Píratar með tæplega 30 prósent fylgi, myndu fá 19 þingmenn

Píratar myndu fá 29,1 pró­sent atkvæða ef kosið yrði til Alþing­is­kosn­inga í dag og 19 þing­menn, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins sem birt var í dag. Þetta er önnur könn­unin á skömmum tíma sem sýnir mikla fylg­is­sveiflu yfir til Pírata en MMR birti á fimmtu­dag könnun þar sem fylgi flokks­ins var 23,4 pró­sent. Píratar fengu um fimm pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum og eiga þrjá þing­menn í dag.

Vin­sældir Pírata eru lang­mestar hjá yngra fólki en 38 pró­ent svar­enda í ald­ur­hópnum 18-49 ára sögð­ust myndu kjósa Pírata ef gengið yrði til kosn­inga í dag.


Mest tap hjá Sjálfstæðisflokknum


Fram­sókn­ar­flokkur bætir lít­il­lega við fylgi sitt á milli kann­ana blaðs­ins og mælist nú með 11,6 pró­sent atkvæða. Sam­fylk­ingin bætir einnig við sig 0,2 pró­sentum og mælist með 16,3 pró­sent. Aðrir flokkar sem eiga full­trúa á Alþingi í dag tapa fylgi. Björt fram­tíð og Vinstri græn mæl­ast með 9,0 pró­sent fylgi og yrðu saman minnstu flokk­arnir á þingi ef kosið yrði í dag. En sá flokkur sem tapar mest milli kann­ana er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Hann fer úr 28,0 pró­sent í könnun sem var gerð 10. og 11. mars í 23,4 pró­sent núna.

Ljóst er að ef þetta yrðu nið­ur­stöður kosn­inga þá væri rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra kol­fall­inn. Stjórn­ar­flokk­arnir myndu fá sam­tals 22 þing­menn af 63. Eini mögu­leik­inn á tveggja flokka stjórn við þessar aðstæður væri stjórn­ar­sam­starf Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks.

Aðferð­ar­fræði könn­unar Frétta­blaðs­ins var þannig að hringt var í 1.078 manns þar til að náð­ist í 801 sam­kvæmt lag­skiptu úrtaki dag­ana 18. Og 19. mars. Svar­hlut­fall var 74,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár