Seðlabanki Argentínu skipar HSBC að skipta um bankastjóra

Seðla­banki Argentínu hefur skipað breska bankanum HSBC að skipta um banka­stjóra í útibúi bankans í Argentínu, og gaf bankanum í dag sólarhrings­frest til þess að verða við þessari beiðni. Ástæðan er sú að bankinn er talinn hafa aðstoðað um fjögur þúsund viðskipta­vini við að komast hjá skatt­greiðslum, að því er segir í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC.

Gabriel Martino, banka­stjóri HSBC í Argentínu, er sagður hafa trassað það að fara eftir skipunum Seðla­banka Argentínu þegar kom að því að hætta tafar­laust að aðstoða viðskipta­vini við að svíkja undan skatti og fara eftir reglum sem koma eiga í veg fyrir peninga­þvætti.

Rann­sóknin á málum sem tengjast HSBC í Argentínu er umfangs­mikil og varðar milli­færslu á fjármunum í skatta­skjólum upp á samtals 3,5 milljarða Bandaríkja­dala, eða tæplega 500 milljarða króna.

Forsvars­menn bankans hafa neitað því að hafa brotið lög, og segjast ætla að starfa með yfir­völdum að framgangi rann­sóknarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár