Leggja á ný til að ríkið selji hluta Íslandsbanka

Banka­sýsla rík­is­ins lagði í dag fram til­lögu til Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Tillaga um sölu bank­ans var aft­ur­kölluð vegna óvissu í efna­hags­málum í mars, en nú er lagt til að ráð­ist verði í almennt útboð.

Höfuðstöðvar Íslandsbanka í Kópavogi.
Höf­uð­stöðvar Íslands­banka í Kópavogi. Mynd: Íslandsbanki

Banka­sýsla rík­is­ins lagði í dag á ný fram til­lögu til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um sölu á hluta rík­is­ins í Íslands­banka. Banka­sýslan lagði hið sama til í mars­mán­uði, en féll frá til­lögu sinni skömmu síðar vegna skjótra svipt­inga í efna­hags­málum vegna heims­far­ald­urs­ins.

Nú, öfugt við í mars, felur til­lagan ekki í sér að hluti eign­ar­hluta rík­is­ins verði seldur hæst­bjóð­anda í beinni sölu, heldur er ein­ungis lagt til af hálfu banka­sýsl­unar að stefna að skrán­ingu eign­ar­hluta á verð­bréfa­markað hér­lendis í kjöl­far almenns útboðs.

Banka­sýslan segir í minn­is­blaði til ráð­herra að ekki sé talið rétt að ákveða á þessum tíma­punkti hversu stóran hlut í bank­anum eigi að bjóða til sölu í útboð­inu, „þar sem áætluð eft­ir­spurn fjár­festa eftir hlutum í Íslands­banka, bæði varð­andi fjölda hluta og verð á hlut, muni ein­ungis liggja fyrir eftir fjár­festa­kynn­ingar undir lok sölu­ferlis.“

Lagt er til að sölu­ferli bank­ans hefj­ist í jan­úar og gert er ráð fyrir því að því gæti lokið í maí.

Staða markaða betri en vonir stóðu til

Sem áður segir lagði Banka­sýslan fram til­lögu um sölu Íslands­banka í mars, nánar til­tekið þann 4. mars. Tillagan var svo aft­ur­kölluð 16. mars vegna breyttra aðstæðna og mik­illar óvissu á mörk­uðum vegna heims­far­ald­urs­ins.

Í rök­stuðn­ingi sínum fyrir því að leggja til­lögu um sölu á bank­anum fram nú segir Banka­sýslan að þróun á fjár­mála­mörk­uðum og afkomu Íslands­banka hafi reynst mun betri en vonir stóðu til um miðjan mars.

Frá 16. mars til 16. des­em­ber hafi hluta­bréf í íslenskum félögum hækkað um helm­ing (50,0 pró­sent) og hluta­bréf í evr­ópskum bönkum (STOXX Euro 600 banka vísi­talan) hækkað um tæpan þriðj­ung (32,4 pró­sent). Einnig hafi á þessu tíma­bili átt sér stað far­sæl hluta­bréfa­út­boð inn­an­lands með mik­illi þátt­töku almenn­ings.

Þá segir Banka­sýslan að afkoma Íslands­banka það sem af er árinu hafi verið betri heldur en álykta megi af sviðs­mynda­spá Seðla­banka Íslands frá því í byrjun júlí.

Formenn stjórnarflokkanna allir sammála um bankasölu áður en veiran fór að grassera

Sala á ein­hverjum hluta rík­is­ins í Íslands­banka var mikið til umræðu áður en kór­ónu­veiran fór að trufla allt venju­legt líf, stjórn­málin og fjár­mála­mark­aði. Kjarninn sagði frá því í febr­úar að allir leið­togar stjórn­ar­flokk­anna þriggja hefðu lýst sig til­búna til þess að hefja sölu­ferli á öðrum rík­is­bank­anum í nán­ustu fram­tíð.[links]

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í byrjun febr­úar að sala á 25 til 50 pró­sent hlut í Íslands­banka á næstu árum myndi opna á stór tæki­færi til fjár­fest­inga.

„Á und­an­förnum árum hefur mikið verið rætt um gjald­töku til að fjár­magna sam­göngu­bætur og það er skilj­an­legt, vegna þess að við þurfum að hraða fram­kvæmd­um, en nær­tæk­ari leið er að losa um þessa verð­mætu eign og afmarka gjald­töku í fram­tíð­inni við stærri fram­kvæmdir á borð við Sunda­braut, Hval­fjarð­ar­göng og aðra ganga­gerð. Núna er góður tími til að huga að átaki í þessum efn­um, efna­hags­lífið er til­búið fyrir opin­berar fram­kvæmd­ir,“ skrif­aði Bjarni.

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra sagði sömu­leiðis við Frétta­blaðið að hann teldi skyn­sam­legt setja Íslands­banka í sölu­ferli og Katrín Jak­obs­dóttir stað­festi einnig við Kjarnann að sala á hlut í Íslands­banka væri skyn­sam­leg, ef hægt yrði að nota ávinn­ing­inn af söl­unni í inn­viða­fjár­fest­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár