Bjarni vill selja restina af Íslandsbanka á næsta kjörtímabili og allt að helming í Landsbanka

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að ef hann fengi að ráða þá myndi hann selja Íslands­banka að öllu leyti við fyrsta tæki­færi á nýju kjör­tíma­bili. Hann vill líka selja stóran hluta í Lands­bank­anum.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill selja það sem eftir mun standa af eign­ar­hlut Íslands­banka við fyrsta tæki­færi á næsta kjör­tíma­bili. Til stendur að selja allt að 35 pró­sent af hlut rík­is­ins í bank­anum í júní og sam­hliða mun Íslands­banki vera skráður á hluta­bréfa­markað.

Í Frétta­blað­inu í dag er haft eftir Bjarna ríkið sé skuld­bundið sam­kvæmt skil­málum hluta­fjár­út­boðs­ins að selja ekki fleiri hluti í hálft ár eftir fyrstu sölu. „Ef ég fengi ein­hverju um það ráðið þá myndum við klára þennan áfanga og við myndum nota fyrsta tæki­færi á nýju kjör­tíma­bili til að halda áfram að losa okkur við eign­ar­hluti í bank­anum.“ Það verði verk­efni næsta kjör­tíma­bils.

Bjarni seg­ist líka vilja selja 35 til 50 pró­sent hlut í Lands­bank­anum, sem ríkið á líka. Sá hlutur sem ríkið myndi halda væri til þess fallið að tryggja að á Íslandi yrði áfram höf­uð­stöðvar banka.

Var í stjórnarsáttmála

Sú rík­is­stjórn sem mynduð var undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur í nóv­em­ber­lok 2017 hefur haft það mark­mið, stað­fest í stjórn­ar­sátt­mála, að leita leiða til að draga úr eign­ar­haldi rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Til að vinna að þessu mark­mið var skip­aður hópur til að skrifa Hvítbók um fjár­mála­kerfið. Hann skil­aði skýrslu sinni í des­em­ber 2018. Tvær helstu nið­ur­stöður hennar eru að fjár­mála­kerfið sé sam­fé­lags­lega mik­il­vægt og að traust sé und­ir­staða þess að það virki sem skyldi. Það sé síðan hlut­verk rík­is­ins að tryggja umgjörð sem stuðli að verð­skuld­uðu trausti.

[adspot]Þar er líka sagt að heil­brigt eign­ar­hald sé „mik­il­væg for­senda þess að banka­kerfi hald­ist traust um langa fram­tíð. Í því felst að eig­endur banka séu traust­ir, hafi umfangs­mikla reynslu og þekk­ingu á starf­semi banka og fjár­hags­lega burði til að standa á bak við bank­ann þegar á móti blæs. Mik­il­vægt er að eig­endur hafi lang­tíma­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi.“

Á grunni þess­arar nið­ur­stöðu hófu stjórn­völd nán­ast sam­stundis að reyna að selja eign­ar­hluti í rík­is­bönk­unum tveimur.

Í sept­em­ber 2019 lagði Banka­sýsla rík­is­ins til að fjórð­ungs­hlutur í Íslands­banka yrði seldur.

Íslenskir kaupendur sennilegastir

Um miðjan mars 2020 aft­ur­kall­aði Banka­sýsla rík­is­ins til­lögu um að hefja sölu­ferlið. Sala banka væri ekki raun­hæf vegna efna­hags­legra aðstæðna á Íslandi og alþjóða­vett­vangi vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

[links]Málið var skyndi­lega end­ur­vakið 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn, degi áður en að Alþingi fór í jóla­frí. Það gerð­ist þannig að Banka­sýsla rík­is­ins – stjórn hennar og for­stjóri – sendu til­lögu til Bjarna Bene­dikts­sonar um að selja hlut í Íslands­banka í gegnum skrán­ingu á íslenskan markað.

Fjórum dögum síðar sendi Bjarni, ásamt ráðu­neyt­is­stjóra sínum, bréf til Banka­sýsl­unnar og sam­þykkti til­lög­una. Samhliða var send grein­ar­gerð til Alþingis og nefnd­ar­mönnum í fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd gefin mán­uður til að skila inn umsögn um málið. Hún átti að ber­ast 20. jan­úar, eða tveimur dögum eftir að fyrsti þing­fundur eftir jóla­frí fór fram.

Grein­ar­gerðin opin­ber­aði það að ekki átti lengur að freista þess að finna erlenda aðila til að kaupa í Íslands­banka. Það þætti ekki lík­legt til árang­urs. Svo­kallað sam­hliða sölu­ferli var því aflagt og ákveðið að skrá Íslands­banka ein­ungis á markað á Íslandi, ekki tví­skrá líka erlendis eins og upp var lagt með til að byrja með.

Kaup­endur af þessu kerf­is­lega mik­il­væga fyr­ir­tæki, sem átti við síð­asta upp­gjör eigið fé upp á 185 millj­arða króna, eiga því að vera íslenskir fjár­festar. Og hann verður skráður í íslenska kaup­höll ein­vörð­ungu.

Hið form­lega ferli

Þær tvær nefndir Alþingis sem þurftu að skila umsögn um grein­ar­gerð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vegna banka­söl­unnar, fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd, seint í jan­úar.

Meiri­hluti í báðum nefndum var skip­aður ein­vörð­ungu stjórn­ar­þing­mönnum og þeir komust að sam­hljóma nið­ur­stöðu. Selja ætti 25 til 35 pró­sent hlut í bank­anum ef rétt verð feng­ist fyrir og hámarka ætti hlut hvers kaup­anda við 2,5 til 3,0 pró­sent. Skoða ætti að greiða út arð úr Íslands­banka áður en hlutur í bank­anum yrði seldur en eigið fé hans umfram 17 pró­sent kröfu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins var tæp­lega 58 millj­arðar króna í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Ekki liggur alveg skýrt fyrir hversu mikið af því er útgreið­an­legt sem stendur og það þarf að meta. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir voru ósam­mála nálgun rík­is­stjórn­ar­innar og sá eini þeirra sem var skýrt á þeirri skoðun að selja ætti hlut í Íslands­banka nú var Viðreisn, en full­trúi flokks­ins í nefnd­unum vildi að ein­hverju leyti aðra aðferð­ar­fræði við söl­una.

Í kjöl­farið hófst hið form­lega sölu­ferli sem mun ljúka í júní með hluta­fjár­út­boði og skrán­ingu á markað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár