Hádegisverður eigi ekki að varpa mikilli rýrð á störf Bankasýslunnar

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að hádeg­is­verðir, eins og starfs­menn Banka­sýsl­unnar þáðu frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum í tengslum við störf sín í aðdrag­anda sölu hluta Íslands­banka, varpi ekki rýrð á störf hennar.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnhagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Gjafir til opin­berra starfs­manna þurfa að vera innan skyn­sam­legra marka en snú­ast á end­anum um mats­at­riði að mati Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, spurði Bjarna í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun hvort hann teldi það eðli­legt að starfs­menn Banka­sýsl­unnar þiggi gjafir í tengslum við störf sín?

Minn­is­blað um þær gjafir sem for­stjóri og starfs­menn Banka­sýslu rík­is­ins hafa þegið af fjár­mála­fyr­ir­tækjum var skilað til fjár­laga­nefndar Alþingis í byrjun októ­ber, næstum sex mán­uðum eftir að það var boðað. Í því er útli­stað það sem hóp­ur­inn þáði að gjöf frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem mörg hver fengu svo arð­bær hlut­verk í ferl­inu við að selja Íslands­banka.

Jón Gunnar Ólafsson, for­stjóri Banka­sýsl­unnar, og Lárus Blöndal, stjórn­ar­maður stofn­un­ar­innar, sátu fyrir svörum á opnum fundi fjár­laga­nefndar 27. apríl. Boðað var til fund­ar­ins vegna mik­illar gagn­rýni á sölu á 22,5 pró­­sent hlut íslenska rík­­is­ins í Íslands­­­banka 22. mars síð­­ast­lið­inn á 52,65 millj­­arða króna. Alls 207 fjár­­­festar fengu þá að kaupa hluti á verði sem var sam­an­lagt 2,25 millj­­örðum króna undir mark­aðsvirði bank­ans í lok­uðu útboði sem fór fram sam­­kvæmt til­­­boðs­­leið.

„Við fengum þarna ein­hverjar vín­­flöskur og flug­­elda og konfekt­­kassa. Svo nátt­úru­­leg eigum við ein­hverja hádeg­is­verði og kvöld­verði með ráð­­gjöfum og svo fram­­veg­­is. En ekk­ert ann­að,“ sagði Jón Gunnar þegar Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, spurði hann hvort hann hefði þegið boð, gjafir, risnu eða annað slíkt í kjöl­far eða í aðdrag­anda beggja ´tboða sem fram hafa farið með hluti rík­is­ins í Íslands­banka.

Nefnd­­ar­­menn fóru í kjöl­farið fram á frek­­ari svör um málið og Jón Gunnar sagð­ist ætla að taka saman minn­is­­blað um þessar gjafir og greiddu hádeg­is­verð­i. Minn­is­blaðið er dag­sett 7. októ­ber, nærri sex mán­uðum eftir fund nefnd­ar­innar.

20 vinnufundir, yfir­leitt í hádeg­inu, þar sem veit­ingar voru í boði með ýmsum fjár­mála­fyr­ir­tækjum, tveir kvöld­verðir, tæki­fær­is­gjafir, til að mynda vín­flöskur, konfekt­kassar, kok­teila­sett, „stöðluð jóla­gjöf“ og flug­eldur eru til­tekin í minn­is­blað­inu sem gjafir sem þáðar voru frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem mörg hver fengu svo arð­bær hlut­verk í ferl­inu við að selja Íslands­banka.

„Er það eðlilegt að starfsmenn bankasýslunnar þiggi gjafir í tengslum við störf sín?“

„Þessar gjafir sem sam­tals hlaupa á hund­ruðum þús­unda króna komu frá umsjón­ar­að­ilum, fjár­mála­ráð­gjöfum, lög­fræði­legum ráð­gjöfum, sölu­ráð­gjöfum og sölu­að­ilum sem allir eiga það sam­eig­in­legt að hafa átt aðkomu að vinnu banka­sýsl­unnar við sölu á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka,“ sagði Þór­hildur Sunna.

Hún vís­aði í yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­flokk­anna frá því í apríl þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­ari hlutum Íslands­banka að sinni þar sem segir meðal ann­ars að traust og gagn­sæi verði að ríkja um sölu á eignum rík­is­ins. Þing­mað­ur­inn spurði svo fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra: „Er það eðli­legt að starfs­menn banka­sýsl­unnar þiggi gjafir í tengslum við störf sín?“

„Stutta svarið við þessu er það að ef um slíkar gjafir er að ræða þurfa þær að vera innan hóf­legra marka og í ein­hverjum eðli­legum tengslum við störfin,“ svar­aði Bjarni, sem sagð­ist ekki telja að hádeg­is­verður eigi ekki að varpa rýrð á störf Banka­sýsl­unnar að mati Bjarna. Starfs­menn Banka­sýsl­unnar þáðu einmitt 20 hádeg­is­verði, að því er fram kemur í minn­is­blað­inu.

Þá sagði hann það við­skipta­sam­band sem Þór­hildur Sunna væri að vísa í, Banka­sýslan og sölu­ráð­gjafar, snú­ist í raun um við­skipta­mál og hafi ekk­ert með hina eig­in­legu sölu rík­is­eign­ar­innar að gera.

„Hérna er vænt­an­lega verið að gefa í skyn að þarna séu menn að kaupa sér ein­hverja vel­vild til þess að fá að taka þátt í sölu­með­ferð­inni og þiggja fyrir það ein­hverja þóknun. Það er stjórn Banka­sýsl­unnar sem ber ábyrgð á heild­ar­eft­ir­liti með slíkri samn­inga­gerð og mögu­legum hags­muna­á­rekstrum sem kunna að skap­ast.“

„En stutta svarið við því hvort það sé heppi­legt eða æski­legt að um sé að ræða gjafir, þókn­anir að ein­hverju tagi, hvort sem það er að það er í formi hádeg­is­verðar eða öðrum hætti, þá er stutta svarið mitt að það ber að fara mjög var­lega í öllu slíku,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár