Bjarni Benediktsson: Ekki ástæða til að leita til Alþingis til að enda umsókn að ESB

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, segir að það sé ekki ástæða fyrir ríkis­stjórnina að leita til Alþingis til að draga til baka umsókn Íslands að Evrópu­sambandinu þar sem að það sé ekki stefna hennar að ganga í sambandið. Ekki sé því um meiriháttar breytingu að ræða á utan­ríkismála­stefnu Íslands. Það skipti engu máli hvort umsóknin að Evrópu­sambandinu sé dauð eða steindauð. Hann segir að það eigi ekki að boða til þjóðar­atkvæða­greiðslu um Evrópu­sambandið nema að fyrir því sé vilji hjá Alþingi eða að það sé stefna sitjandi ríkis­stjórnar.

Þetta kom fram í máli hans í Kastljósi kvöldsins. Bjarni var gestur þess ásamt Árna Páli Árnasyni, formanni Samfylkingarinnar.

Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkismála­ráðherra fundaði í dag með utan­ríkis­ráðherra Lettlands, Edgars Rinkevics, sem nú gegnir formennsku í Evrópu­sambandinu. Þar afhenti Gunnar Bragi honum bréf til formennsku sambandsins og framkvæmda­stjórn þar sem tilkynnt er að ríkis­stjórn Íslands hafi samþykkt á fundi sínum síðastliðinn þriðjudag að hún hafi ekki í hyggju að taka upp aðildar­viðræður við sambandið á nýjan leik. Ríkis­stjórnin líti því svo á að Ísland sé ekki lengur í hópi umsóknar­ríkja og hefur farið þess á fer leit við Evrópu­sambandinu að sambandið taki hér eftir mið af því. Jafnframt var tekið fram að litið sé svo á að þessi nýja stefna yfirtaki þær skuld­bindingar sem gefnar voru í aðildar­viðræðum fyrri ríkis­stjórnar.

Árni Páll sagði að hans flokkur myndi koma því á framfæri við Evrópu­sambandið að með ákvörðun ríkis­stjórnarinnar væri verið að ganga gegn þingvilja. Hann sagði ríkis­stjórnina hafa farið með málið eins og mannsmorð eftir að hafa tekið ákvörðun um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár