Kínverski seðlabankinn lækkar stýrivexti til að bregðast við miklum lækkunum

Seðla­banki Kína hefur lækkað stýri­vexti um 0,25 prósentu­stig, í 4,6 prósent. Sömuleiðis hefur bindi­skylda verið lækkuð um 0,5 prósentu­stig. Þetta er gert eftir miklar lækkanir á hlutabréfa­markaðnum undan­farna daga.

Stýri­vaxta­lækkunin er sú fimmta sem seðla­bankinn ræðst í frá því í nóvember í fyrra, eftir að vextirnir höfðu verið stöðugir um langt skeið, eins og sjá má á grafi sem Bloomberg frétta­stofan birti á Twitter fyrir skömmu. Bloomberg segir þessar lækkanir sýna fram á þá stefnu Kínverja að reyna hvað þeir geta til að ná markmiðum sínum um 7% hagvöxt á þessu ári. Bankinn segir að ráðist sé í lækkunina til að styðja við „sjálfbæra og heilbrigða þróun í raun­hagkerfinu.“


China's interest rate move is its fifth cut this year, after a long period of stability http://t.co/ke1kXAAoEE pic.twitter.com/zLlYpMJtaL


— Bloomberg Business (@business) August 25, 2015

Tilkynningin um stýri­vaxta­lækkunina hefur vakið jákvæð viðbrögð á mörkuðum, og hækkanir hafa orðið á evrópskum mörkuðum eftir miklar lækkanir í gær. FTSE 100 vísitalan í London hækkaði um 3,5% eftir tilkynninguna, Dax vísitalan í Þýska­landi um 4,3% og Cac vísitalan í Frakk­landi um 4,5%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár