Flokkur

Innlent

Greinar

Fréttir

Lyk­il­máli Bjartrar fram­tíðar í stjórn­ar­sátt­mála ekki fylgt eftir með laga­setn­ingu

Stefnu rík­is­stjórn­ar­innar um að efna ekki til íviln­andi fjár­fest­ing­ar­samn­inga vegna upp­bygg­ingar meng­andi stór­iðju verður ekki fylgt eftir með laga­breyt­ingum. Björt Ólafs­dóttir full­yrðir að í lögum um íviln­anir til nýfjár­fest­inga sé „talað um nátt­úru- og umhverf­is­vernd“ og telur að það nægi.
Fréttir

Ólöf Nordal sýndi ein­læga virð­ingu og naut virð­ingar þvert á stjórn­mála­flokka

Ólöf Nordal er kvödd af ein­lægum sökn­uði eftir feril og lífs­hlaup sem skap­aði henni virð­ingu og vel­vild. Einn þeirra fyrr­ver­andi þing­manna sem hafa reynslu af störfum Ólafar Nordal lýsir þeirri ein­lægu virð­ingu sem hún sýndi, „ekki þess­ari virð­ingu sem okkur er öllum skylt að sýna, heldur langt umfram nokkrar kröfur þings eða þjóðar“.
FréttirACD-ríkisstjórnin

Fannst áhuga­vert að „hinar hag­sýnu hús­mæður“ sýndu rík­is­fjár­málum áhuga – biðst afsök­unar

Sex konur og þrír karlar ræddu um verk­lag við opin­ber fjár­mál á Alþingi í gær. „Mér finnst áhuga­vert hverjir það eru sem sýna mestan áhuga á þessum umræðum, það erum við Njáll Trausti og hinar hag­sýnu hús­mæður sem eru í stórum hópum hér inni,“ sagði Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra.
Fréttir

Fann fyrir létti þegar dóttirin fór í fang­elsi

End­ur­reisn geð­heil­brigð­is­kerf­is­ins er lyk­ill­inn að því að fækka föngum, segir móðir konu á fer­tugs­aldri, sem afplánar núna dóm í fang­els­inu á Hólms­heiði. Dóttir hennar hefði þurft á aðstoð að halda þegar hún var barn og ung­lingur en fékk ekki við­eig­andi aðstoð og leit­aði í fíkni­efni til að deyfa sárs­auk­ann sem hún sat uppi með.

11 mín. lestur

Rannsókn

Fangelsi án lausnar

Í fang­els­inu á Hólms­heiði eru konur lok­aðar inni vegna brota sem þær frömdu undir áhrifum áfengis- og vímu­efna. Fá úrræði eru hins vegar til staðar inni í fang­els­inu til þess að mæta þessum vanda, þar sem einn sál­fræð­ingur sinnir öllum föngum í fang­elsum og eng­inn með­ferð­ar­gangur er fyrir konur. Það er ekki heldur neitt sem tekur við þeim þegar þær ljúka afplánun, og þær lýsa því hvernig þær fara beint úr fang­elsi á göt­una og þaðan aftur inn í fang­elsið. Þetta er víta­hringur sem þú fest­ist í, segja þær.

55 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár