Telur greinargerð ráðherra og kynningar á bankasölu ekki standast stjórnsýslulög

Stjórn­ar­þing­menn í fjár­laga­nefnd taka undir með félögum sínum í efna­hags- og við­skipta­nefnd og vilja selja allt að 35 pró­sent í Íslands­banka. Formaður Flokks fólks­ins segir að verið sé að einka­væða gróð­ann eftir að tapið var þjóð­nýtt.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd, telur að rann­sókn­ar­regla stjórn­sýslu­laga og ákvæði laga um opin­ber fjár­mál um stefnu­mótun stjórn­valda séu ekki upp­fyllt með grein­ar­gerð Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um sölu Íslands­banka og öðrum kynn­ingum sem ráð­ist var í fyrir fjár­laga­nefnd í kjöl­farið.

Þetta kemur fram í athuga­semd hans við umsögn fjár­laga­nefndar um grein­ar­gerð Bjarna, sem send til hennar 21. des­em­ber síð­ast­lið­inn og leggur til að sölu­ferli Íslands­banka verði hafið. Á grund­velli þessa mats þá setur Björn Leví ekki fram efn­is­lega athuga­semd um sölu­á­formin.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar, sem skip­aður er þing­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja (Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks) styður áform um söl­una og leggur, líkt og meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar, til að 25 til 35 pró­sent af bank­anum verði seldur. Meiri­hlut­inn vill líka að hver til­boðs­gjafi fái ekki að kaupa meira en 2,5 til 3,0 pró­sent.

[adspot]Eini stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn í hópi nefnd­ar­manna sem birtir athuga­semd í umsögn­inni sem er á þeirri skoðun að það eigi að selja bank­ann á grunni þeirra for­senda sem rík­is­stjórnin ætlar að gera það er Viðreisn, enda falli áform um sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka vel að stefnu Við­reisnar. Áheyrn­ar­full­trúi flokks­ins, Jón Steindór Valdi­mars­son, segir í athuga­semd sinni að hann vilji að seldur verði 25 pró­sent hlutur að hámarki og að eng­inn megi kaupa meira en 2,5 pró­sent af heild­ar­hlutafé. Þá vill hann að búið sé að afgreiða frum­varp um varn­ar­línu um fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi áður en til sölu kemur.

Jón Steindór segir þó að reynslan af fyrri banka­sölu, þegar tveir rík­is­bankar voru einka­væddir á árunum 2002 og 2003, hafi haft þunga eft­ir­mála. „ Ekki á að loka augum fyrir því að margir eru tor­tryggnir og ekki að ástæðu­lausu. Tveir flokkar sem nú eru í rík­is­stjórn voru það líka þegar einka­væð­ingin hin fyrri fór fram. Persónur og leik­endur skipta máli. Þess vegna þarf salan að ger­ast í vel afmörk­uðum skrefum og af yfir­vegun til þess að draga úr tor­tryggni og auka traust á sölu­ferl­inu.“

Einkavæðing banka rétt fyrir kosningar stórmál

Ágúst Ólafur Ágústs­son, full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í nefnd­inni, segir í athuga­semd sinni að einka­væð­ing banka fyrir rétt fyrir kosn­ingar sé stór­mál. „Að hefja einka­væð­ingu banka í 100 ára djúpri kreppu er hins vegar vont mál. Þessi hraði og tíma­setn­ingin á einka­væð­ing­unni hefur í för með sér tvennt: Lægra verð og færri kaup­endur. Það segir sína sögu að ekk­ert annað ríki er að selja banka á þessum tíma þrátt fyrir að fjöl­mörg dæmi séu um eign­ar­hald rík­is­ins á hinum ýmsum bönkum. Má þar nefna Bretland, Noreg, Belgíu, Holland, Írland, Grikk­land, Spán og Þýska­land.“

Mark­aðs­að­stæður séu því aug­ljós­lega ekki hag­felldar, heim­ur­inn sé í djúpri kreppu og þar af leið­andi séu færri kaup­endur til staðar en ella. „Í ljósi þess að bankar eru ekki eins og hvert annað fyr­ir­tæki skiptir eig­enda­hópur þeirra miklu máli. Þá er ljóst að engir erlendir kaup­endur eru fyrir hendi um þessar mundir.“

Ágúst Ólafur gagn­rýnir líka hrað­ann á söl­unni og segir hann í raun tor­tryggi­legan. „Það getur ekki verið skyn­sam­leg hag­fræði að selja eign rík­is­ins af nauð, sé það ástæða söl­unnar eins og heyrst hefur. Sé mark­miðið að nota sölu­and­virðið til að greiða niður skuldir rík­is­ins þá er rétt að benda á að vextir eru lágir og liggur því ekki lífið á að borga niður skuldir rík­is­ins.“

Ljóst sé að það vanti mun dýpri sam­fé­lags­um­ræðu um söl­una. „Það tókst að keyra allt einka­rekið banka­kerfi í þrot á 5 árum, síð­ast þegar það var einka­vætt. Það er því ekki ein­ungis áhætta fyrir ríkið að eiga í banka heldur er einnig til staðar áhætta fyrir ríkið af einka­reknu banka­kerfi.“

Þjóðnýta tapið en einkavæða gróðann

Fulltrúi Mið­flokks­ins í nefnd­inni, Birgir Þór­ar­ins­son, telur að álita­málin varð­andi sölu­á­form rík­is­stjórn­ar­innar séu einkum tvenns konar. Í fyrsta lagi sé álita­mál hvort þetta sé rétti tím­inn til að selja banka og í öðru lagi hvort aðferðin sé rétt, það er að segja að selja 25 pró­sent hlut. Bíða ætti með sölu Íslands­banka þangað til að óvissa um efna­hag bank­ans (20 pró­sent fyr­ir­tækja­lána hans eru í fryst­ingu vegna COVID-19) liggi fyrir og end­ur­reisn hag­kerf­is­ins hafin.

[links]Þá telur Birgir nauð­syn­legt að leitað verið að erlendum fjár­festi, til dæmis erlendum banka, til að kaupa hlut í bank­anum. „Auk þess má telja að óheppi­legt sé að banki í rík­i­s­eigu sé í sölu­með­ferð rétt fyrir kosn­ingar og eng­inn muni þarf að leið­andi bera hina póli­tísku ábyrgð. Í miðjum veiru­far­aldri er minni líkur á því að rétt verð fáist og mögu­legum kaup­endum fækkar. Hámarks­verð verður að fást fyrir þessa verð­mætu eign fólks­ins í land­inu. Við núver­andi aðstæður, hér heima og erlendis, vegna veiru­far­ald­urs­ins er ólík­legt að svo verði.“

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, segir í sínum athuga­semdum að þeim sex mark­miðum sem stjórn­völd vilja ná með söl­unni á hlut i Íslands­banka sé ekki náð með þeirri áætlun sem lögð hefur verið fram, nema að það verði á kostnað ann­ara hags­muna almenn­ings og rík­is­ins. „Fyr­ir­huguð sala á eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka á ljós­hraða þjónar því ekki hags­munum almenn­ings. Áform um sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka er aðeins nýjasta dæmið um þá stefnu rík­is­stjórn­ar­innar að þjóð­nýta tapið en einka­væða gróð­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár