„Stór hluti þeirra sem eiga við fíknivanda að stríða eru viðkvæmar sálir. Þetta er fólk sem hefur ekki bolmagn til þess að takast á við vandamálin og leita því í vímuefni til þess að deyfa sig. Oft á tíðum er þetta þannig. Út á við virðist þetta fólk vera sterkt en það er skjöldur. Skjöldur fólks sem þarf að gæta þess að hleypa öðrum ekki of nærri sér. Þannig horfir þetta við mér,“ segir móðir konu sem situr í fangelsi. Konan vill ekki láta nafns síns getið af ótta við viðbrögðin. Hún óttast að fólk muni nota það gegn henni faglega að hún hafi alið af sér fanga. Þeir sem þekkja til vita að hún á dóttur sem er í rugli en enginn veit hvar dóttir hennar er núna. Dóttir hennar hefur einnig gætt þess að halda því leyndu, en rætt var við hana í grein um lífið í fangelsi …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir