Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Málefni flótta­manna eru áberandi á listanum yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag, að mati Business Insider.


  1. Hækkanir urðu á kínverska hlutabréfa­markaðnum við opnun markaða í dag, eftir miklar lækkanir fyrr í vikunni.

  2. Um sjötíu flótta­menn fundust látnir í flutningabíl í Austur­ríki í gær. Þeir höfðu kafnað.

  3. Óttast er að allt að tvö hundruð manns hafi látist eftir að tveir bátar sukku á Miðjarðar­hafinu í nótt. Í bátunum voru 500 flótta­menn að reyna að komast til Ítalíu frá Líbýu.

  4. Allt háskóla­svæðið í ríkis­háskólanum í Savannah var lokað í gærkvöldi eftir að skot heyrðust þar. Einn nemandi var myrtur í skot­árásinni.

  5. Mats­fyrirtækið Moody's hefur lækkað hagvaxtarspá sína fyrir heiminn árið 2016 niður í 2,8% úr 3,1%, að hluta til vegna ástandsins í Kína.

  6. Salva Kiir, forseti Suður-Súdan, hefur loks skrifað undir friðar­samkomulag sem mun formlega binda endi á nærri tveggja ára borgara­stríð.

  7. Tugþúsundir Gvatemala mótmæltu í gær og kröfðust þess að Otto Perez, forseti landsins, segði af sér. Perez hefur neitað að segja af sér en hann er sakaður um víðtæka spillingu.

  8. Facebook hefur tilkynnt að einn milljarður manna hafi notað samfélags­miðilinn á mánudag.

  9. Barack Obama Bandaríkja­forseti heimsótti New Orleans í gær til að minnast þess að áratugur er liðinn frá því að borgin varð illa úti í felli­bylnum Katrínu.

  10. Usain Bolt sigraði í 200 metra hlaupi á heims­meistara­mótinu í frjálsum íþróttum í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár