GRECO, samtök gegn spillingu, segja að Ísland verði að gera meira

Ísland þarf að gera meira til þess að koma í veg fyrir spill­ingu og efla heil­indi hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmda­valds og innan lög­gæslu­stofn­ana, sam­kvæmt nýrri eft­ir­fylgni­skýrslu GRECO, sam­taka ríkja innan Evr­ópu­ráðs­ins gegn spill­ingu.

Í skýrsl­unni er lagt mat á það hvernig íslensk stjórn­völd hafa til þessa brugð­ist við þeim 18 til­lögum að úrbótum sem GRECO setti fram í skýrslu sinni um Ísland árið 2018. Búið er að koma til móts við fjórar þeirra með full­nægj­andi hætti, að mati sam­tak­anna. Sjö til­lögur til við­bótar eru sagðar hafa verið inn­leiddar að hluta, en ekki er búið að inn­leiða breyt­ingar til þess að mæta sjö til­lögum sem lúta flestar að lög­gæslu­málum.

Reglur um „snúningshurðina“ virðist „fremur veikar“

Í frétta­til­kynn­ingu frá GRECO segir að þrátt fyrir að sam­tökin kunni að meta heild­ræna nálgun sem íslensk stjórn­völd hafi tekið gagn­vart því að byggja upp varnir gegn hags­muna­á­rekstrum á æðstu stöðum í stjórn­sýsl­unni, vanti enn upp á nokkra hluti.

Sér­stak­lega nefnir GRECO að það skorti upp á leið­bein­ingar til emb­ætt­is­manna um hvernig þeir skuli haga sam­skiptum sínum við þriðju aðila og hags­muna­verði. Þá segir einnig GRECO að þær reglur sem taki gildi núna um ára­mót og koma í veg fyrir að æðstu hand­hafar fram­kvæmda­valds (sem skil­greindir eru sem ráð­herrar og aðstoð­ar­menn þeirra, ráðu­neyt­is­stjórar, skrif­stofu­stjórar og sendi­herrar) geti fært sig yfir í hags­muna­gæslu innan við sex mán­uðum frá starfs­lokum hjá hinu opin­bera, virð­ist „fremur veikar“.

Bæði virð­ast þær veikar, segir GRECO, hvað tíma­lengd „kæl­ing­ar­tíma­bil­is­ins“ varðar og einnig að því leyti að þær taki bara til starfa í hags­muna­gæslu, en ekki ann­arra geira.

GRECO segir þessa sex mán­uði virð­ast of stutt tíma­bil til að regl­urnar nái til­gangi sínum, sem er sá að fólk geti ekki yfir­gefið ábúð­ar­mikil störf í æðstu lögum hins opin­bera til þess að fara í störf hjá einka­að­ilum.

Þetta er þó ein af fjórum til­lögum sem GRECO telur að Ísland hafi inn­leitt og segj­ast sam­tökin fagna því að nú sé alla­vega búið að setja ein­hverjar reglur til þess að tak­marka hreyf­an­leika úr æðstu stöðum yfir í einka­geir­ann.

GRECO seg­ist einnig harma að ekk­ert hafi þok­ast varð­andi það að takast á við mis­ræmi varð­andi þær siða- og starfs­reglur sem eiga við um æðstu hand­hafa fram­kvæmda­valds og þess hvernig þeim sem regl­urnar eiga við sé veitt leið­sögn og trún­að­ar­ráð­gjöf um þær.

„Ísland verður að takmarka pólitísk afskipti“ af löggæslu

Hvað lög­gæslu varðar segir ein­fald­lega: „Ísland verður að tak­marka póli­tísk afskipti,“ í frétta­til­kynn­ingu GRECO. Því er bætt við að kynna þurfi til sög­unnar gagn­sæjar og sann­gjarnar ráðn­ing­ar­að­ferðir, aug­lýsa lausar stöður, setja upp kerfi um fram­gang í starfi og einnig við­mið um hvenær samn­ingar skuli ekki end­ur­nýj­aðir.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra fer með yfirstjórn löggæslumála á Íslandi.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra fer með yfir­stjórn lög­gæslu­mála á Íslandi.

GRECO seg­ist kunna að meta aðerðir sem gripið hafi verið til innan lög­reglu varð­andi reglu­lega þjálfun og fræðslu lög­reglu­liðs­ins varð­andi mál tengd heil­indum, en harmar að ekki sé búið að upp­færa siða- og starfs­reglur lög­reglu og Land­helg­is­gæsl­unnar.

Tékklistinn

Tillögur GRECO í skýrsl­unni árið 2018 voru níu tals­ins í hvorum flokki og hér að neðan má sjá þær og einnig hvaða til­lögur sam­tökin telja Ísland vera búið að upp­fylla.

  • Feit­letraðar til­lögur er búið að inn­leiða með full­nægj­andi hætti, að mati GRECO.
  • Skáletraðar til­lögur er búið að inn­leiða að hluta, að mati GRECO.
  • Þær sem eru í venju­legu letri eru óinn­leiddar, að mati GRECO.

Tillögur GRECO til úrbóta varðandi æðstu handhafa framkvæmdavalds

  1. Unnin verði stefna til að bæta heil­indi og varnir gegn hags­muna­á­rekstrum hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds, þar á meðal með virkri ráð­gjöf, vöktun og eft­ir­fylgni.
  2. Siða­reglur fyrir æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds verði sam­ræmd­ar, unnið verði leið­bein­ing­ar­efni með skýr­ingum og raun­hæfum dæmum og hægt verði að leita ráð­gjafar um þær í trún­aði. Þá verði til staðar eft­ir­lits­að­ili með fram­kvæmd siða­regln­anna og við­ur­laga­kerfi komið á fót.
  3. Komið verði á fót skil­virkum ferlum til að efla vit­und æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds um opin­ber heil­indi, þar á meðal með reglu­legri fræðslu.
  4. Settar verði reglur um sam­skipti æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds við hags­muna­að­ila og aðra aðila sem leit­ast eftir því að hafa áhrif á und­ir­bún­ing lög­gjafar og önnur störf stjórn­valda.
  5. Reglur um auka­störf æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds verði end­ur­skoð­aðar og gerð skýr­ari grein fyrir því hvaða störf eru heimil og hver ekki.
  6. Settar verði skýr­ari reglur um gjafir og önnur fríð­indi fyrir æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds, þar sem gert yrði ráð fyrir skýrum far­vegi fyrir til­kynn­ing­ar, birt­ingu upp­lýs­inga og við­eig­andi ráð­gjöf til að tryggja að tekið sé á öllum teg­undum fríð­inda með við­un­andi hætti.
  7. Settar verði reglur um störf æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds eftir að störfum fyrir hið opin­bera lýk­ur.
  8. Hags­muna­skrán­ing­ar­kerfi æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds verði bætt, sér í lagi með því að taka til­lit til verð­mætis eigna þeirra, fjár­hæðar fram­laga til þeirra og skuld­bind­inga. Þá verði athugað hvort efni séu til að víkka skrán­ing­ar­skyld­una og láta hana ná yfir maka og börn á for­ræði við­kom­andi, með til­liti til þess að slíkar upp­lýs­ingar þyrfti ekki endi­lega að birta opin­ber­lega.
  9. Trú­verð­ug­leiki hags­muna­skrán­ing­ar­kerfis fyrir æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds verði auk­inn, með því að leit­ast við að tryggja að farið verði eftir reglum með eft­ir­liti, við­eig­andi ráð­gjöf og fræðslu og með því að setja á fót við­ur­laga­kerfi þegar skrán­ing er ófull­nægj­andi.

Tillögur GRECO til úrbóta á sviði lög­gæslu

  1. Tryggja verði lög­reglu full­nægj­andi aðbúnað svo hún geti sinnt störfum sínum með skil­virkum hætti, sér í lagi til að fram­fylgja stefnu­mótun á sviði heil­inda.
  2. Siða­reglur lög­reglu og Land­helg­is­gæsl­unnar verði upp­færðar með til­liti til hags­muna­á­rekstra og þátt­töku í stjórn­mála­starf­semi, þeim fylgi leið­bein­ingar með skýr­ingum og raun­hæfum dæmum um öll svið spill­ingar og hægt verði að leita ráð­gjafar um þær í trún­aði. Þá verði til staðar eft­ir­lits­að­ili með fram­kvæmd siða­regln­anna og við­ur­laga­kerfi komið á fót.
  3. Unnið verði fræðslu­efni til að efla vit­und um heil­indi og siða­reglur meðal starfs­manna lög­reglu og Land­helg­is­gæslu (þar sem fjallað verði um hags­muna­á­rekstra og varnir gegn spill­ing­u). Tekið verði til­lit til eðlis starf­anna, fjöl­breytni þeirra og veik­leika.
  4. Hlut­verk hæfn­is­nefndar við skipun í störf lög­reglu­manna verði eflt og komið verði á fót heil­inda­mati í tengslum við stöðu­veit­ingar innan lög­regl­unn­ar. Þá verði það gert að meg­in­reglu að lausar stöður innan lög­regl­unnar verði aug­lýstar og skipað í þær á grund­velli gagn­sæs fer­ils.
  5. Skýr, sann­gjörn og gegnsæ við­mið liggi fyrir við ákvörðun um að end­ur­nýja ekki skip­un lög­reglu­manna og starfs­manna Land­helg­is­gæslu og að skýrt ferli sé til staðar til að kæra slíka ákvörð­un.
  6. Komið verði á fót öfl­ugu reglu­verki um gjafir til lög­reglu­manna og starfs­manna Lands­helg­is­gæsl­unnar og önnur fríð­indi.
  7. Athugun verði gerð á auka­störfum lög­reglu­manna og starfs­manna Land­helg­is­gæslu og störfum sem þeir taka að sér eftir að þeir ljúka störfum hjá hinu opin­bera. Í ljósi nið­ur­staðn­anna verði komið á fót strang­ara reglu­verki sem dragi úr líkum á hags­muna­á­rekstr­um.
  8. Komið verði á fót mið­lægri ein­ingu eða ákveðnum aðila innan stofna­na­upp­bygg­ingu lög­regl­unnar sem verði falið það hlut­verk að ann­ast innra eft­ir­lit og rann­sókn­ir, undir ábyrgð rík­is­lög­reglu­stjóra, en emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra á í fram­kvæmd að hafa skýrt leið­toga­hlut­verk þegar kemur að innri stefnu­málum lög­regl­unn­ar, þar á meðal í tengslum við heil­indi, áhættu­stjórnun og eft­ir­lit með lög­regl­unni. Þá þarf jafn­framt að end­ur­skoða valda­upp­bygg­ingu innan lög­regl­unnar til að tryggja skil­virka inn­leið­ingu stefnu­mót­unar án afskipta ráðu­neytis eða stjórn­mála.
  9. Settar verði skýrar reglur um vernd upp­ljóstr­ara hjá lög­reglu og Land­helg­is­gæslu til við­bótar til­kynn­ing­ar­skyldu sem er til staðar sam­kvæmt siða­reglum.

Í skýrslu GRECO segir að sam­tökin bjóði full­trúa Íslands innan sam­tak­anna upp á að skila inn frek­ari gögnum um eft­ir­fylgni til­lagn­anna fram til 30. apríl árið 2022 og boðar að þá verði aftur lagt mat á stöðu mála með hlið­sjón af þessum 18 til­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

greco

Mest lesið undanfarið ár