„Hætta á misferli“ – Alvarlegar athugasemdir KPMG við fjárreiður Blaðamannafélagsins

Fyrr­ver­andi for­maður og fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Íslands milli­færði end­ur­tekið á sig fyr­ir­fram­greidd laun sem hann end­ur­greiddi vaxta­laust allt að hálfu ári síðar, keypti tíu tölvur fyrir sig á níu árum og greiddi út styrki án sam­þykkis stjórnar. KPMG gerir athuga­semdir við þetta í nýrri skýrslu sem unnin var að beiðni stjórna BÍ. Hjálmar Jónsson, sem sagt var upp hjá félag­inu í árs­byrjun, segir þetta allt eiga sér eðli­legar skýr­ingar.

Aðalfundur
Aðal­fundur Skýrslan var kynnt á aðal­fundi Blaða­manna­fé­lags Íslands í vik­unni. Hjálmar Jónsson, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri félags­ins, sést á hér í bak­grunni horfa beint í mynda­vél­ina og Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður þess, sést neðst til hægri á mynd­inni. Mynd: Golli

End­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið KPMG gerir alvar­legar athuga­semdir við það hvernig fjár­munum Blaða­manna­fé­lags Íslands (BÍ) var ráð­stafað á árunum 2014 til 2023. Í skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins er vakin athygli á að þáver­andi fram­kvæmda­stjóri BÍ, sem enn­fremur var for­maður félags­ins um margra ára skeið, hafi stofnað til kostn­aðar upp á millj­ónir króna án sam­þykkis stjórnar. Hann hafnar því hins vegar að nokkuð óeðli­legt hafi átt sér stað í fjár­reiðum félags­ins undir hans stjórn. End­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið sem hefur end­ur­skoðað árs­reikn­inga BÍ í yfir ára­tug sagði sig frá verk­efn­inu skömmu fyrir aðal­fund og bar við orð­spors­á­hættu fyrir sig.

Greiðslur umfram launakjör

„Það er skortur á aðgrein­ingu starfa hjá félag­inu. Án aðgrein­ingar starfa er hætta á að mis­ferli og villur upp­götv­ist ekki.“ Þetta er kjarn­inn í ábend­ingum KPMG sem koma fram í skýrslu til stjórnar BÍ og ann­arra stjórn­enda félags­ins sem var kynnt á aðal­fundi félags­ins sem fram fór á þriðju­dags­kvöld. „Hætta á mis­ferli og villur upp­götv­ist ekki ef greiðsla og sam­þykki reikn­inga er á sömu hendi,“ segir enn­fremur í skýrsl­unni. Hjálmar Jónsson var bæði for­maður og fram­kvæmda­stjóri félags­ins á árunum 2010-2021.

Meðal þess sem fram kom við kynn­ingu á skýrsl­unni var að við skoðun á færslum á árunum 2014-2023 „kom í ljós að stofnað hefur verið til kostn­aðar sem ekki ber með sér að snúi að rekstri félags­ins.“ Þá eru nefnd dæmi um að fram­kvæmda­stjóri hafi árið 2018 hafi að greiða sér öku­tækja­styrk umfram það sem samið var um í launa­kjörum, ásamt greiðslu á dag­pen­ingum. Kostn­að­ur­inn er sagður tengj­ast ferðum hans vegna orlofs­húsa og funda. Alls voru greiddar 3,2 millj­ónir króna á árunum 2018-2023 vegna þessa. Einnig voru greiðslur til tengdra aðila vegna akst­urs og þrifa að fjár­hæð 1,6 milljón króna á þessum tíma. „Þar sem um greiðslur er að ræða til fram­kvæmda­stjóra og tengdra aðila, þá hefði átt að leita sam­þykkis stjórnar til sam­ræmis við innra eft­ir­lit,“ segir í skýrslu KPMG.

Alls tæpar 9,2 milljónir í fyrirframgreidd laun

Þar kemur einnig fram að fram­kvæmda­stjóri hafi milli­fært á sjálfan sig tæpar 9,2 millj­ónir króna á 7 árum og „lét færa í bók­haldi sem fyr­ir­fram greidd laun. Greiðsl­urnar koma ekki fram á launa­seðlum hjá fram­kvæmda­stjóra þannig að ekki er hægt að rekja í bók­haldi að greiðsl­urnar teng­ist fyr­ir­fram greiddum launum. Greiðsl­urnar voru frá 100 þús kr. til 1,5 m.kr. í hvert sinn og ekki end­ur­greiddar fyrr en allt að sex mán­uðum liðnum. Alls er um að ræða 28 milli­færslur.

Fjöl­menniTroðu­fullur salur var á aðal­fund­inum í vik­unni.

End­ur­greiðsl­urnar fóru ekki í gegnum launa­kerfi heldur voru milli­færðar til félags­ins, eins og um end­ur­greiðslu á láni væri að ræða. Fram­kvæmda­stjóri hefur ekki heim­ild til að ákveða sjálfur að greiða sér fyr­ir­fram greidd laun né aðrar lán­veit­ingar og hefði átt að leita til stjórnar fyrir sam­þykki,“ segir í skýrsl­unni. 

„Greiðsl­urnar voru frá 100 þús kr. til 1,5 m.kr. í hvert sinn og ekki end­ur­greiddar fyrr en allt að sex mán­uðum liðnum. Alls er um að ræða 28 milli­færslur“
Úr skýrslu KPMG

Þar er vakin athygli að sam­kvæmt lögum um bók­hald beri félag­inu að vera með innra eft­ir­lit sem virð­ist ekki hafa verið til staðar en í lög­unum segir: „Jafn­framt skal skipu­lag og stjórnun bók­halds­ins við það miðuð að tryggja vörslu bók­halds­gagna og eðli­legt innra eft­ir­lit. Með innra eft­ir­liti er m.a. átt við verk­lags­reglur þar sem kveðið er á um með­ferð skjala og ábyrgðar- og verka­skipt­ingu og haft er að mark­miði að tryggja áreið­an­legt bók­hald, örugga með­ferð og vörslu fjár­muna og að ekki hljót­ist tjón af villum, mis­tökum eða mis­notkun.“

Átta símar og tíu tölvur

Samkvæmt skýrslu KPMG kom í ljós við skoðun á bók­haldi félags­ins að verið væri að gjald­færa ýmsan kostnað vegna við­halds og rekstrar sam­eignar félags­ins og orlofs­húsa. Þar er gerð athuga­semd við að BÍ haldi ekki eigna­skrá og því sé ekki hægt að sjá hvaða eignir félagið eigi í dag og hvað sé í notkun, það er eignir, tæki eða annar bún­aður. 

Meðal þess sem hefur verið gjald­fært er kostn­aður upp á 1,2 millj­ónir króna vegna kaupa á átta símum fyrir fram­kvæmda­stjóra á árunum 2014-2023, níu ára tíma­bili, og á sama tíma hafi verið fjár­fest í tíu tölvum fyrir 2,4 millj­ónir króna fyrir fram­kvæmda­stjóra. Fyrr á þessu ári, eftir að Hjálmari var sagt upp störfum, end­ur­greiddi hann 505 þús­und krónur þegar stjórn félags­ins óskaði eftir því að tölvu væri skilað. KPMG gerir við þessa liði athuga­semd um að þar sem um kostnað sé að ræða vegna fram­kvæmda­stjóra hefið hann átt að leita sam­þykkis stjórnar vegna hans til sam­ræmis við innra eft­ir­lit. 

„Ekki var heim­ild fyrir þessum fyr­ir­fram greiðslum frá stjórn“
Úr skýrslu KPMG

Í sam­ræmi við kjara­samn­ing hafi fram­kvæmda­stjóri átt að fá 23 þús­und krónur á mán­uði í svo­kallað fjöl­miðla­styrki en greiðsl­urnar hafi verið greiddar fyr­ir­fram, einu sinni til tvisvar á ári, og munið 2,9 millj­ónum króna á árunum 2014-2023. Eitt árið hafi fjöl­miðla­styrkur verið oftek­inn um 138 þús­und krónur. „Ekki var heim­ild fyrir þessum fyr­ir­fram greiðslum frá stjórn,“ segir í skýrslu KPMG.

Ritlaunagreiðslur án bæði skýringa og samninga

Skoðaðar voru ýmsar greiðslur vegna rit­launa á tíma­bil­inu. Ekki fund­ust samn­ingar við alla þá ein­stak­linga sem fengu greidd rit­laun með skýr­ingum um hvaða vinnu var verið að vinna. KPMG bendir á að hætta sé að félagið sé að greiða kostnað sem snýr ekki að rekstri félags­ins eða vanti þjón­ustu­samn­ing, og kemur með ábend­ingu til úrbóta: „Allir samn­ingar um þjón­ustu, rit­laun og það sem skuld­bindur félagið eiga vera sam­þykktir af fram­kvæmda­stjóra og stjórn og til­tækir á skrif­stofu félags­ins.“

Hvað greiðslur styrkja varðar segir að sam­kvæmt starfs­reglum sjóða eigi styrkir að vera sam­þykktir af stjórn fyrir útborgun nema þeir styrkir sem heyra undir reglu­gerð sjóða, þá megi afgreiða af starfs­mönnum skrif­stofu. 

„Sér­stakir styrkir vegna mik­illa heil­brigðis­út­gjalda námu 6,7 m.kr. og ekki var sam­þykki fyrir 3,6 m.kr. Samtals 7,8 m.kr. voru greiddar án sam­þykkis við­kom­andi stjórna“
Úr skýrslu KPMG

Í kafla um styrki segir: „Skerpt verði á starfs­reglum í kringum úthlut­anir og þær skýrðar fyrir félags­mönnum, t.d. á heima­síðu félags­ins. Ef um almenna styrki sem sam­ræm­ast úthlut­un­ar­reglum, þá sé við­höfð aðgrein­ing starfa og stað­fest að við­kom­andi félags­maður hafi rétt á styrk. námu 13,2 m.kr. á tíma­bil­inu sem var skoðað, af þeim var ekki sam­þykki fyrir 3,2 m.kr. Verk­efna­styrkir námu 7 m.kr. á sama tíma og ekki var sam­þykki fyrir 1 m.kr. Sér­stakir styrkir vegna mik­illa heil­brigðis­út­gjalda námu 6,7 m.kr. og ekki var sam­þykki fyrir 3,6 m.kr. Samtals 7,8 m.kr. voru greiddar án sam­þykkis við­kom­andi stjórna,“ segir í skýrsl­unni.

Talar um „svokallaða skýrslu“

Í umfjöllun um rekstr­ar­kostnað segir að í sam­an­tekt frá óháðum bók­ara séu teknar saman færslur þar sem verið er að borga fyrir veit­ingar og ferðir fyrir líf­eyr­is­þega sem teng­ist ekki almennum rekstri félags­ins. Í skýrslu KPMG kemur fram: „Ekki koma fram skýr­ingar af hverju BÍ stofn­aði til þessa kostn­aðar og ekki fannst heim­ild frá stjórn fyrir þessum kostn­aði. Félagið hefur greitt 7,6 m.kr. á árunum 2014-2023 í föstu­dags­kaffi, vorferð og jóla­boð fyrir “föstu­dags­hóp” sem eru líf­eyr­is­þegar. Kostn­aður vegna þessa teng­ist ekki beint starf­semi félags­ins og ekki var hægt að finna sam­þykki stjórnar fyrir þessum kostn­aði.“

„Ég full­yrði að öll þessi útgjöld eiga sér eðli­legar skýr­ingar“
Hjálmar Jónsson

Inntur við­bragða vegna þess sem fram kemur í skýrsl­unni segir Hjálmar: „Það er ekki í boði annað en að fylgja sam­visku sinni og bregð­ast við þegar virð­ing Blaða­manna­fé­lags Íslands er ann­ars vegar. Í því ljósi ber að skoða svo­kall­aða skýrslu sem var munn­lega kynnt á aðal­fundi BÍ í vik­unni og tekur til síð­ast­lið­inna tíu ára. Ég hef ekki getað kynnt mér efni skýrsl­unnar að öðru leyti en sem hver annar þátt­tak­andi á aðal­fundi félags­ins og á engum tíma­punkti var leitað til mín um skýr­ingar eða áherslur þrátt fyrir 35 ára reynslu mína af rekstri félags­ins. Til þess eru ref­irnir skornir! Það er eflaust hægt að setja hluti í und­ar­legt sam­hengi með því að taka saman sam­tölur yfir til­tekin valin útgjöld í 10 ár sam­an­lagt, en ég full­yrði að öll þessi útgjöld eiga sér eðli­legar skýr­ingar.“

Efni skýrsl­unnar var kynnt með glærum á aðal­fund­inum en var ekki dreift til félags­fólks.

Ákveðið að skoða tiltekna bókhaldslykla

Stjórn BÍ sam­þykkti á fundi í jan­úar að láta fara í skoðun á fjár­reiðum félags­ins þrjú ár aftur í tím­ann „vegna þess hversu illa hafi gengið fyrir stjórn að fá upp­lýs­ingar úr bók­haldi félags­ins frá þáver­andi fram­kvæmda­stjóra,“ segir Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður BÍ. „Við fengum óháðan bók­ara til að gera það og hún kom með ráð­gjöf um að hún teldi rétt að fara lengra aftur í tím­ann. Þá ákvað stjórn að skoða ýmsa bók­halds­lykla tíu ár aftur í tím­ann sam­kvæmt ráð­legg­ingu þessa óháða bók­ara og við fengum þær nið­ur­stöður með þeim ráð­legg­ingum að láta end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki fara yfir það og vinna úr þeim nið­ur­stöðum skýrslu, og það var sumsé skýrslan sem var lögð fyrir aðal­fund í fyrra­dag,“ segir hún. 

Á árunum 2014 til 2023 sem voru árin sem voru skoðuð, var fram­kvæmda­stjóri með milli­færslu­að­gang og sam­þykkti einnig reikn­inga í bók­haldi félags­ins, að und­an­skildum styrkjum sem voru sam­þykktir af stjórnum hvers sjóðs eða greiddir sam­kvæmt reglu­gerðum sjóða. Í ábend­ingum vegna þessa frá KPMG segir: „Bókhald, sam­þykki reikn­inga greiðsla á reikn­ingum sé ekki á sömu hendi hjá BÍ. Að komið verði á við­eig­andi innra eft­ir­liti með bók­haldi og fjár­reiðum félags­ins.“

Áður neitað að veita upplýsingar um fjárrreiður

Hjálmari var sagt upp sem fram­kvæmda­stjóra BÍ í jan­úar en hann hefur starfað með einum eða öðrum hætti fyrir félagið síðan 1989. Hann hefur verið fram­kvæmda­stjóri þess síðan árið 2003 en var bæði fram­kvæmda­stjóri og for­maður félags­ins á árunum 2010 til 2021.

Miklar deilur urðu í aðdrag­anda aðal­fundar BÍ árið 2010 eftir að stjórn fékk ekki umbeðnar upp­lýs­ingar úr bók­haldi félags­ins frá fram­kvæmda­stjór­anum. Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, þáver­andi for­maður,  sagð­ist þá hafa bókað sig frá ábyrgð á fjár­málum félags­ins nokkru fyrir fund­inn vegna þess að fram­kvæmda­stjóri hafi ekki viljað afhenda gögn. Þá neit­aði hún og hluti stjórnar að und­ir­rita árs­reikn­inga félags­ins. Þóra Kristín vildi láta reka Hjálmar út starfi fram­kvæmda­stjóra vegna sam­starfsörð­ug­leika og láta fara fram úttekt á rekstri félags­ins. Hún hafði ekki meiri­hluta í stjórn fyrir því að reka Hjálmar.

Þóra Kristín gaf áfram kost á sér sem for­maður fyrir aðal­fund­inn en Hjálmar, sem þá var fram­kvæmda­stjóri, bauð sig fram gegn henni. Skömmu fyrir aðal­fund­inn dró Þóra Kristín fram­boð sitt til baka enda lá fyrir að hún þyrfti að starfa með fram­kvæmda­stjór­anum áfram og ekki yrði að óbreyttu hægt að fram­kvæma þær breyt­ingar sem hún vildi ná fram og Hjálmar var því sjálf­kjör­inn for­maður. Þá sögðu sig einnig úr stjórn­inni Svavar Hall­dórs­son og Sólveig Bergmann.

Á aðal­fund­inum gaf Hjálmar út að hann myndi láta af störfum sem fram­kvæmda­stjóri í ljósi þess að hann hefði verið kjör­inn for­maður. Hjálmar starf­aði þó áfram sem bæði for­maður og fram­kvæmda­stjóri fram til árs­ins 2021 þegar Hjálmar ákvað að draga sig í hlé sem for­maður Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir var kjörin for­maður.

Tíu alvarlegar ábendingar

Sigríður Dögg segir að í bréfi KPMG til stjórnar BÍ sé ýmis­legt sem betur megi fara þegar kemur að því hvernig fjár­munum félags­ins hefur verið ráð­stafað. „Þar koma tíu alvar­legar ábend­ingar um atriði sem þau skoð­uðu og taka fram að skoð­unin var ekki tæm­andi, þetta var í raun úttekt á nokkrum bók­halds­lyklum og það sem er grunn­ur­inn að þessum ábend­ingum öllum er í raun­inni að sam­þykki reikn­inga og greiðsla, þeir sem sam­þykkja reikn­inga og greiða þá, hafa til þessa verið ein og sama mann­eskjan, fram­kvæmda­stjóri, og það gerir það að verkum að það er hætta á að mis­ferli og villur upp­götv­ist ekki. Það vantar mikið uppá innra eft­ir­lit og innri end­ur­skoðun hjá félag­inu. Þetta er eitt­hvað sem félagið og stjórnin þarf að taka til skoð­unar og stjórn í raun­inni þegar farin að vinna að úrbóta­á­ætlun,“ segir hún. 

Spurð um þýð­ingu þess sem fram kemur í skýrsl­unni, hvort um sé að ræða brot af hálfu fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra, segir hún: „Það er algjör­lega ljóst að þetta eru vinnu­brögð sem eru ekki með þeim hætti sem end­ur­skoð­endum þykir eðli­legt og því aug­ljóst að það þarf að koma í veg fyrir að starfs­maður félags­ins, stjórn­ar­menn eða aðrir full­trúar sem starfa á vegum þess geti komið sér í þær aðstæður þar sem þetta er hægt, og það er hlut­verk félags­ins og stjórn­ar­innar núna að koma upp innra eft­ir­liti til þess að tryggja að svona ger­ist ekki aftur.“

„Það er ljóst að það hefur verið greitt úr sjóðum félags­ins án þess að heim­ild fyrir greiðsl­unum hafi legið fyrir“
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður BÍ

Ný stjórn hafi verið kjörin á aðal­fund­inum og það sé hennar næsta verk­efni að vinna þetta mál áfram. „Hennar fyrsta verk verður að vinna þetta mál áfram eins og í raun aðal­fundur óskaði eftir, eða þeir sem mættu á aðal­fund, það voru skýr til­mæli til stjórnar þannig að fyrst og fremst munum við nota þetta skjal til þess að bæta alla ferla og vinnu­brögð hér inn­an­húss. Það er ljóst að það hefur verið greitt úr sjóðum félags­ins án þess að heim­ild fyrir greiðsl­unum hafi legið fyrir. Þarna kemur fram að það eru ýmsar færslur sem að eðli­lega hefði verið að stjórn hafi veitt sam­þykki fyrir en var ekki gert. Þær fund­ust alla­vega ekki í fund­ar­gerðum stjórnar frá þessum tíma­bili. Þarna eru tekin dæmi um greiðslur til fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra til sjálfs síns sem að virð­ist ekki hafa verið leitað heim­ilda fyrir hjá stjórn, og það eru eig­in­lega sömu ábend­ingar í flest öllum þessum atriðum, að þegar eru greiðslur eins og þessar, þegar fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri er að greiða sjálfum sér þá þarf að liggja fyrir mjög skýrt sam­þykki stjórnar, eðli­lega,“ segir Sigríður Dögg. 

Hætti við eftir að hafa birt drög að ársreikningi

Samkvæmt hefð­bundnum aðal­fund­ar­störfum hefði átt að leggja árs­reikn­ing BÍ fyrir félags­menn en það var ekki gert. Sigríður Dögg segir skýr­ing­una þá að end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið, DFK end­ur­skoðun sem hefur end­ur­skoðað árs­reikn­inga félags­ins í minnst annan ára­tug, hafi sagt sig frá verk­efn­inu á síð­ustu stundu vegna orð­spors­á­hættu. 

Skýrsla stjórnarSigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins, fór yfir skýrslu stjórnar á aðal­fund­inum.

„Skrif­stofa félags­ins var búin að fá send drög að árs­reikn­ingi um tíu dögum fyrir aðal­fund til yfir­ferðar, án þess að það væru nokkrar athuga­semdir gerðar við árs­reikn­ing­inn og ekki búið að gera nein úrtök eins og eðli­legt þykir þegar end­ur­skoðun árs­reikn­inga er gerð. Þannig að þegar við fengum árs­reikn­ing­inn án nokk­urra athuga­semda og án þess að hafa fengið spurn­ingar frá end­ur­skoð­anda um nein atriði í bók­haldi félags­ins þá fannst okkur eðli­legt að spyrja end­ur­skoð­and­ann út í það hvort það hefðu ekki komið neinar athuga­semdir, hvaða úrtök hefðu verið gerð og hvað hefði komið út úr því. Í fram­hald­inu óskar hann eftir fundi með mér. Átta dögum fyrir aðal­fund hittum við end­ur­skoð­and­ann á fundi, ég og einn annar full­trúi stjórnar, og þá til­kynnir hann okkur að hann muni ekki und­ir­rita reikn­ing­inn með end­ur­skoð­un­ar­á­ritun og ber fyrir sig orð­spors­á­hættu fyrir fyr­ir­tækið sitt vegna þeirrar umræðu sem hefur verið um fjár­mál félags­ins og skoð­unar KPMG sem sé í gangi. Hann gaf engar aðrar skýr­ingar á því þrátt fyrir að við óskuðum eftir að fá þetta skrif­legt frá honum þá hefur hann ekki veitt nán­ari upp­lýs­ingar,“ segir hún. 

„Við erum að setja miklu skýr­ari umgjörð og reglur um allt sem við­kemur rekstr­inum og starf­sem­inni“
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður BÍ

Aðal­fundur BÍ fól stjórn að leita til­boða í end­ur­skoðun árs­reikn­inga félags­ins og stefnt er að því að halda fram­halds­að­al­fund innan tveggja mán­aða, eða eins fljótt og auðið er, þar sem lagður verður fram end­ur­skoð­aður árs­reikn­ingur með nýjum end­ur­skoð­anda. 

Þetta mál allt lítur ekki vel út fyrir Blaða­manna­fé­lagið. Veldur þetta áhyggjum?

„Já, auð­vitað. Við erum nátt­úru­lega félag sem á að vera til fyr­ir­myndar í öllu sem heitir innra eft­ir­lit. Við erum stétt sem er vön að spyrja erf­iðra spurn­inga og því í raun­inni óskilj­an­legt að við skyldum ekki hafa passað betur upp á þessa hluti hjá okkur sjálfum. Fram­kvæmda­stjóri félags­ins var líka for­maður þess frá árinu 2010 og við hefðum átt að sjá að það væri ekki mjög skyn­sam­leg ráð­stöfun. En þetta er alla­vega uppi á borðum og mér heyr­ist félags­menn sam­mála um að þó svo að þetta hafi upp­götvast allt of seint þá er þetta alla­vega komið til end­ur­skoð­unar og allir félags­menn sam­mála um að nú þurfum við að gera betur, og að sjálf­sögðu vinnum við þetta mál eins og allt sem blaða­manna­fé­lagið gerir, af fullum heil­indum og með gagn­sæi að leið­ar­ljósi og þess vegna einmitt ákváðum við að kynna nið­ur­stöður þess­arar skoð­unar KPMG fyrir félags­mönnum á aðal­fundi því að við teljum að það sé mik­il­vægt að núna snúum við blað­inu og tryggjum að starf­semi félags­ins verði með þeim hætti að allir félagar geti verið stoltir af öllu því sem við­kemur rekstri og starf­sem­inni. Við erum að setja miklu skýr­ari umgjörð og reglur um allt sem við­kemur rekstr­inum og starf­sem­inni, bæði í fram­haldi af þessum ábend­ingum frá KPMG en líka varð­andi önnur atriði sem við höfum sjálf upp­götvað eftir að fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fór héðan út og við höfum fengið betra tæki­færi til að setja okkur inn í öll atriði sem tengj­ast starf­semi félags­ins og sjóða þeirra,“ segir hún. 

Svar Hjálmars í heild sinni

Þegar Heim­ildin leit­aði við­bragða Hjálmars við skýrslu KPMG og þeim athuga­semdum sem þar koma fram óskaði hann að svara skrif­lega, og að svarið yrði birt óstytt. Það fer hér:

„Kjarni máls­ins er þessi. Það hefur ævin­lega allt verið upp á borðum í rekstri Blaða­manna­fé­lags Íslands og aldrei verið neitt óeðli­legt á ferð­inni. Allar ákvarð­anir í rekstri félags­ins hafa farið eftir ákveðnum og þekktum starfs­ferlum grund­völl­uðum á ákvörð­unum stjórnar félags­ins og stjórna ein­stakra sjóða þess. Allir árs­reikn­ingar félags­ins hafa verið end­ur­skoð­aðir af lög­giltum end­ur­skoð­endum, yfir­farnir af félags­lega kjörnum skoð­un­ar­mönnum reikn­inga félags­ins, und­ir­rit­aðir af stjórn félags­ins og stjórna ein­stakra sjóða þess og sam­þykktir á aðal­fundum, ævin­lega án þess að nokkrar athuga­semdir hafi komið fram.

Stað­reyndin er nefni­lega sú að það hefur ævin­lega verið gætt að hag­kvæmni í rekstri félags­ins, enda verður svo að vera í rekstri lít­illa stétt­ar­fé­laga ef ekki á illa að fara. Ég tók þá hug­mynda­fræði í arf frá fyr­ir­renn­urum mínum í starfi hjá félag­inu og sá arfur hefur reynst ómet­an­legur. Fyrir vikið hefur rekstur félags­ins blómstrað á liðnum árum, þrátt fyrir kreppu á fjöl­miðla­mark­aði og mik­illar fækk­unar fjöl­miðla á liðnum árum. Það hefur í raun verið ótrú­leg far­sæld yfir rekstri félags­ins, sem end­ur­spegl­ast í því að eigið fé félags­ins hefur tífald­ast að raun­gildi á und­an­förnum 20 árum, þrátt fyrir að ekk­ert stétt­ar­fé­lag sem ég þekki til geri jafn mikið fyrir félags­menn sína.

Starfs­lok mín hjá Blaða­manna­fé­lag­inu báru að með bráðum hætti, eins og kunn­ugt er. Það er miður en undan því varð ekki vik­ist. Það er ekki í boði annað en að fylgja sam­visku sinni og bregð­ast við þegar virð­ing Blaða­manna­fé­lags Íslands er ann­ars vegar. Í því ljósi ber að skoða svo­kall­aða skýrslu sem var munn­lega kynnt á aðal­fundi BÍ í vik­unni og tekur til síð­ast­lið­inna tíu ára. Ég hef ekki getað kynnt mér efni skýrsl­unnar að öðru leyti en sem hver annar þátt­tak­andi á aðal­fundi félags­ins og á engum tíma­punkti var leitað til mín um skýr­ingar eða áherslur þrátt fyrir 35 ára reynslu mína af rekstri félags­ins. Til þess eru ref­irnir skornir! Það er eflaust hægt að setja hluti í und­ar­legt sam­hengi með því að taka saman sam­tölur yfir til­tekin valin útgjöld í 10 ár sam­an­lagt, en ég full­yrði að öll þessi útgjöld eiga sér eðli­legar skýr­ingar. Allt bók­hald Blaða­manna­fé­lags­ins síð­ast­liðna hálfa öld er til í geymslum félags­ins og því hæg heima­tökin að sann­reyna það í ein­stökum atriðum.

Ég er afskap­lega stoltur yfir þeim árangri sem náðst hefur í rekstri BÍ á liðnum ára­tugum. Þar að baki liggur fórn­fúst starfa tuga ef ekki hund­ruða félags­manna sem ég hef unnið með á liðnum árum. Ég er þakk­látur fyrir þann trúnað og traust sem mér hefur verið sýnt í gegnum tíð­ina og hef reynt að standa undir því. Fyrir vikið eiga blaða­menn öfl­ugan bak­hjarl í félag­inu sínu. Það skiptir máli vegna mik­il­vægis sann­gjarnrar og heið­ar­legrar blaða­mennsku fyrir íslenskt sam­fé­lag.”


Grein­ar­höf­undur er félagi í Blaða­manna­fé­lagi Íslands

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár