Gríska þingið samþykkir neyðarlán í andstöðu hluta stjórnarþingmanna

Gríska þingið samþykkti í morgun samkomulag við Evrópu­sambandið um neyðarlán með kvöðum um aðhalds­rekstur í ríkis­fjármálum. Neyðar­lánið var samþykkt á þinginu eftir langan fund sem stóð í alla nótt. Þar mætti Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, meðal annars andstöðu eigin flokks­manna í flokki sínum Syriza. Í umfjöllun á vef The Guardian segir að rökræður næturinnar hafi á tíðum verið fjarstæðu­kenndar og hávaða­samar.

Vegna andstöðu um fjörutíu þingmanna Syriza, Yannis Varoufakis fyrrum fjármála­ráðherra landsins þeirra á meðal, þurfti Tsipras að treysta á stuðning stjórnar­andstöðu­flokka. Eftir mikið karp og fundarhöld var samkomu­lagið loks samþykkt örugglega, með 222 atkvæðum gegn 64.

Drög að neyðar­láninu þarnast nú undir­skriftar fjármála­ráðherra evru­ríkjanna, sem funda vegna málsins síðar í dag, föstudag. Auk þess krefst samkomu­lagið samþykkis nokkurra þjóðþinga, meðal annars í Þýska­landi, stærsta kröfuhafa gríska ríkisins.

Lána­pakkinn á að bjarga Grikkjum frá greiðslu­falli og líklegri útgöngu úr evru­samstarfinu í kjölfarið. Neyðar­lánið hljóðar upp á um 85 milljarða evra. Það þarf að koma í tæka tíð fyrir 20. ágúst, þegar 3,2 milljarða evra lána­greiðsla frá Seðla­banka Evrópu fellur á gjalddaga. Neyðar­láninu fylgja miklar kvaðir fyrir Grikki, þeim er gert að skera niður í útgjöldum ríkisins og mikið eftirlit verður haft með að Grikkir haldi áætlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár