Suður-Kóreumenn krefjast afsökunarbeiðni frá Norður-Kóreu

Park Geun-hy, forseti Suður-Kóreu, krefst þess að Norður-Kóreumenn biðjist afsökunar á jarð­sprengjum sem særðu tvo hermenn á hlutlausa svæðinu milli ríkjanna fyrr í mánuðinum. Fyrr muni Suður-Kórea ekki hætta að útvarpa á svæðinu, eins og Norður-Kóreumenn hafa krafist.

Hátt­settir ráðgjafar stjórn­valda beggja ríkja hafa fundað stíft vegna ástandsins um helgina, og viðræður hófust á ný í morgun. Engin niður­staða hefur fengist af þessum funda­höldum.

Spennan á milli ríkjanna á Kóreu­skaganum hefur magnast undan­farna daga og Norður-Kóreumenn hafa hótað því að ráðast í miklar hernaðarlegar aðgerðir ef Suður-Kóreumenn hætta ekki að útvarpa í gegnum hátalara á landa­mærunum. Suður-Kóreumenn hafa brugðist við þeim hótunum með því að flytja fjögur þúsund íbúa í nágrenninu frá landa­mærunum og vara við því að ef Norður-Kóreumenn grípi til einhverra aðgerða verði þeim svarað af fullri hörku.

Upphaf spennunnar nú er sú að tveir suður-kóreskir hermenn slösuðust alvarlega af völdum jarð­sprengja. Stjórn­völd í Suður-Kóreu segja að Norður-Kóreumenn hafi komið sprengjunum þar fyrir, en því hafna Norður-Kóreumenn og segja það fráleitt. Í kjölfar þessa hófu hermenn að skjóta, en herbúðir beggja segja að hinir hafi skotið fyrst. Í kjölfar sprenginganna hófu Suður-Kóreumenn að hefja á ný notkun hátalaranna á svæðinu, sem höfðu verið hljóðir í ellefu ár fram að því. Útvarpað er fréttum, veðurspá og tónlist frá Suður-Kóreu á svæðinu.

Mörgum þykir það vera góðs viti að viðræður séu enn í gangi. Venjulega standi viðræður milli ríkjanna ekki lengi og það gæti verið merki um að verið sé að ræða lausnir á stærri málum en því að koma á tíma­bundnu vopnahléi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár