Hjálparsamtök í viðbragðsstöðu: „Staðan gæti orðið svo miklu verri en hún er núna“

Forsvars­menn hjálpar­samtaka undirbúa sig nú fyrir fjölgun umsókna um matar­gjafir og aðra aðstoð og hafa áhyggjur af því að fyrirtæki verði síður aflögufær. Hjálpar­starf kirkjunnar biðlar til sveitar­félaganna á höfuð­borgar­svæðinu um fjárstyrk og formaður Fjölskyldu­hjálpar Íslands segir að þangað leiti nú fólk sem ekki hafi haft þörf fyrir aðstoð sem þessa fyrr en nú. Formaður Mæðrastyrks­nefndar Reykja­víkur segir að þar séu félags­konur við öllu búnar.

Matarúthlutun
Mat­ar­út­hlutun Myndin er tekin við úthlutun Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands í síð­asta mán­uði. Búast má við fjölgun í hópi þeirra sem þurfa á mat­ar­gjöfum að halda að mati for­svars­manna hjálp­ar­sam­taka. Óvíst er hvort fyr­ir­tæki hafi svig­rúm til að styðja jafn vel við sam­tökin og hingað til. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hjálpar­starf kirkjunnar sendi nýverið stærstu sveitar­félögunum á höfuð­borgar­svæðinu bréf þar sem fram kemur að undan­farið hafi orðið aukning á beiðnum um aðstoð við matar­innkaup vegna ýmissa afleiðinga COVID-19. Í bréfinu segir að félags­ráðgjafar sveitar­félaga hafi í auknum mæli vísað einstaklingum á Hjálpar­starfið þegar bjargir félags­þjónustunnar dugi ekki til og ljóst sé að útgjöld vegna þessa muni aukast á komandi mánuðum.

Sædís Arn­ar­dóttir xxx

Sædís Arnar­dóttir, félags­ráðgjafi hjá Hjálpar­starfi kirkjunnar segir að bréfið hafi verið sent bæjar­stjórnum Hafnar­fjarðar, Kópavogs, Garða­bæjar og Mosfells­bæjar. Engin svör hafi enn borist frá þeim. Hún segir að reglu­legur stuðningur berist frá Reykja­víkurborg, engu að síður hafi verið ákveðið að senda bréf þangað líka og þar sé nú verið að skoða möguleika á að bregðast við beiðninni. 

Matarkostnaður heimilanna hafi aukist

Sædís segir að merkjanleg aukning sé á beiðnum um aðstoð eftir að faraldurinn hófst. Þá sé nokkur hópur fólks, sem áður hafi í mesta lagi þegið jóla­aðstoð eða ekki notið aðstoðar áður, að fá reglulega aðstoð. „Það sem margir tala um er hvað matar­kostnaður hefur aukist mikið. Núna er öll fjöl­skyldan kannski meira eða minna heima og borðar allar sínar máltíðir á heimilinu og það þýðir meiri kostnað.“

„Við höfum nánast getað haldið okkar striki þrátt fyrir allt,“ segir Sædís. „Við þurftum að loka fata­úthlutuninni, við gátum ekki haldið henni úti vegna takmarkana vegna COVID-19, en höfum reynt að sinna þeim beiðnum sem okkur berast um fatnað.“

„Staðan gæti orðið svo miklu verri en hún er núna. Ég hef grun um að þetta ár verði mjög erfitt fyrir mjög marga“

Hún segir að nú sé starfs­fólk Hjálpar­starfs kirkjunnar að undirbúa starfsemina fyrir áfram­haldandi fjölgun beiðna um aðstoð. „Fólk er að missa vinnuna núna, námsfólk fær ekki vinnu í sumar og staðan gæti orðið svo miklu verri en hún er núna. Ég hef grun um að þetta ár verði mjög erfitt fyrir mjög marga.“

ÚthlutunMyndin var tekin í hús­næði Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands í dag, áður en mat­ar­út­hlutun hófst þar. Í síð­ustu viku og þess­ari viku verða sam­tals um eitt þús­und mat­ar­út­hlut­anir hjá sam­tök­unum.

Mæðrastyrksnefnd  er við öllu búin

 „Við erum við öllu búnar,“ segir Anna H. Péturs­dóttir formaður Mæðrastyrks­nefndar Reykja­víkur. Hún segir að ekki hafi borið á fjölgun þeirra sem leiti aðstoðar nefndarinnar, en á von á að það eigi eftir að breytast. „Fólk sem er illa statt og missir vinnuna byrjar ekki á að koma til okkar strax eftir að það gerist. Það líður gjarnan nokkur tími. En við höfum einnig áhyggjur af því að við höfum úr minna að spila þegar verr fer að ganga hjá fyrir­tækjunum.“

Leggja áherslu á Menntunarsjóð Mæðrastyrksnefndar

Anna H. Pét­urs­dóttirHún segir að félags­konur og sjálf­boða­liðar Mæðra­styrks­nefndar séu við öllu búnar.

Lokað var tíma­bundið fyrir úthlutun Mæðrastyrks­nefndar vegna COVID-19 faraldursins, en hún var síðan opnuð aftur í mars. „Þá vorum við með neyðar­aðstoð,“ segir Anna. „Fólk fékk þá úthlutað tíma þannig að það væru sem fæstir á staðnum í einu og við aðstoðuðum um 300 heimili. Við vorum einnig með úthlutun í síðustu viku og við fáum einnig talsvert af neyðar­hringingum.“

„Fólk sem er illa statt og missir vinnuna byrjar ekki á að koma til okkar strax eftir að það gerist. Það líður gjarnan nokkur tími“

Anna segir að í ljósi þess að margir standi frammi fyrir því að missa vinnuna sé Menntunar­sjóður Mæðrastyrks­nefndar gríðar­lega mikil­vægur, en honum er ætlað að styrkja tekju­lágar konur til menntunar svo að þær eigi betri möguleika á góðu framtíðar­starfi. Átak sjóðsins hefst í næstu viku, en frá stofnun hans árið 2012 hafa 250 menntunar­styrkir verið veittir úr honum. „Við höfum meðal annars stuðlað að því að þrjár eða fjórar konur hafa orðið hjúkrunar­fræðingar, sumar voru ekki með stúdents­próf og við studdum þær alla leið frá upphafi til enda,“ segir Anna. 

Útlendingar í sérlega slæmri stöðu

Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, formaður Fjölskyldu­hjálpar Íslands, segir ljóst að gríðarleg og stig­vaxandi þörf sé fyrir aðstoð hjálpar­samtaka. Sífellt hærra hlutfall þeirra sem til samtak­anna leita séu útlendingar búsettir hér á landi, ljóst sé að margir þeirra séu í afar bágri stöðu. 

Ásgerður Jóna Flosa­dóttir „Þetta er háal­var­legt ástand og varðar almanna­heill,“ segir hún.

„Við sjáum að samsetningin í hópnum hefur breyst. Núna kemur til okkar fólk sem hingað til hefur bara komið fyrir jólin. Þetta er háalvarlegt ástand og varðar almanna­heill,“ segir Ásgerður Jóna. 

Úthlutað var í dag í húsnæði Fjölskyldu­hjálpar að Iðufelli 14 og mun úthlutun halda áfram á morgun, á miðvikudag og fimmtudag. „Fólk sækir um á vefsíðu Fjölskyldu­hjálpar, það fær sms þegar það á að koma til okkar og við reynum að halda öllum samskiptum í algeru lágmarki,“ segir Ásgerður Jóna.  

Mörg hundruð heimili þurfa aðstoð

Hún segir að í síðustu viku og í dag hafi á milli 600 og 700 heimili notið aðstoðar samtak­anna. Að meðaltali eru þrír á hverju heimili og því hafi rúmlega 2.000 manns fengið aðstoðina.  Gert er ráð fyrir um 200 úthlutunum á morgun og miðvikudag og að samtals verði úthlutanir þessar tvær vikur um eitt þúsund. 

Í mars fengu 570 heimili matar­gjafir frá Fjölskyldu­hjálp og þá keyrði Lands­björg matinn heim til fólks.

Und­ir­bún­ingurFrá hús­næði Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands í dag. Þar var hópur sjálf­boða­liða sam­an­kom­inn til að und­ir­búa mat­ar­út­hlutun.

 „Það er óvíst hvort við getum haldið svona áfram, eftir að fer að harðna á dalnum hjá fyrir­tækjunum“

Ásgerður Jóna segir að fyrirtæki hafi brugðist afar vel við beiðnum Fjölskyldu­hjálpar um matar­gjafir. Svo vel, að sjaldan eða aldrei hafi samtökin getað úthlutað jafn veglegum matar­pökkum. „Við erum ákaflega stoltar af því og þakklátar fyrir að njóta þessarar velvildar. En það er óvíst hvort við getum haldið svona áfram, eftir að fer að harðna á dalnum hjá fyrir­tækjunum. Þau geta verið öll af vilja gerð, en ekki haft svigrúm til að halda áfram að styðja okkur. Við erum hræddar um að það gerist.“

Mat­ar­gjafir „Það er óvíst hvort við getum haldið svona áfram, eftir að fer að harðna á dalnum hjá fyr­ir­tækj­unum. Þau geta verið öll af vilja gerð, en ekki haft svig­rúm til að halda áfram að styðja okkur. Við erum hræddar um að það ger­ist,“ segir Ásgerður Jóna Flosa­dóttir for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár