Hugarafl fær fjármagn til að starfa áfram

Stjórn­völd hafa til­kynnt um að stefnt verði að lang­tíma­samn­ingi um aukin fram­lög til Hug­arafls til að styrkja starf sam­tak­anna, sem starfa í þágu fólks með geð­rask­anir.

Stjórn­völd stefna að því að gera lang­tíma­samn­ing um aukin fram­lög til Hug­arafls til að styrkja starf sam­tak­anna í þágu fólks með geð­rask­anir. Þetta var nið­ur­staða fundar sem félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og for­svars­menn Hug­arafls áttu í morgun.

Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að fund­inn hafi setið af hálfu Hug­arafls stjórn­ar­menn­irnir Auður Axels­dóttir, Sig­ur­borg Sveins­dóttir og Árni Stein­gríms­son auk Halldórs Más Sæmunds­sonar aðstand­anda. Af hálfu ráðu­neyt­is­ins sátu, auk Þor­steins Víglunds­sonar, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, aðstoð­ar­menn hans og aðstoð­ar­menn heil­brigð­is­ráð­herra. Í til­kynn­ing­unni kemur fram að á fund­inum hafi verið farið yfir þá vinnu sem farið hefur fram í ráðu­neyt­inu að und­an­förnu, sam­eig­in­lega af hálfu heil­brigðis- og félags­hluta þess, til að greina stöðu Hug­arafls og finna leiðir til að styðja við félagið þannig að það nýt­ist sem best fólki með geð­ræn vanda­mál.

Þor­steinn segir að Hugarafl hafi unnið mik­il­vægt braut­ryðj­enda­starf og að um árangur af starfi þeirra verði ekki deilt. Hann lýsti vilja sínum til að efla starf Hug­arafls, einkum virkni og end­ur­hæf­ing­ar­úr­ræði sam­tak­anna sem hafa reynst vel fjölda fólks sem glímt hefur við geð­rask­anir af ýmsum toga. „Það er mik­il­vægt að starf­semin nái að þró­ast áfram og efl­ast og það erum við sam­mála um að tak­ist best með vönd­uðum lang­tíma­samn­ingi um starf­sem­ina þar sem fjallað er um mark­mið og árang­urs­mæl­ingar“ sagði Þor­steinn Víglunds­son meðal ann­ars á fund­inum.

Auður Axels­dóttir sagð­ist á fund­inum ánægð með þá stefnu sem mál­efni Hug­arafls hafi tekið. Gerð lang­tíma­samn­ing sé æski­leg nið­ur­staða og hún treysti því einnig að far­sæl lausn náist fljótt sem tryggi starf­semi sam­tak­anna á næstu mán­uðum: „Við finnum að það er fullur skiln­ingur á því hvað starf­semi Hug­arafls er mik­il­væg í íslensku sam­fé­lagi og erum afar ánægð með þá við­ur­kenn­ingu“ sagði Auður meðal ann­ars. Undir þetta tóku aðrir full­trúa Hug­arafls á fund­inum og sögð­ust hafa miklar vænt­ingar til þeirrar vinnu sem framundan er við gerð lang­tíma­samn­ings og binda vonir við að nið­ur­staða náist fljótt til að eyða óvissu.

Hugarafl hefur frá árinu 2011 notið styrkja frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu sem nema sam­tals 18,6 millj­ónum króna, að mestu frá heil­brigð­is­hluta ráðu­neyt­is­ins. Samtökin fengu einnig 5 millj­óna króna styrk frá fjár­laga­nefnd Alþingis árið 2016. Auk þessa er í gildi samn­ingur milli Hug­arafls og Vinnu­mála­stofn­unar sem kveður á um þjón­ustu­kaup stofn­un­ar­innar af Hug­ar­afli fyrir 10 millj­ónir króna árlega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár