Áhrifavaldar birta myndir af börnunum í auglýsingaskyni

Áhrifa­valdar á samfélags­miðlum birta myndir af börnunum sínum, merktar fyrir­tækjum sem framleiða vörur eða fatnað sem barnið notar. Dæmi eru um að börn séu notuð í kostaðar færslur, en varað er við því að veita of miklar upplýsingar um börn og einkalíf þeirra.

Við lifum á tímum tækni og miðlunar. Við lifum á tímum þar sem stór hluti miðlunar fer fram á netinu og samfélags­miðlum. Við lifum á tímum þar sem samfélags­miðlar geta þjónað mekka og miðju í lífi hvers einstaklings, og við lifum á tímum þar sem áhrifa­valdar hafa sumir hverjir meiri áhrif en stjórn­málamenn. 

Duldar auglýsingar

Samkvæmt könnun MMR frá árinu 2018 nota til að mynda 91 prósent íslensku þjóðarinnar Facebook og tæplega helmingur, eða 47 prósent, eru á Instagram. Það er þó aðeins lítill hluti þeirra sem nota slíka miðla sem teljast vera áhrifa­valdar, orðið nær yfir þá einstaklinga sem sinna markaðs­setningu á samfélags­miðlum. Hlut­fallið minnkar svo enn frekar þegar taldir eru til þeir aðilar sem ná að lifa á þeim tekjum hér á landi. Þeir sem ná því eru gjarnan með umboðs­menn á sínum snærum, einhvern sem verður áhrifavaldinum úti um samninga við fyrirtæki. Lifibrauð áhrifa­valda felst …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár