Tölvuleikjaspilarar sendir í lyfjapróf

Ein stærsta tölvuleikja­deild heims, the Electronic Sports League (ESL), hefur ákveðið að tölvuleikja­spilarar muni framvegis gangast undir lyfjapróf fyrir þátttöku í móti. ESL hyggst hefja sýna­tökuna á fyrir­huguðu tölvuleikja­móti í ágúst, en deildin ákvað að herða keppnis­reglur sínar eftir að þekktir tölvuleikja­spilarar gortuðu sig af því nýverið að hafa neytt lyfseðil­skyldra lyfja við athyglis­bresti og ofvirkni á tölvuleikja­móti til að skerpa á einbeitingunni í skot­leiknum Counter Strike. Frétta­miðillinn New York Times greinir frá málinu.

ESL hefur samið við tvö þekkt fyrirtæki um útfærslu og framkvæmd lyfja­prófanna, sem og gerð lyfja­reglna fyrir tölvuleikjamót á vegum deildarinnar. Annað fyrir­tækið hefur komið að lyfja­prófum fyrir hjólreiðamót, Ólympíu­leikanna og aðra stærri íþrótta­viðburði.

Hertari reglur ESL gefa sterklega til kynna hversu mikil alvara er hlaupin í tölvuleikja­spilun, en verðlaun fyrir efstu sæti á tölvuleikja­mótum geta hlaupið á milljónum króna. Á þessu ári er gert ráð fyrir að tekjur af tölvuleikja­keppnum fari upp fyrir 250 milljónir Bandaríkja­dala. Verðlaunafé á árinu 2015 er áætlað yfir 70 milljónir Bandaríkja­dala, eða hátt í fimmtán milljarða íslenskra króna.

„Við viljum að allir sitji við sama borð og stuðla að heiðarlegri keppni,“ hefur the New York Post eftir talsmanni ESL. Þá ber að geta þess að tölvuleikja­móts­haldarinn hefur bannað notkun lyfja í keppnum hngað til, en í móts­reglunum voru hvorki tilgreind lyfin sem ekki máti neyta, né uppi virkt eftirlit með lyfja­notkun keppenda.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár