Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri stofnunarinnar.
Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, og Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri stofn­un­ar­innar. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Bankasýslan þáði hádegis- og kvöldverði, vínflöskur, konfekt, kokteilasett og einn flugeld

Minn­is­blaði um þær gjafir sem for­stjóri og starfs­menn Banka­sýslu rík­is­ins hafa þegið af fjár­mála­fyr­ir­tækjum hefur verið skilað til nefndar Alþingis, næstum sex mán­uðum eftir að það var boðað.

„Við fengum þarna ein­hverjar vín­flöskur og flug­elda og konfekt­kassa. Svo nátt­úru­leg eigum við ein­hverja hádeg­is­verði og kvöld­verði með ráð­gjöfum og svo fram­veg­is. En ekk­ert ann­að.“ Þetta sagði Jón Gunnar Jóns­son, for­stjóri Banka­sýsl­unn­ar, þegar Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, spurði hann á opnum fundi fjár­laga­nefndar þann 27. apríl hvort hann hefði þegið boð, gjafir, risnu eða annað slíkt í kjöl­far eða í aðdrag­anda beggja útboða sem fram hafa farið með hluti rík­is­ins í Íslands­banka.

Nefnd­ar­menn fóru í kjöl­farið fram á frek­ari svör um málið og Jón Gunnar sagð­ist ætla að taka saman minn­is­blað um þessar gjafir og greiddu hádeg­is­verð­i. Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður stofn­un­ar­innar, sagði við sama til­efni að hann hefði ekki þegið neinar gjafir.

Það minn­is­blað liggur nú fyrir næstum hálfu ári eftir að fjár­laga­nefnd­ar­fund­ur­inn fór fram. Minn­is­blaðið, sem er dag­sett 7. októ­ber og er tvær blað­síður, var sent á alla sem sitja í fjár­laga­nefnd. Kjarninn hefur það undir höndum.

Fund­ur­inn í nefnd­inni kom til vegna mik­illar gagn­rýni á sölu á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka 22. mars síð­ast­lið­inn á 52,65 millj­arða króna. Alls 207 fjár­festar fengu þá að kaupa hluti á verði sem var sam­an­lagt 2,25 millj­örðum króna undir mark­aðsvirði bank­ans í lok­uðu útboði sem fór fram sam­kvæmt til­boðs­leið.

20 hádegisverðir en ekki tilgreint hvað þeir kostuðu

Í minn­is­blað­inu kemur fram að frá 23. apríl 2021 og til 13. apríl 2022 átti Banka­sýsla rík­is­ins 20 vinnufundi þar sem veit­ingar voru í boði með ýmsum fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Þessa fundi átti stofn­unin með eft­ir­töldum fjár­mála­fyr­ir­tækjum: ABN AMRO, Arctica Finance, Barclays, Fossar mark­aðir, Íslands­banki, Íslensk verð­bréf, Íslenskir fjár­festar (nú ACRO verð­bréf), Kvika banki og Lands­bank­inn. Í minn­is­blað­inu segir að þessir vinnufundir hafi yfir­leitt átt sér stað í hádeg­inu. Þeir hafi aldrei verið kvöld­verð­ar­fundir og „var um að ræða hóf­legar veit­ingar í sam­ræmi við það“.

Salan á Íslandsbanka var valin viðskipti ársins hjá Innherja, viðskiptavefs á vegum Sýnar. Jón Gunnar Jónsson, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Bjarni Benediktsson tóku saman við verðlaunum vegna þessa. Mynd: Skjáskot
Salan á Íslands­banka var valin við­skipti árs­ins hjá Innherja, við­skipta­vefs á vegum Sýnar. Jón Gunnar Jónsson, Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, og Bjarni Bene­dikts­son tóku saman við verð­launum vegna þessa. Mynd: Skjáskot

Í minn­is­blað­inu er ekki til­greint hver kostn­að­ur­inn við þessa fundi var en sagt að hann hafi verið „óveru­legur“. Þar segir að efni fund­anna hafi meðal ann­ars verið „kynn­ing á starf­semi við­kom­andi fjár­mála­fyr­ir­tækis, fram­kvæmd frumút­boðs, fyr­ir­ætl­anir rík­is­sjóðs sem hlut­hafa um frek­ari sölu (eftir að þær höfðu verið kunn­gjörðar með fram­lagn­ingu fjár­laga­frum­varps), áhugi og bol­magn fjár­festa, þróun á hluta­bréfa­verði og afkomu Íslands­banka, staða og horfur á íslenskum fjár­mála­mark­aði og í íslensku efna­hags­lífi.“

Tveir kvöldverðir á sem kostuðu samtals 82 þúsund á mann

Jón Gunnar, for­stjóri Banka­sýsl­unnar, og starfs­menn hennar þáðu boð í tvo kvöld­verði í tengslum við frumút­boð á hlutum í Íslands­banka sum­arið 2021, þegar íslenska ríkið seldu 35 pró­sent hlut og skráði bank­ann í kjöl­farið á markað.

Sá fyrri var hald­inn 24. sept­em­ber 2021 til að fagna frumút­boð­inu. Hann var með fyr­ir­tækja­ráð­gjöf og verð­bréfa­miðlun Íslands­banka. Kostn­aður á hvern þátt­tak­anda var 34 þús­und krónur og reikn­ing­ur­inn var greiddur af Íslands­banka.

Rúmum tveimur mán­uðum síðar, nánar til­tekið 30. nóv­em­ber 2021, fóru for­stjóri og starfs­menn Banka­sýslu rík­is­ins aftur út að borða, nú í boði umsjón­ar­að­ila frumút­boðs­ins, tveggja fjár­mála­ráð­gjafa og þriggja lög­fræði­legra ráð­gjafa. Kostn­aður á hvern þátt­tak­anda í kvöld­verð­inum var 48 þús­und krónur. Reikn­ing­ur­inn var greiddur af þremur umsjón­ar­að­ilum útboðs­ins. Þar er um að ræða Íslands­banka, Citibank og JP Morgan.

Þennan sama dag, 30. nóv­em­ber, hafði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kynnt fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2022, þar sem meðal ann­ars voru boðuð áform um að selja eft­ir­stand­andi 65 pró­senta hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka á árunum 2022 og 2023.

Rauðvín, kokteilasett og flugeldur

Starfs­menn Banka­sýslu rík­is­ins fengu einnig nokkrar tæki­fær­is­gjafir um jól og ára­mót 2021 til að þakka fyrir gott sam­starf í tengslum við frumút­boðið fyrr á árinu.

ACRO verð­bréf gaf starfs­mönnum stofn­un­ar­innar eina vín­flösku sem met­inn er á fjögur þús­und krónur og Íslensk verð­bréf, sem var valið til að vera einn sölu­ráð­gjafa Banka­sýsl­unnar við lok­aða útboðið á hlutum í Íslands­banka í mars 2022, gaf þeim tvær rauð­víns­flöskur sem metnar voru sam­tals á átta þús­und krónur.

Lands­bank­inn gaf þeim konfekt­kassa sem kost­aði 4.067 krónur og lög­manns­stofan BBA/Fjeldco gaf starfs­mönn­unum kok­teila­sett í jóla­gjöf en kostn­aður við hverja gjöf var um 20 þús­und krónur.

Þá gaf verð­bréf­miðlun og fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Íslands­banka það sem Banka­sýslan kallar staðl­aða jóla­gjöf bank­ans til stærri við­skipta­vina þess­ara deilda, en um er að ræða eina létt­víns­flösku og smá­rétti þar sem kost­aði um 14 þús­und krónur hver.

Flug­eld­ur­inn sem fengin var að gjöf kost­aði svo 2.500 krónur. Hann var, sam­kvæmt minn­is­blað­inu, gjöf frá vini Jóns Gunnars sem starfar hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki. Ekki er til­greint í minn­is­blað­inu hjá hvaða fjár­mála­fyr­ir­tæki mað­ur­inn starfar né hver hann er en sagt að þessi gjöf hafi „verið stað­fest sem vina­gjöf af við­kom­andi ein­stak­lingi.“

Í vinnslu í marga mánuði

Kjarninn hefur lengi leitað eftir upp­lýs­ingum um það hvort stjórnar- eða starfs­menn Banka­sýslu rík­is­ins hafi þegið gjafir eða boðs­ferðir. Fyrsta fyr­ir­spurn þess efnis var send 10. apríl síð­ast­lið­inn eða fyrir hálfu ári síðan. Í henni var spurt: „Hafa stjórn­ar­menn eða starfs­menn þegið ein­hverjar gjafir eða boðs­ferðir frá ein­hverjum þeirra ráð­gjafa sem ráðnir voru til að sinna sölu­með­ferð á hlut í Íslands­banka í síð­asta mán­uð­i?“

Flugeldurinn sem forstjóri Bankasýslunnar fékk að gjöf kostaði um 2.500 krónur.
Flug­eld­ur­inn sem for­stjóri Banka­sýsl­unnar fékk að gjöf kost­aði um 2.500 krónur.

Þegar ekk­ert svar hafði borist níu dögum síðar var fyr­ir­spurnin ítrek­uð. Þegar ekk­ert svar hafði enn borist í lok apr­íl­mán­aðar og í ljósi þess að stofn­unin svar­aði ekki fyr­ir­spurn frá fjöl­miðli með neinum hætti var ákveðið að vísa henni til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem Banka­sýsla rík­is­ins heyrir und­ir, þann 22. apríl síð­ast­lið­inn. Ekk­ert svar hefur heldur borist það­an.

Í byrjun júlí var fyr­ir­spurnin aftur ítrekuð og þá fékkst eft­ir­far­andi svar frá Jóni Gunnari: „Þetta er í vinnslu.“ Nú, þremur mán­uðum síðar, hefur Banka­sýslan skilað af sér umræddu minn­is­blaði.

Hagsmunarárekstrar til skoð­unar hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands er að skoða hátt­semi ein­hverra þeirra fimm inn­lendu sölu­að­ila sem Banka­sýslan valdi til að vinna að útboð­inu. Heim­ildir Kjarn­ans herma að þar sé verið að skoða mögu­lega hags­muna­á­rekstra, meðal ann­ars vegna þess að starfs­menn sumra sölu­ráð­gjafa hafi sjálfir tekið þátt í útboð­in­u og við­skipti sem áttu sér stað með hluta­bréf í aðdrag­anda útboðs­ins.

Þegar listi yfir kaup­endur á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka var birtur kom í ljós að alls átta starfs­menn Íslands­banka tóku þátt í útboð­inu og stærsti eig­andi Íslenskra Verð­bréfa, sem er einnig eig­in­kona for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, keypti auk þess hlut.

Aðrir inn­lendir sölu­ráð­gjafar voru Fossar mark­að­ir, sem var aðal inn­lendi sölu­ráð­gjafi Banka­sýsl­unn­ar, ACRO verð­bréf og Lands­bank­inn.

Í minn­is­blaði Banka­sýsl­unnar til fjár­laga­nefnd­ar, sem birt var seint í apríl 2022, kom fram að það væri stofn­un­inni „mikil von­brigði að strax í kjöl­far útboðs­ins hefðu vaknað spurn­ingar um mögu­lega bresti í fram­kvæmd þess, m.a. hugs­an­lega hags­muna­á­rekstra hjá aðilum sem stóðu að fram­kvæmd söl­unnar og mögu­lega ófull­nægj­andi athugun á hæfi fjár­festa sem tóku þátt í útboð­in­u.“

Athuga­semd rit­stjórnar: Í upp­runa­legri útgáfu stóð að kvöld­verð­irnir sem starfs­menn Banka­sýsl­unnar þáðu hefðu verið með sex daga milli­bili. Það er ekki rétt og hefur verið upp­fært. Þeir áttu sér stað 24. sept­em­ber 2021 og 30. nóv­em­ber 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár