„Spilling notuð til að byggja valdablokkir“

Þing­maður Pírata spurði dóms­mála­ráð­herra út í nýja skýrslu GRECO á þingi í dag. Hann sagði meðal ann­ars að spill­ing væri fal­inn skattur. Hún gerði okkur fátæk­ari, græfi undan rétt­ar­rík­inu og gerði okkur óör­ugg.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pirata.
Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pirata. Mynd: Bára Huld Beck

„Spilling er rán­dýr. Spilling hyglar fáum á kostnað allra ann­arra. Spilling er fal­inn skattur sem kostar meira en virð­is­auka­skattur. En á meðan virð­is­auka­skattur er nýttur til að byggja upp inn­viði lands­ins þá er spill­ing notuð til að byggja valda­blokkir.“

Þetta sagði Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun en hann spurði Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra út í nýút­komna skýrslu GRECO, sam­taka gegn spill­ingu.

Kjarninn fjall­aði um ský­sl­una í vik­unni en í henni er lagt mat á það hvernig íslensk stjórn­völd hafa til þessa brugð­ist við þeim 18 til­lögum að úrbótum sem GRECO setti fram í skýrslu sinni um Ísland árið 2018. Búið er að koma til móts við fjórar þeirra með full­nægj­andi hætti, að mati sam­tak­anna. Sjö til­lögur til við­bótar eru sagðar hafa verið inn­leiddar að hluta, en ekki er búið að inn­leiða breyt­ingar til þess að mæta sjö til­lögum sem lúta flestar að lög­gæslu­málum.

Jón Þór hélt uppi blaði í pontu þar sem hann var búinn að strika yfir til­lögur GRECO með grænum, gulum og rauðum lit. „Grænt er búið. Gult er farið af stað. Rautt er ekki byrjað,“ sagði hann.

Benti þing­mað­ur­inn á að dóms­mála­ráð­herra hefði fengið slíkan lista af spill­inga­vörnum fyrir tveimur árum. „Hennar listi sneri að lög­gæslu­málum. Og í frétta­til­kynn­ingu GRECO hvað lög­gæslu varðar segir: „Ísland verður að tak­marka póli­tíska spill­ingu, póli­tísk afskipti.“ Og þetta er listi dóms­mála­ráð­herra: Rautt er ekki farið af stað. Gult er rétt hafið.“

Jón Þór sagði að spill­ing væri mjög skilj­an­leg vegna þess að valda­fólk gæti notað almanna­valdið til að byggja sínar valda­blokkir. „Þannig virkar það. En það er á kostnað allra ann­arra. Spilling er því mjög óæski­leg. Hún er fal­inn skattur. Hún gerir okkur fátæk­ari. Hún grefur undan rétt­ar­rík­inu. Hún gerir okkur óör­ugg­ari. Hún verð­launar hlýðni í stað hæfi­leika. Hún gerir okkur lélegri. Það kostar ráð­herra ekk­ert að nota almanna­valdið til að byggja eigin valda­blokkir fyrr en það kostar traust kjós­enda. Ég treysti því ekki að ráð­herra vilji vinna að tak­mörkun spill­ingar innan lög­gæsl­unnar með svona rauðan lista.“

Spurði hann því ráð­herra hvers vegna hennar listi væri svona rauður.

„Vinnum hörðum höndum að því að skoða hvað það er í kerfinu okkar sem við getum gert betur“

Áslaug Arna svar­aði og sagði að þing­mað­ur­inn gæti rétt fram „ein­hverja lista sem hann hefur litað sér­stak­lega en það væri nær að vísa í orð sér­fræð­ings GRECO og einn höf­unda þess­arar skýrslu“. Vísaði hún í höf­und skýrsl­unnar en hann segir:

„Það má segja að þetta sé allt í vinnslu. Það er ekki búið að inn­leiða til­lög­urnar en við tökum til greina að dóms­mála­ráð­herra hóf nýverið mjög yfir­grips­mikla end­ur­skipu­lagn­ingu á lög­regl­unni og öðrum emb­ættum lög­gæslu. Það er einnig í gangi end­ur­skoðun. Mér skilst að okkar til­lögur sem miða að því að tryggja að engin póli­tísk afskipti séu höfð af lög­gæslu verði inn­leiddar í gegnum þessi tvö ferli.“

Dóms­mála­ráð­herra benti á að höf­undur skýrsl­unnar segð­ist vera von­góður varð­andi næstu skýrslu, enda væri þetta stöðu­taka. „Við höfum fleiri mán­uði til að klára eins og lagt var upp með í upp­hafi og ríki hafa til að klára eft­ir­fylgni þess­arar skýrslu. Hann bindur miklar vonir við og telur mjög lík­legt að þetta verði komið að 18 mán­uðum liðnum og það verði búið að inn­leiða þessar athuga­semdir. Hann seg­ist líka ánægður að sjá þetta ferli og hann bætir auð­vitað við að það sé ekki hægt að fara í beinan sam­an­burð við önnur lönd,“ sagði Áslaug Arna.

Spyrði hún hvað búið væri að gera og hvað væri verið að benda á í þessum athuga­semdum sem þau væru að reyna að koma til móts við. „Við vinnum hörðum höndum að því að skoða hvað það er í kerf­inu okkar sem við getum gert betur til að koma til móts við þær athuga­semdir sem þarna koma fram. Það er ekki síst innra sam­starf og að lög­reglan komi fram sem ein heild í meira mæli en verið hefur og ég veit ekki betur en ég hafi komið á fót lög­reglu­ráði.

Við erum að lög­festa það með frum­varpi til laga sem var að klár­ast í sam­ráðs­gátt og er að fara fyrir rík­is­stjórn og fyrir þingið fyrir ára­mót, um að lög­festa lög­reglu­ráð sem verði sam­ráðs- og sam­hæf­ing­ar­vett­vangur allrar lög­reglu í land­inu með hér­aðs­sak­sókn­ara og undir for­ystu rík­is­lög­reglu­stjóra. Síðan er að treysta for­ystu­hlut­verk rík­is­lög­reglu­stjóra sem einmitt er bent á að þurfi að gera í athuga­semdum GRECO,“ sagði ráð­herr­ann.

Verður vinnan kláruð fyrir kosningar?

Jón Þór sagð­ist í fram­hald­inu von­ast til þess að rík­is­lög­reglu­stjóri brygð­ist við. „Ég vil geta treyst dóms­mála­ráð­herra í þessu máli, for­seti, ég vil að þetta sé lagað. Það er dýrt og gerir okkur fátæk­ari, gerir okkur lélegri og gerir okkur óör­ugg­ari að hafa spill­ingu. Þegar okkur er bent á svona hluti og maður sér hvernig list­inn er — og þetta er ekk­ert sam­an­burður milli landa, þetta er listi for­sæt­is­ráð­herra, sem er með tæpan einn þriðja kláraðan af sínum verk­efnum, einn þriðja far­inn af stað og eitt verk­efni ekki farið af stað, og svo listi dóms­mála­ráð­herra og það eru 18 mán­uðir fram yfir næstu kosn­ingar.“

Spurði hann hvort dóms­mála­ráð­herra teldi sig getað klárað þetta fyrir næstu kosn­ingar. „Ef það ger­ist þá treysti ég dóms­mála­ráð­herra. Telur dóms­mála­ráð­herra að hún geti flýtt vinn­unni þannig að hún sé kláruð fyrir næstu kosn­ingar?“ spurði hann.

Margt klárað á næstu mánuðum

Áslaug Arna svar­aði í annað sinn og sagði að margt í þessu teldi hún að yrði upp­fyllt með nýjum lögum en lagt yrði fram frum­varp um það fyrir ára­mót.

„Í lög­reglu­lög­unum, í því sem við erum að breyta, er ekki bara end­ur­skoðun á skipu­lagi lög­reglu og verk­sviði rík­is­lög­reglu­stjóra heldur líka eft­ir­lit með störfum lög­reglu, rann­sóknir þegar upp kemur grunur um refsi­verða hátt­semi lög­reglu í starfi. Og ég er búin að ítreka það með breyt­ingum sem krefj­ast ekki laga­breyt­ingar, og í sam­tölum mínum við lög­reglu­ráð og alla lög­reglu­stjóra og leggja ríka áherslu á að störf innan lög­regl­unnar séu aug­lýst. Er unnið að því innan lög­regl­unnar og Land­helg­is­gæsl­unnar að upp­fylla þau til­mæli sem bein­ast sér­stak­lega að þeim og við höfum rekið á eftir að verði lokið.“

Því telur hún að margt verði klárað á næstu mán­uðum er lýtur að GRECO. „Það eru kannski ein­hverjar athuga­semdir þarna sem krefj­ast meiri póli­tískrar umræðu og það er mik­il­vægt að komi fram í umræðu um lög­reglu­lögin þegar frum­varpið kemur fyrir þingið. En ég held að við höfum stigið mörg skref til að svara þessu og það er ekki rétt að bera þessi tvö ráðu­neyti saman eins og hátt­virtur þing­maður gerði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár