Fulltrúar Þjóðareign.is boðaðir á fund atvinnuveganefndar

Atvinnu­veganefnd hefur boðað fulltrúa undir­skrifta­söfnunarinnar Þjóðar­eign.is á fund sinn á morgun,föstudag, klukkan 8:30. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstand­endum söfnunarinnar. Umdeilt makríl­frumvarp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, er nú til meðferðar hjá nefndinni.

Alls hafa rúmlega 31 þúsund manns skrifað undir áskorun til forseta Íslands á síðunni Þjóðar­eign.is frá því að henni var hrint úr vör 1. maí síðastliðinn. Það er vel yfir tíu prósent kosninga­bærra manna á Íslandi. Þar er skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að vísa í þjóðar­atkvæða­greiðslu væntanlegum lögum um úthlutun makríl­kvóta og öðrum þeim lögum sem Alþingi samþykkir þar sem fiskveiði­auðlindum er ráðstafað til lengri tíma en eins árs á meðan ekkert ákvæði um þjóðar­eign á auðlindum hefur verið sett í stjórnar­skrá og þjóðinni ekki verið tryggt fullt gjald fyrir afnot þeirra.

Í tilkynningu frá aðstand­endum undir­skriftar­söfnunarinnar segir að hún hafi gengið vonum framar. „Að undir­skrifta­söfnuninni standa einstaklingar sem hvorki hafa fjölmenn samtök né ríkt bakland sem getur látið mikla fjármuni af hendi rakna til auglýsinga. Hvatning til þátttöku hefur eingöngu farið fram í fjöl­miðlum og á samfélags­miðlunum og það hefur skilað okkur hinni glæsilegu útkomu undir­skrifta sem söfnunin stendur núna í.“

Jón Steinsson hagfræðingur, Jón Sigurðsson, fyrrum formaður Framsóknar­flokksins, Guðrún Péturs­dóttir, fyrrum forseta­fram­bjóðandi, Þorkell Helgason, fyrr­verandi prófessor, Elín Björg Ragnars­dóttir, fyrr­verandi framkvæmda­stjóri Samtaka fisk­fram­leiðenda og útflytjenda, hagfræðingarnir Henný Hinz og Bolli Héðinsson og Agnar K. Þorsteinsson, sérfræðingur í upplýsinga­tækni standa að undir­skrifta­söfnuninni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár