Brim hagnaðist um 6,9 milljarða króna á fyrri helmingi ársins

Eigið fé Brims var 58,6 millj­arðar króna um mitt þetta ár og mark­aðsvirði útgerð­ar­ris­ans er nú um 189 millj­arðar króna. Það hefur hækkað um 84 pró­sent frá því í sept­em­ber í fyrra. Í milli­tíð­inni var úthlutað stærsta loðnu­kvóta í tvo ára­tugi.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti eigandi Brims.
Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og stærsti eig­andi Brims. Mynd: RÚV/Skjáskot

Útgerð­ar­fé­lagið Brim hagn­að­ist um 6,9 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Hagnaður félags­ins var 113 pró­sent meiri en á sama tíma­bili í fyrra þegar hann er reikn­aður í evrum, upp­gjörs­mynt Brims.

Tekjur Brims á fyrri helm­ingi árs­ins 2021 voru 34,3 millj­arðar króna og eigið fé félags­ins 58,6 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins. Eig­in­fjár­hlut­fallið var 50,4 pró­sent um mitt þetta ár.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands er haft eftir Guðmundi Krist­jáns­syni, for­stjóra og stærsta eig­anda Brims, að loðnu­ver­tíðin hafi haft jákvæð áhrif á rekstur félags­ins en á móti hafi orðið sam­dráttur í veiði­heim­ildum á þorski. Þá hafi verð á alþjóða­mörk­uðum verið hag­stæð og auk­inn ávinn­ingur fallið til vegna fjár­fest­inga félags­ins und­an­farin ár í skipum og afla­heim­ildum, hátækni­bún­aði við vinnslu og sölu­fé­lögum.

Loðnukvótinn skipti lykilmáli

Þann 1. októ­ber 2021 lagði Haf­rann­sókna­stofnun til að gefin yrði út 904.200 tonna kvóti af loðnu á fisk­veiði­ár­inu 2021/2022.

Nokkrum mán­uðum síð­ar, 18. febr­úar 2022, var loðnu­ráð­gjöfin lækkuð um 34.600 tonn niður í 869.600 tonn. Hluti hans fór til Norð­manna, Græn­lend­inga og Fær­ey­inga en kvóti íslenskra útgerða var 686 þús­und tonn. Af honum tókst að veiða 521 þús­und tonn, eða 76 pró­sent úthlut­aðs kvóta.

Engum loðnu­kvóta hafði verið úthlutað í tvö ár áður en kom að þessum risa­kvóta, sem var sá stærsti í tæpa tvo ára­tugi, þannig að um gríð­ar­lega búbót var að ræða fyrir útgerðir sem fengu úthlutað loðnu og þjóð­ar­búið í heild.

Þrjú fyr­ir­tækið fengu 56,5 pró­­sent af þeim loðn­u­kvóta sem var úthlut­að. Ísfé­lag Vest­­manna­eyja, einka­­fyr­ir­tæki að mestu í eigu Guð­­bjargar Matt­h­í­a­s­dóttur og barna henn­­ar, fékk mest, 19,99 pró­­sent. Síld­­ar­vinnslan og tengd félög komu þar á eftir með 18,5 pró­­sent og Brim var í þriðja sæti með um 18 pró­­sent.

Brim hefur verið skráð í Kaup­höll Íslands frá árinu 2014 og er eitt tveggja útgerð­ar­fé­laga sem er skráð þar. Hitt er Síld­ar­vinnslan.

Brim er stærsta ein­staka útgerð­­ar­­fyr­ir­tæki lands­ins og mark­aðsvirði þess er sem stendur 188,7 millj­­arðar króna og hefur hækkað um 84 pró­sent frá því í sept­em­ber í fyrra, eða skömmu áður en til­kynnt var um úthlutun á risa­kvóta á loðnu.

Langstærsti eig­andi þess er Útgerð­­­­­ar­­­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­­­­­ur, sem á 43,97 pró­­­­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­­­­ur­­­­­fé­lag sitt RE-13 ehf. Það félag er að upp­i­­­stöðu í eigu Guð­­mundar Krist­jáns­­son­­ar.

Greiddi 22 prósent af arðgreiðslu í veiðigjöld

Brim hagn­að­ist um 11,3 millj­arða króna á síð­asta ári, sem er mikil aukn­ing frá þeim 4,7 millj­arða króna hagn­aði sem félagið sýndi á árinu 2020.

Á grund­velli þess hagn­aðar sem féll til í fyrra ákvað Brim að greiða hlut­höfum sínum rúm­lega fjóra millj­arða króna í arð. Í árs­reikn­ingi þess kom sömu­leiðis fram að Brim greiddi alls um 907 millj­ónir króna í veiði­gjald á árinu 2021, ef miðað er við með­al­gengi evru á árinu. Það er rúm­lega tvö­falt það sem Brim greiddi í veiði­gjöld árið áður.

Því námu veiði­gjalda­greiðslur Brim til rík­is­sjóðs fyrir afnot af sjáv­ar­út­vegsauð­lind­inni rúm­lega 22 pró­sent af þeirri greiðslu sem félagið greiddi hlut­höfum sínum í arð vegna síð­asta árs og um átta pró­sent af hagn­aði Brim á árinu 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár