Fangelsi án lausnar

Í fang­els­inu á Hólms­heiði eru konur lok­aðar inni vegna brota sem þær frömdu undir áhrifum áfengis- og vímu­efna. Fá úrræði eru hins vegar til staðar inni í fang­els­inu til þess að mæta þessum vanda, þar sem einn sál­fræð­ingur sinnir öllum föngum í fang­elsum og eng­inn með­ferð­ar­gangur er fyrir konur. Það er ekki heldur neitt sem tekur við þeim þegar þær ljúka afplánun, og þær lýsa því hvernig þær fara beint úr fang­elsi á göt­una og þaðan aftur inn í fang­elsið. Þetta er víta­hringur sem þú fest­ist í, segja þær.

Fangelsi án lausnar

Í des­em­ber þegar jóla­ljósin lýsa upp mið­bæ­inn umlykur mykrið fang­elsið á Hólms­heiði. Þar situr inni kona, nýkomin af göt­unni. Hún mætti þangað óbeðin, bank­aði upp á og bað um hjálp. Hún er ekki orðin þrí­tug en var að gef­ast upp á því að eiga engan sam­an­stað, föst í viðjum eit­ur­lyfja og glæpa, þar sem ekk­ert beið hennar nema geð­veiki eða dauði. Hún vissi að hún yrði að finna leið­ina út og það strax og lét því loka sig inni. Hún gerði það af ótta við dauð­ann.

Lét loka sig inni

„Ég er ekki vond mann­eskja,“ segir hún þar sem við sitjum í eld­hús­inu, „en þegar ég er í neyslu tekur stjórn­leysið yfir og ég geri við­bjóðs­lega hluti sem ég myndi ann­ars aldrei gera. Ég vil ekki meiða fólk eða særa það en þegar ég er í neyslu er ég stjórn­laus og veit ekk­ert hvað ég er að gera.“

Bára hefur verið í neyslu vímu­efna frá barns­aldri. Hún ólst upp við van­rækslu og afskipta­leysi, fékk aldrei að heyra að hún væri nokk­urs virði og sótti sér við­ur­kenn­ingu þar sem hún gat fengið hana. Þegar hún reyndi að hætta og hefja nýtt líf kynnt­ist hún krökkum sem voru komnir lengra og sökk enn dýpra. Á svip­uðum tíma og jafn­aldrar hennar voru að hefja fram­halds­skóla­nám var hún að hverfa úr sam­fé­lag­inu. Í neyslu hefur hún ítrekað brotið af sér og gert ljóta hluti á kostnað ann­arra, en situr inni fyrir smá­glæpi. Hún hefur beðist afsök­unar á því versta, reynt að bæta sig og snúa af þess­ari braut, en áföll og skortur á stuðn­ingi hjálpa ekki til. Hún hefur hvergi fengið hjálp­ina sem hún þarf.

„Þær koma oft inn mjög illa farnar, mun verr en karl­arnir.“

Konur koma verri inn

Konur sem koma í fang­elsi eru yfir­leitt mun verr staddar en karlar sem koma inn. „Þær eru illa farnar lík­am­lega og and­lega,“ segir fanga­vörður á vakt, Einar Andr­és­son. Hann datt inn í fanga­vörslu fyrir til­viljun, nýút­skrif­aður úr mennta­skóla að leita sér að sum­ar­vinnu rakst hann á félaga sinn fyrir utan Hegn­ing­ar­húsið, og er hér enn, 37 árum síðar. „Þær koma oft inn mjög illa farnar, mun verr en karl­arnir. Þarna úti virð­ast dóm­stólar og lög­regla hlífa konum við fang­elsi. Eitthvað í kerf­inu gerir það að verkum að strák­arnir detta mun hraðar inn en stelp­urnar. Ef þær til­heyra und­ir­heimunum er eins og þar sé þeim líka hlíft og strák­arnir taki frekar á sig sök­ina. Allt hjálp­ast þetta að þannig að þegar þær koma loks inn eru þær yfir­leitt langt gengnar.“ Þessu sam­sinnir varð­stjór­inn, Magnús Páll Ragn­ars­son, sem bætir því við að kerfið sé í raun byggt upp fyrir karla. „En það er rétt að þegar þær koma inn eru þær iðu­lega verr settar en karl­arnir, bæði á sál og lík­ama. Það er búið að mis­nota þær, brjóta á þeim og beita þær sál­arof­beldi á allan hátt. Ef þær til­heyra und­ir­heimunum má gera ráð fyrir því að í 90 pró­sent til­vika hafi þær verið mis­not­aðar með ein­hverjum hætti. Þess vegna eru þær brotn­ari og verr á sig  komnar en karl­arnir. Ég held að það þurfi að vera meiri skiln­ingur á aðstæðum kvenna í fang­elsi.

Að sjálf­sögðu koma líka hingað karlar sem hafa verið mis­not­aðir, lamdir og barðir og eru á svip­uðum stað og þær, eru búnir að missa allt og eiga ekk­ert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár