Fá leyfi til að leita gulls og annarra gersema í Vatnsdal

Orku­stofnun hefur gefið félag­inu Víðarr ehf. rann­sókn­ar­leyfi til leitar að gulli, kopar, blýi, silfri og öðrum málmum á svæði milli Vatns­dals og Svína­dals í Húna­byggð. Land­eig­endur voru ósáttir við áformin og breytti félagið í kjöl­farið leit­ar­svæð­inu.

Góðmálmar
Góð­málmar Geymir Vatns­dals­fjall gull í vinn­an­legu magni? Að því vill alþjóð­lega fyr­ir­tækið Víðarr ehf. kom­ast með rann­sóknum og hefur nú fengið leyfi Orku­stofn­unar til þeirra. Mynd: Wikipedia

Félagið Víðarr ehf. fékk nýverið leyfi Orku­stofn­unar til fimm ára til leitar og rann­sókna á málmum á svæði í og við Vatns­dals­fjall og Svína­dals­fjall í Húna­byggð. Við rann­sókn­irnar verður lögð áhersla á að leita gulls, kop­ars, sinks, blýs, silf­urs og ann­arra góð­málma. Aðstand­endur félags­ins, sem flestir eru útlend­ingar, segj­ast hafa langa reynslu af leit og vinnslu málma, meðal ann­ars á Græn­landi og í Ástralíu. Samkvæmt áætlun þeirra mun leit og rann­sóknir fela í sér jarð­fræði­kort­lagn­ingu, sýna­töku með hamri, jarð­eðl­is­fræði­legar rann­sóknir, grunn­rann­sóknir á umhverf­is­þáttum og kjarna­bor­anir. Það eru ekki síst síð­ast­nefndu aðferð­irnar sem vöktu spurn­ingar land­eig­enda og fag­stofn­ana sem gáfu umsagnir um leyf­is­um­sókn­ina. Bor­an­irnar munu fara fram með bor sem verður festur aftan á vöru­bíl eða flogið með þyrlu, að sögn fram­kvæmda­að­ila. Borað verður djúpt, en þó lík­lega ekki meira en 250 metra. „Í versta falli gæti þurft að koma upp tak­mörk­uðum aðgangs­brautum ef þær eru ekki þegar til staðar eða …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár