þar sem hann svaraði Warner og krafðist þess að hann greindi frá allri spillingu innan FIFA. Oliver hefur áður gagnrýnt FIFA harðlega í þáttum sínum. Hér má sjá myndband Oliver.

Warner reiddist greini­lega bæði sjónvarps­stöðinni og Oliver, og birti annað myndband til að svara fyrir sig á ný. Hann sagðist meðal annars ekki þurfa nein ráð frá amerískum kjána og grínista, sem geri lítið úr Trinídag og Tóbagó. Undir ræðu Warners er dramatísk tónlist og hann segist ætla að halda fund þar sem hann greini frekar frá málunum. Eftir að mynd­bandið birtist var því hins vegar eytt, en tekið hafði verið afrit af því og það má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár