Auðkenni smalaði sér í yfirburðarstöðu með hjálp ríkisins, rukkar nú hærra verð en aðrir

Skulda­leið­réttingin var notuð til að smala neytendum í viðskipti við einka­fyrirtækið Auðkenni sem hefur einokunar­stöðu í útgáfu rafrænna skilríkja. Auk þess var fyrir­tækjum þröngvað í viðskipti við fyrir­tækið, innleiðingar­ferli rafrænna skilríkja illa undirbúið og það hafði neikvæð áhrif á frjálsa samkeppni. Í ljósi þeirrar yfirburðar­stöðu sem hin öfluga smölun viðskipta­vina, með dyggri aðstoð ríkis­valdsins, hefur skilað Auðkenni getur fyrir­tækið rukkað mun hærra verð fyrir þjónustu sína en aðrir sem bjóða upp á rafræn skilríki. Þetta segir Ólafur Stephensen, framkvæmda­stjóri Félags atvinnu­rekenda, í grein í Morgun­blaðinu í dag.

Neytendur munu á endanum borga


Auðkenni er fyr­ir­tæki sem er í eigu Símans, Teris, Arion banka, Íslands­banka og Lands­banka. Þeir neyt­endur sem nýttu sér skulda­leið­rétt­ingu rík­is­stjórn­ar­innar þurftu að verða sér úti um raf­ræn skil­ríki til að geta sam­þykkt hana. Til að byrja með voru skil­ríkin, sem fólk getur notað í far­símum sínum, ókeypis en Auðkenni hefur síðan gefið út að fyr­ir­tækið ætli að rukka fyrir þau. Neyt­endur verða ekki rukk­aðir beint heldur verður lagt gjald á þau fyr­ir­tæki sem þurfa að bjóða við­skipta­vinum sínum, meðal ann­ars fjar­skipta­fyr­ir­tæki sem eru í sam­keppni við einn eig­anda Auð­kennis, Símann.

Ólafur segir í grein sinni að það blasi því við að neytendur muni bera sjálfir kostnaðinn af útgáfu og notkun skilríkjanna. „Athyglin hefur einkum beinzt að því að neytendum hafi, í krafti loforðs um skulda­leið­réttingu, verið smalað í viðskipti við einka­fyrirtæki sem í raun hefur einokunar­stöðu í útgáfu rafrænna skilríkja. Ferlið er þó ekki síður gagnrýni vert vegna þess hvernig fyrir­tækjum var þröngvað í viðskipti við Auðkenni, hversu illa ferlið var undirbúið og hversu neikvæð áhrif það hefur á frjálsa samkeppni.“

Gengið til samninga án útboðs


Auðkenni hefur ekki einka­rétt á útgáfu raf­rænna skil­ríkja en önnur fyr­ir­tæki sem átt hafa slíkar lausnir til­búnar fengu ekki að bjóða í upp­settn­ingu þeirra í tengslum við skulda­leið­rétt­ing­una, en í gegnum hana hefur orðið lang mest aukn­ing not­enda raf­rænna skil­ríkja. Þess í stað var gengið til samn­inga við Auðkenni og Advania um þá fram­kvæmd án útboðs.

Af hálfu Auðkennis hafa bæði verið í boði rafræn skilríki í snjall­síma og á plast­kortum. Ólafur rifjar upp að við framkvæmd skulda­leið­réttingarinnar hafi komið í ljós að plast­kortin virkuðu ekki sem skyldi hjá þeim tugum þúsunda netnotenda sem nota netvafra frá Apple; ekki var hægt að nota þau til að samþykkja skulda­leið­réttinguna af því að rafræna undir­skriftin virkar ekki. „Þetta staðfestu tæknimenn ríkis­skattstjóra. Auðkenni bauð jafnframt upp á sjálfs­afgreiðslu fyrir skilríki á síma á vefnum. Sú þjónusta virkar ekki hjá þeim sem nota stýri­kerfi frá Apple. Fyrir utan þau óþægindi sem þetta olli neytendum er það að sjálfsögðu samkeppnis­hindrun gagnvart sölu­aðilum Apple-vara þegar torveldara er fyrir notendur þeirra að nálgast opinbera þjónustu rafrænt en notendur tækja keppinaut­anna.

Síma­fyrir­tækjunum var af hálfu ríkis­skattstjóra og fjármála­ráðuneytisins gert að búa kerfi sín undir innleiðingu rafrænu skilríkjanna með afar skömmum fyrirvara. Höfum í huga að í þeim hópi voru keppinautar Símans, eins af eigendum Auðkennis, sem hafði haft nægan tíma til að prófa tækni­lausnina í samstarfi við fyrir­tækið. Fjarskipta­fyrirtækin þurftu að leggja í gríðar­legan kostnað við að skipta út SIM-kortum viðskipta­vinanna til þess að þeir gætu nýtt sér skulda­leið­réttinguna. Nova ehf. þurfti að skipta um fram­leiðanda SIM-korta með ærinni fyrirhöfn og skömmum fyrirvara.

Að minnsta kosti af tveimur ástæðum er þetta samkeppnis­hindrun. Annars vegar er síma­fyrirtæki í raun stillt upp við vegg og því sýnt fram á að það eigi á hættu að missa viðskipta­vinina annað ef það býður ekki »ríkis­lausnina« á rafrænni auðkenningu og undir­skrift. Um leið er viðskipta­vinum farsíma­fyrirtækja torveldað að skipta um síma­fyrirtæki. Til þessa hefur verið lagt upp úr því að númera­flutningur sé einfaldur og geti átt sér stað á nokkrum mínútum. Viðskipta­vinur, sem hefur fengið rafræn skilríki og vill skipta um símafélag, þarf hins vegar að gera sér ferð í bankann og láta endur­virkja rafrænu skilríkin á símanum sínum. Þetta hindrar samkeppni á farsíma­markaði.“

Erfitt að senda reikninga til þeirra sem eru með frelsiskort


Auðkenni gaf nýverið út gjald­skrá þar sem boðað er að fjar­skipta­fyr­ir­tæki verði rukkuð um 136 krónur á mán­uði fyrir hvern við­skipta­vin sem er með raf­ræn skil­ríki.

Ólafir segir að í ákafanum við að safna viðskipta­vinum undir leið­réttingar­pressunni virðist Auðkenni hafa látið það sér í léttu rúmi liggja þótt til dæmis Nova hafi ekki treyst sér til dæmis ekki til að undir­gangast samnings­skilmála um gjaldtöku af félaginu og þar með eftir atvikum af viðskipta­vinum þess. „Nova benti á að stór hluti viðskipta­vina síma­félagsins væri með svokölluð frelsis­kort og fengi enga reikninga. Hvernig á símafélag að rukka slíka viðskipta­vini fyrir rafræn skilríki? Er hægt að ætlast til að það beri kostnaðinn af þeim sjálft?

Það virðist að flestu leyti eðlilegra að viðskipta­sambandið sé á milli áskrifanda rafrænu skilríkjanna og Auðkennis sjálfs. Viðskipta­vinurinn fengi þá reikning frá Auðkenni og fyrir­tækið leigði pláss á SIM-kortum fjarskipta­fyrir­tækjanna. Viðskipta­vinurinn er vafalaust reiðu­búinn að greiða fyrir þessa þjónustu ef hann sér hagræði og þægindi í henni. Það er að minnsta kosti fráleitt að bankarnir, sem með rafrænum skilríkjum hafa sparað sér kostnað vegna auðkennis­lykla handa viðskipta­vinum sínum, velti honum beina leið yfir á fjarskipta­fyrirtækin.

Í gjaldskrá Auðkennis er sömuleiðis boðað að þjónustu­veitendur, þ.e. fyrirtæki og stofnanir sem nýta lausn fyrir­tækisins til að láta viðskipta­vini sína auðkenna sig, verði rukkaðir um 500.000 krónur á mánuði fyrir þjónustuna. Það er miklu hærri upphæð en keppinautar Auðkennis bjóða sumir hverjir fyrir svipaða þjónustu, en gjaldskráin er hugsanlega sett fram í trausti þess að fyrir­tækið hafi þegar náð yfirburða­stöðu í krafti hinnar öflugu smölunar viðskipta­vina til þess með dyggri aðstoð ríkis­valdsins.“

Ólafur beinir að lokum fjórum spurningum til Auðkennis og eigenda þess:


  1. Hvað mun kosta fyrirtæki og stofnanir að nýta sér möguleika á auðkenningu viðskipta­vina? Eru sex milljónir á ári hið raun­verulega verð?



  1. Hvernig hyggst Auðkenni semja við fjarskipta­fyrirtæki vegna áskrifenda í fyrir­fram­greiddri þjónustu?



  1. Stendur til að áskrifandinn eigi skilríkin og geti haft þau með sér á milli síma­fyrirtækja með einfaldri tilkynningu, t.d. á vef Auðkennis?



  1. Munu bankarnir opna fyrir fleiri auðkennis­lausnir en frá sínu fyrirtæki í heima­bönkum sínum?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár