Lykilmáli Bjartrar framtíðar í stjórnarsáttmála ekki fylgt eftir með lagasetningu

Stefnu rík­is­stjórn­ar­innar um að efna ekki til íviln­andi fjár­fest­ing­ar­samn­inga vegna upp­bygg­ingar meng­andi stór­iðju verður ekki fylgt eftir með laga­breyt­ingum. Björt Ólafs­dóttir full­yrðir að í lögum um íviln­anir til nýfjár­fest­inga sé „talað um nátt­úru- og umhverf­is­vernd“ og telur að það nægi.

Lykilmáli Bjartrar framtíðar í stjórnarsáttmála ekki fylgt eftir með lagasetningu

Stefnu rík­is­stjórn­ar­innar um að efna ekki til íviln­andi fjár­fest­ing­ar­samn­inga vegna upp­bygg­ingar meng­andi stór­iðju verður ekki fylgt eftir með laga­breyt­ingum.

Þetta kom fram í svörum Bjartar Ólafs­dóttur, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í gær.

Ráðherra full­yrti að í ramma­lög­gjöf um íviln­anir til nýfjár­fest­inga væri „talað um nátt­úru- og umhverf­is­vernd“. Slík orð er hvergi að finna í lög­unum eins og bent hefur verið á. Þar er ein­ungis að finna skil­yrði um að verk­efni skuli stand­ast lög um meng­un­ar­varnir og að liggja skuli fyrir hvort fram­kvæmdir séu háðar umhverf­is­mati. Verkefni sem Björt hefur vísað til sem „meng­andi stór­iðju“, svo sem álver og kís­il­málm­ver, geta hæg­lega stað­ist slík skil­yrði.

Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði Björt um stefnu rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart meng­andi stór­iðju og hvernig stefnan yrði fram­kvæmd: 

„Íviln­anir til nýfjár­fest­inga eru veittar sam­kvæmt ramma­lög­gjöf um íviln­anir frá árinu 2015. Þar eru talin upp ýmis skil­yrði sem verk­efni þarf að upp­fylla til að geta notið íviln­ana. Hvergi er vikið að skil­grein­ingu á meng­andi stór­iðju í lög­unum. Hvernig á að fram­fylgja því að meng­andi stór­iðja fái ekki íviln­anir á grund­velli laga sem í gildi eru? Nær hug­takið yfir verk­efni sem falla undir við­skipta­kerfi ESB um los­un­ar­heim­ildir sem Ísland er aðili að? Slík verk­efni geta farið í gegnum mat á umhverf­is­á­hrifum og fengið fram­kvæmda- og starfs­leyfi á grund­velli íslenskra laga. Má skilja yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar svo að hér megi setja af stað ný verk­efni sem gætu kall­ast meng­andi stór­iðja en þau fái bara ekki fjár­fest­ing­ar­samn­ing með íviln­unum?“

Í svari sínu sagð­ist Björt ekki telja laga­breyt­ingu nauð­syn­lega. „Ég tel svo ekki vera eftir að við skoð­uðum mjög vel með atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu nákvæm­lega þennan ramma­samn­ing um nýfjár­fest­ingar. Í honum koma vissu­lega ekki fram orðin meng­andi stór­iðja en það sem þó kemur þar fram og rímar mjög vel við áherslur okkar, þá grænu atvinnu­stefnu sem nú er tekin við, er að í ramma­lög­gjöf­inni er talað um nátt­úru- og umhverf­is­vernd. Við ætlum að draga þá þætti ofar og hafa þá ofar en hina. Sú þriggja manna nefnd sem er í ráðu­neyt­inu hefur fengið þau til­mæli og veit að það er ekki í stefnu rík­is­stjórn­ar­innar að veita meng­andi stór­iðju íviln­anir og hún ætlar ekki að gera það,“ sagði hún en svar­aði ekki þeirri spurn­ingu hvort gefið yrði grænt ljós á meng­andi stór­iðju án fjár­fest­ing­ar­samn­ings með íviln­unum. 

Oddný benti þá á að inn­lendir sem erlendir fjár­festar þyrftu á skýrum og fast­mót­uðum reglum að halda. „Því er svo mik­il­vægt að hæst­virtur ráð­herra og rík­is­stjórnin svari afdrátt­ar­laust hvernig og á hvaða laga­grund­velli hún ætlar að fram­fylgja því að meng­andi stór­iðja fái ekki fjár­fest­ing­ar­samn­inga við stjórn­völd þótt hún upp­fylli öll skil­yrði þess sam­kvæmt núgild­andi lögum,“ sagði hún og bætti við: „Fá þeir sem leita nú upp­lýs­inga skýr svör um lög, reglur og við­mið sem setja mörkin milli meng­andi stór­iðju og ann­arra verk­efna?“

Í svari sínu gerði Björt aftur að umtals­efni meintar máls­greinar um umhverfis- og nátt­úru­vernd í ramma­lög­gjöf um íviln­anir til nýfjár­fest­inga. „Svo getum við hátt­virtur þing­maður farið yfir ramma­lög­gjöf­ina saman og fundið þar máls­greinar sem fjalla sér­stak­lega um umhverfis- og nátt­úru­vernd og hvernig við getum alveg látið það ríma við þá ramma­lög­gjöf sem nú er í gildi og stefnu­yf­ir­lýs­ingu þess­arar rík­is­stjórnar, sem er jú allrar rík­is­stjórn­ar­innar, ekki sér­stakra ráð­herra. Þótt þeir eigi heima í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu er það sami stjórn­ar­sátt­máli sem á heima þar og í ráðu­neyti mínu, umhverf­is­ráðu­neyt­inu,“ sagði hún. Áður hefur Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra sagt að yfir­lýs­ingin gegn meng­andi stór­iðju hafi ekki áhrif á nein verk­efni sem séu á borði síns ráðu­neytis. 

Ramma­lög­gjöfin um íviln­anir til nýfjár­fest­inga var sam­þykkt á Alþingi þann 29. júní árið 2015. Fjallað er um þá þriggja manna nefnd sem Björt vísar til í 4. gr. lag­anna og í 5. gr. er til­tekið hvaða skil­yrðum skuli full­nægt við mat á því hvort veita skuli ívilnun til nýfjár­fest­inga. Þar er hvergi „talað um umhverfis- og nátt­úru­vernd“ og engar slíkar máls­greinar er heldur að finna í öðrum ákvæðum lag­anna. 

Eitt af skil­yrð­unum í 4. gr., k-liður, kveður á um að „fyrir liggi upp­lýs­ingar um hvort fjár­fest­ing­ar­verk­efnið sé háð umhverf­is­mati sam­kvæmt lögum um mat á umhverf­is­á­hrifum, nr. 106/2000“. Í i-lið er sett það skil­yrði „að um nýfjár­fest­ingu sé að ræða og að tæki og bún­aður sem kemur til vegna hennar sé nýr eða nýlegur og upp­fylli skil­yrði laga um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir“. Orðalag lið­anna úti­lokar engan veg­inn að áfram verði veittar íviln­anir til þess sem kallað hefur verið meng­andi stór­iðja en slík verk­efni hafa oft­ast stað­ist umhverf­is­mat og upp­fyllt skil­yrði laga um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár