Tryggvi hættir sem umboðsmaður Alþingis eftir rúm 22 ár í starfi

Tryggvi Gunn­ars­son, sem skip­aður var umboðs­maður Alþingis árið 1998, hefur beðist lausnar og for­sætis­nefnd Alþingis sam­þykkt beiðni hans. Nýr umboðs­maður verður kjör­inn af Alþingi fyrir lok apr­íl­mán­aðar.

Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis lætur af störfum í lok apríl.
Tryggvi Gunn­ars­son umboðs­maður Alþingis lætur af störfum í lok apríl. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tryggvi Gunn­ars­son umboðs­maður Alþingis mun láta af störfum frá og með 1. maí næst­kom­andi, en frá þessu var greint við upp­haf þing­fundar á Alþingi í dag. Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis sagði að Tryggvi hefði beðist lausnar frá starf­inu nýlega og for­sætis­nefnd fall­ist á beiðni hans.

Tryggvi hefur starfað sem umboðs­maður Alþingis frá 1. nóv­em­ber 1998, eða í rúm 22 ár. Umboðs­maður er kjör­inn af Alþingi í emb­ættið til fjög­urra ára í senn.

Samleið Tryggva með emb­ætt­inu nær lengra aftur, en hann vann með for­vera sínum Gauki Jör­unds­syni að und­ir­bún­ingi að opnun skrif­stofu umboðs­manns árið 1988, var síðan sér­stakur aðstoð­ar­maður umboðs­manns árið 1989 og aðstoð­aði umboðs­mann við afgreiðslu mála sam­hliða störfum sínum sem lög­maður á árunum 1990 til 1998.

„Um þessar mundir eru liðin 33 ár síðan ég kom fyrst að starfi umboðs­manns Alþingis,“ er haft eftir Tryggva á vef emb­ætt­is­ins í dag.

Þar seg­ist hann ávallt hafa „notið þess að sinna þessum störfum og rækja það verk­efni að greiða úr málum borg­ar­anna í umboði Alþingis gagn­vart stjórn­sýsl­unni. Lög­fræði­lega hefur þetta líka verið ein­stak­linga áhuga­vert og gef­andi. Fá svið lög­fræð­innar hafa á þessum tíma tekið sam­bæri­legum breyt­ingum og stjórn­sýslu­rétt­ur­inn og þar hefur starf umboðs­manns Alþingis átt sinn þátt,“ segir Tryggvi.

Hann seg­ist að und­an­förnu hafa átt þess kost að standa upp frá dag­legum störfum umboðs­manns og huga að því sér­staka áhuga­máli síni að auka fræðslu fyrir starfs­menn stjórn­sýsl­unnar, bæði ríkis og sveit­ar­fé­laga, um starfs­hætti í stjórn­sýsl­unni og þær reglur sem gilda um með­ferð mála þar og þjón­ustu í þágu borg­ar­anna.

„Liður í því er að taka saman aðgengi­legt fræðslu­efni um þessi mál og koma fræðslu um þau í fast­ari skorður. Þetta er eitt af þeim verk­efnum sem ég vil gjarnan fá tæki­færi til að leggja lið áður en líður um of á starfsævi mína en eðli verk­efna og annir í starfi umboðs­manns eru þannig að veru­leg tak­mörk eru á að öðru verði sinnt sam­hliða því,“ segir Tryggvi.

Kjartan Bjarni Björg­vins­son var settur umboðs­maður Alþingis í októ­ber í fyrra og út lok apr­íl­mán­aðar, að beiðni Tryggva, en umboðs­maður Alþingis getur beðið um að annar maður sé settur í starf umboðs­manns hafi umboðs­manni verið falin sér­stök tíma­bundin verk­efni af hálfu Alþingis.

For­sætis­nefnd Alþingis mun fyrir lok apr­íl­mán­aðar gera til­lögu til Alþingis um ein­stak­ling til að gegna emb­ætti umboðs­manns Alþingis og verður hann kjör­inn á þing­fundi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár