Lögreglan í Ferguson skaut mann þegar Michael Brown var minnst

Einn er lífs­hættulega slasaður eftir að hafa orðið fyrir byssu­skoti lögreglu­þjóns, í mótmælum í borginni Ferguson í Missouri í Banda­ríkjunum í nótt. Mótmælin voru í tilefni af því að eitt ár er liðið frá því að hvítur lögreglu­maður í borginni skaut ungan, svartan mann til bana, Michael Brown að nafni. Brown var óvopnaður þegar lögreglan skaut hann.

Í umfjöllun New York Times segir að mótmælin í gærdag og nótt hafi lengst af farið frið­samlega fram. Skot­hvellir heyrðust þegar leið á kvöldið. Á sama tíma voru fjöl­miðlar að taka viðtal við lögreglu­stjórann í Ferguson, þar sem hann tjáði sig um mótmælin en þurfti að stoppa vegna skot­hvella.



Óhugananlegt myndband var birt á Twitter þar sem maðurinn sem var skotinn af lögreglunni liggur hreyfingar­laus á jörðinni. Í umfjöllun New York Times segir að lögreglan hafi á endanum komið manninum til aðstoðar og virtist sem hann væri með meðvitund þegar hann var færður inn í sjúkrabíl. Maðurinn liggur nú þungt haldinn á sjúkra­húsi, samkvæmt frétt New York Times.

Efni sem var innfellt hér (graphics8.nytimes.com) er ekki lengur aðgengilegt.

pic.twitter.com/dsrEDWV1Bs

— Search4Swag (@search4swag) August 10, 2015


Dauði Michael Browns fyrir ári síðan markaði upphafi mikilla mótmæla í Banda­ríkjunum, í Ferguson og víðar, þar sem mótmælendur hafa barist fyrir réttindum svartra borgara og gegn lögreglu­ofbeldi, meðal annars undir yfir­skriftinni „Líf svartra skiptir máli“. Ástandið í Ferguson var sérstak­lega eldfimt í nóvember á síðasta ári, þegar tilkynnt var um þá ákvörðun kviðdóms að lögreglu­maðurinn sem skaut Brown yrði ekki ákærður fyrir manndráp. Í kjölfarið brutust út mótmæli og óeirðir í Ferguson sem stóðu í marga daga. Á þeim tíma var víðar mótmælt í Banda­ríkjunum, meðal annars í New York borg og Chicago.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár