Milljónamæringum fjölgar hratt í Kína

Milljónamæringum fjölgaði í Kína úr þremur milljónum í fjórar milljónir á síðasta ári. Þetta kemur fram í umfjöllun Quartz í dag, en vitnað er til rann­sóknar ráðgjafa­fyrir­tækisins Boston Consulting Group. Drif­krafturinn að baki fjölgun milljónamæringa, í Bandaríkja­dölum talið, er gríðar­lega mikil hækkun á virði hluta­bréfa, en vísitala hlutabréfa­markaðarins í Kína hefur hækkað um 150 prósent á tólf mánuðum.

Hagvöxtur í Kína var 7,4 prósent, sem er minnsti hagvöxtur í landinu sé horft til síðustu tíu ára. Þrátt fyrir það hefur auðsöfnun einstaklinga og fyrir­tækja í Kína aldrei verið hraðari en nú.

Hér má sjá grafíska mynd, sem Quartz birti með umfjöllun um fjölgun milljónamæringa í Kína. Gríðar­lega hraður vöxtur einkennir auðsöfnun einstaklinga í Asíu.

kina
kina
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár