Reykjavíkurborg hættir að nota bláa lýsingu á salernum

Ákvörðunin er tekin af öryggis- og skaða­minnkunar­ástæðum.

Reykja­víkurborg mun hætta að nota blá ljós á salernum í húsnæðum borgarinnar og leitast við að semja við leigjendur húsnæðis í eigu borgarinnar um slíkt hið sama. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Reykja­víkurborg sendi út í dag, en tillaga þess efnis var samþykkt í mann­réttinda- og lýðræðis­ráði borgarinnar.

Þetta er gert af öryggis- og skaða­minnkunar­ástæðum enda sé bláa ljósið hættulegra fyrir þá sem leitast í slíka lýsingu. Mann­réttinda- og lýðræðisráð telur að það sé á valdi borgarinnar að koma í veg fyrir skaða og tryggja öryggi þar sem salernin eru á vegum borgarinnar.

Bláu ljósin hafa lengi átt að koma í veg fyrir að sprautu­fíklar noti salerni við vímu­efnanotkun sína en bláa ljósið gerir æðar á yfirborði húðar minna sjáanlegar. Samkvæmt tilkynningunni hafa slíkar fælingar­aðferðir takmarkað gildi.

Kemur ekki í veg fyrir sprautunoktun

Rann­sóknir hafa sýnt að lýsingin komi ekki í veg fyrir sprautu­notkun en hún geri þeim sem sprauta sig erfiðara fyrir auki því líkurnar á því að vímuefna­notandinn skaði sig. Forvarnar­gildið sé þá lítið sem ekkert. Einnig hafi rann­sóknir bent til vímuefna­notandinn kjósi frekar að nota önnur úrræði en salerni til að sprauta sig en noti úrræðið helst í neyð, t.d. vegna fráhvarfa.

Talið er að lýsingin geti leitt til þess að fólk sprauti sig óvarlega og geti þar með fengið verri sár en ella sem kunni að leiða til sýkingar. Þar að auki geti óvarleg sprautu­notkun leitt til þess að blóð dreifist um salerni og valdi öðrum notendum og þeim sem þrífa þau hættu.

Bláa lýsingin getur ekki aðeins verið skaðleg sprautu­fíklum heldur einnig haft neikvæð áhrif á fatlað fólk og fólk sem glímir við sjón­truflanir eða höfuð­verki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár