600 flóttabörn drukknað í Miðjarðarhafi á árinu

Að minnsta kosti 600 flótta­börn hafa lát­ist á þessu ári við að reyna að kom­ast yfir Mið­jarð­ar­hafið í leit a betra lífi í Evrópu. Barna­heill – Save the Children hafa tekið saman gögn sem sýna að tvö börn hafa að með­al­tali lát­ist eða horfið á hverjum degi frá upp­hafi árs til loka sept­em­ber­mán­aðar.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Barna­heillum.

Tölurnar eru birtar í til­efni af því að í dag eru þrjú ár liðin frá því að rúm­lega 300 flótta­menn og hæl­is­leit­endur lét­ust í sjó­slysi við strendur ítölsku eyj­ar­innar Lampedusa.

Meira en 3.500 manns hafa lát­ist í Mið­jarð­ar­haf­inu það sem af er árinu, næstum 600 fleiri en á sama tíma­bili á síð­asta ári. Rúmlega 20.600 flótta­börn hafa komið til Ítalíu frá upp­hafi þessa árs, af þeim eru 18.400 ein á ferð.

„Það er óásætt­an­legt að tvö börn lát­ist eða hverfi á hverjum ein­asta degi í Mið­jarð­ar­hafi. Alþjóða­sam­fé­lagið getur ekki haldið áfram að líta fram­hjá þeim hörm­ungum sem þar eiga sér stað. Við berum öll ábyrgð á því að vernda börn, hvort sem það er hér á Íslandi eða ann­ars staðar þar sem þau eru á flótta undan ömur­legum aðstæðum,” segir Erna Reyn­is­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Barna­heilla – Save the Children á Íslandi.

„Í dag minn­umst við 368 flótta­manna sem týndu lífi sínu í til­raun til að kom­ast í öruggt skjól í Evrópu. Fyrir þremur árum lof­uðu evr­ópu­leið­togar því að aldrei aftur myndi þetta ger­ast þegar myndir af skips­flak­inu og lík­kistum voru birtar í fjöl­miðlum sem vöktu heims­at­hygli. En síðan þá hafa meira en 10.400 menn, konur og börn týnd lífi eða horfið við að reyna að kom­ast sjó­leið­ina til Evrópu,” segir Kevin Watkins, fram­kvæmda­stjóri Save the Children Í Bret­landi, í til­kynn­ing­unni.

Barna­heill – Save the Children hafa unnið að hjálp­ar­starfi við strendur Ítalíu í rúm­lega átta ár, þar sem áhersla hefur verið lögð á að hjálpa börnum sem eru ein á ferð að fá þá hjálp sem þau þurfa. Í byrjun sept­em­ber tóku sam­tökin í notkun björg­un­ar­skipið Vos Hestia sem gert er út frá Sikiley og er ætlað að bjarga flótta­fólki og hæl­is­leit­endum í neyð á Mið­jarð­ar­hafi.

Skipið hefur nú þegar bjargað meira en 600 manns í neyð, þar af 85 börnum sem sum eru yngri en fimm ára að aldri.

Söfn­un­ar­sími Barna­heilla fyrir sýr­lensk börn er 904-1900 fyrir 1.000 krónur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár