Fyrrverandi framkvæmdastjóri LÍU og SFS á meðal nýrra skrifstofustjóra

Kolbeinn Árnason, Ása Þór­hildur Þórð­ar­dóttir og Áslaug Eir Hólm­geirs­dóttir hafa verið skipuð skrif­stofu­stjórar í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Kolbeinn var fram­kvæmda­stjóri hags­muna­sam­taka útgerð­ar­manna á árunum 2013-2016.

Kolbeinn Árnason var framkvæmdastjóri LÍU og síðar SFS, eftir að hafa leitt sameiningu LÍU og Samtaka fiskvinnslustöðva (SF).
Kolbeinn Árnason var fram­kvæmda­stjóri LÍU og síðar SFS, eftir að hafa leitt sam­ein­ingu LÍU og Samtaka fisk­vinnslu­stöðva (SF). Mynd: Anton Brink

Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands íslenskra útvegs­manna (LÍU) og Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) er á meðal þriggja nýrra skrif­stofu­stjóra sem Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur skipað yfir nýjar fag­skrif­stofur innan ráðu­neyt­is­ins.

Nýtt skipu­rit tók þar gildi í mán­uð­inum og með því urðu til þrjár nýjar fag­skrif­stofur í stað tveggja áður; skrif­stofa land­bún­að­ar­mála, skrif­stofa mat­væla­ör­yggis og fisk­eldis og skrif­stofa sjáv­ar­út­vegs­mála.

Kolbeinn Árnason, sem var fram­kvæmda­stjóri LÍU og síðan SFS á árunum 2013-2016, verður skrif­stofu­stjóri mat­væla­ör­yggis- og fisk­eldis, Ása Þór­hildur Þórð­ar­dóttir verður skrif­stofu­stjóri land­bún­að­ar­mála og Áslaug Eir Hólm­geirs­dóttir skrif­stofu­stjóri sjáv­ar­út­vegs­mála.

Þau voru öll metin mjög vel hæf af ráð­gef­andi hæfn­is­nefnd, en alls bár­ust 93 umsóknir um störfin þrjú sem voru aug­lýst í júlí. Tíu ein­stak­lingar metnir mjög vel hæfir af nefnd­inni sem var ráð­herra til ráð­gjafar í ferl­inu, sam­kvæmt til­kynn­ingu um þessar skip­anir á vef stjórn­ar­ráðs­ins.


Kolbeinn er með emb­ætt­is­próf í lög­fræði frá Háskóla Íslands og AMP gráðu frá IESE Business School í Barcelona. Auk áður­nefndra starfa í hags­muna­gæslu hefur hann reynslu úr stjórn­sýsl­unni. Á árum áður var hann skrif­stofu­stjóri á tveimur skrif­stofum sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­is­ins og full­trúi þess hjá fasta­nefnd Íslands við Evr­ópu­sam­bandið í Brussel. Þá var hann einnig yfir­lög­fræð­ingur og fram­kvæmda­stjóri lög­fræði­deildar skila­nefndar og slita­stjórnar Kaup­þings. Síðustu ár hefur Kolbeinn starfað sem lög­maður og einnig setið í stjórn LBI, þrota­bús gamla Lands­bank­ans.

Ása Þór­hildur er með meistara­gráðu í lög­fræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík. Hún hefur starfað innan stjórn­ar­ráðs­ins frá árinu 2011 þegar hún hóf störf í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu. Hún var í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu á árunum 2014-2018 en kom til starfa í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu á árinu 2018. Frá 2019 hefur Ása Þór­hildur verið settur skrif­stofu­stjóri á skrif­stofu mat­væla og land­bún­aðar.

Áslaug Eir er með BA gráðu í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands og meistara­gráðu í sjáv­ar­út­vegs­fræði frá sama skóla, auk þess sem hún hefur lokið diplóma­námi í haf­rétti frá Rhodes Academy. Áslaug Eir hefur starfað hjá Fiski­stofu frá árinu 2007. Frá árinu 2010 til 2013 var hún deild­ar­stjóri hjá stofn­un­inni og frá 2014 hefur hún gegnt stöðu sviðs­stjóra veiði­eft­ir­lits- og lög­fræðis­viðs og verið stað­geng­ill fiski­stofu­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár