Greiða 900.000 í stað þess að bíða verkjaðar

Enn hafa Sjúkra­trygg­ingar Íslands og Lækna­fé­lag Reykja­víkur ekki náð saman um greiðslu­þátt­töku í brjóstaminnk­un­ar­að­gerðum. Konur eru farnar að gef­ast upp á bið­inni og punga út um 900.000 krónum fyrir aðgerð­inni í stað þeirra 35.000 króna sem þær ættu ann­ars að greiða.

900.000
900.000 Karen Jón­as­dóttir var búin að hugsa um að fara í brjóstaminnkun í ára­tug. Hún ákvað að það væri ekki þess virði að bíða eftir að SÍ og LR næðu saman og greiddi því fullt verð fyrir aðgerð­ina. Það mun taka hana langan tíma að borga fjöl­skyldu sinni til baka. Mynd: Golli

Brjóstaminnkun er ein algeng­asta aðgerð sem íslenskir lýta­læknar taka að sér, að sögn Hannesar Sig­ur­jóns­sonar, for­manns Félags íslenskra lýta­lækna. Samt er bið eftir brjóstaminnkun á Land­spít­ala rúmt ár og þó að nið­ur­greiðsla eigi að standa þeim sem vilja sækja þjón­ust­una á einka­stofur til boða þá þurfa sjúk­ling­arnir að greiða fullt verð fyrir aðgerð­ina, um 900.000 krónur – í stað þeirra 35.000 króna sem þær ættu ann­ars mest að greiða.

Ástæðan er sú að Sjúkra­trygg­ingar Íslands (SÍ) og Lækna­fé­lag Reykja­víkur (LR) hafa ekki náð saman um verð fyrir aðgerð­ina. Verðið er 200.000 krónur í gjald­skrá SÍ en lækn­arnir telja að það ætti að vera hátt í milljón. Mögulega mun aðgerðin fara í hálf­gert útboð. 

RagnarSegir að LR og SÍ hafi nú þegar náð saman um fjöl­marga liði gjald­skrár­innar en enn sé mikið verk eftir óunnið.

Ragnar Freyr …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár