Samkeppni um HM í fótbolta 2026 frestað vegna spillingarmála

Ákveðið hefur verið að fresta samkeppni um að halda heims­meistara­mótið í knatt­spyrnu árið 2026 vegna rannsókna á spillingu í tengslum við úthlutun á mótunum 2018 og 2022. Jérôme Valcke, framkvæmda­stjóri Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins FIFA, segir að það væri vitleysa að hefja ferlið við að ákveða hvaða ríki fær að halda keppnina árið 2026. Kjósa átti um þetta í Kuala Lumpur í maí árið 2017.

Banda­ríkin eru talin líkleg til að hreppa hnossið, en búist er við því að Kanada, Mexíkó og Kólumbía hafi einnig áhuga á að halda mótið.

Verið er að rannsaka hvernig staðið var að valinu á Rússlandi, sem heldur mótið 2018, og Katar, sem heldur mótið 2022. Rann­sóknin er í tengslum við umfangs­mikla spillingar­rannsókn á FIFA.

Áætlað hafði verið að greina aðildar­samböndum FIFA frá því í vikunni hvernig staðið yrði að valinu fyrir mótið 2026, en Valcke sagði að í ljósi stöðunnar væri það rugl að hefja ferlið nú. Hann varði einnig gjörðir FIFA, en mikið hefur verið fjallað um tíu milljóna dala greiðslu sem stjórn­völd í Suður-Afríku greiddu og greint hefur verið frá að Sepp Blatter, forseti FIFA, hafi vitað af og rætt um. Saksókn­arar í Banda­ríkjunum segja að greiðslan, sem fór til verkefna í Karabíska hafinu, hafi verið mútu­greiðsla, en því haf FIFA og stjórn­völd í Suður-Afríku hafnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár