Framleiðsla í fiskeldi jókst um 169 prósent milli 2016 og 2020

Tekjur fisk­eld­is­fyr­ir­tækja hafa tvö­fald­ast frá 2016 og útflutn­ings­verð­mæti afurða þeirra hafa þre­fald­ast. Laun­þegum í geir­anum hefur hins vegar ekki fjölgað nálægt því jafn mikið, eða um 32 pró­sent á sama tíma­bili.

Sjókvíareldi á Vestfjörðum.
Sjó­kví­ar­eldi á Vest­fjörðum. Mynd: Arnarlax

Tekjur fisk­eld­is­fyr­ir­tækja á Íslandi rúm­lega tvö­föld­uð­ust milli áranna 2016 og 2020. Á fyrra árinu voru þær 14,4 millj­arðar króna en í fyrra voru þær 33,7 millj­arðar króna.

Á sama tíma­bili hefur fram­leiðslan auk­ist úr 15,1 þús­und tonnum á ári í 40,6 þús­und tonn, eða um 169 pró­sent. Langstærstur hluti fram­leiðsl­unnar er lax, eða 34 þús­und tonn.

Heild­ar­tap varð þó á starf­semi atvinnu­grein­ar­innar í fyrra upp á 62 millj­ónir króna, eftir að hún hafði skilað 1,7 millj­arða króna hagn­aði á árinu 2019.

Þetta kemur fram í Sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­gagna­grunni Deloitte ­sem kynntur var á Sjá­v­­­ar­út­­­vegs­deg­inum 2021 sem fór fram í morg­un. Gagna­grunn­ur­inn nær utan um rekstur 90 pró­sent sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi en fjár­hæð­irnar hafa verið upp­reikn­aðar til að end­ur­spegla allan geir­ann.

Útflutn­ings­verð­mæti fisk­eldis hafa að sama skapi auk­ist umtals­vert. Árið 2016 voru þau 9,6 millj­arðar króna, sam­kvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Næstu tvö ár á eftir voru útflutn­ings­verð­mætin á milli 13,1 til 13,7 millj­arðar króna en á árinu 2019 næstum tvö­föld­uð­ust þau frá fyrra ári og voru 25 millj­arðar króna.

Í fyrra bætt­ist svo enn við og heildar útflutn­ings­verð­mæti voru 29,3 millj­arðar króna, sem er meira en þrisvar sinnum það sem þau voru árið 2016.

Störfum fjölgað um 32 prósent

Þeim sem starfa í geir­anum hefur hins vegar ekki fjölgað jafn mikil. Árið 2016 voru laun­þegar sem störf­uðu við fisk­eldi alls 398 tals­ins. Næstum þrjú árin fjölg­aði þeim um 90 og í fyrra bættur 37 ný stöðu­gildi við.

Alls störf­uðu því 525 manns í fisk­eldi sem laun­þegar í fyrra, sem er 32 pró­sent fleiri en í árs­lok 2016.

Í kynn­ingu Deloitte í dag kom fram að efna­hags­reikn­ingur fisk­eldis sem atvinnu­greinar væri nokkuð sterkur. Í árs­lok í fyrra var eigið fé geirans 36 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið 52 pró­sent. Skuldir allra fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­anna sem eru með starf­semi á Íslandi voru á sama tíma 34 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár