Andvígur grímuskyldu og vill „hjálpa“ öðrum

Jökull Gunnarsson, meðlimur í Coviðspyrnunni, dreifði þar ráðleggingum um hvernig væri best að ræða við lækni til að fá vottorð til að komast hjá grímu­skyldu. Hann er andvígur grímu­skyldu og segist vilja „hjálpa“ öðrum.

Gríma
Gríma Jökull Gunn­ars­son, með­limur Coviðspyrnunnar er á móti grímu­skyldu vegna Covid-19 Mynd: Shutterstock

Jökull Gunnarsson, meðlimur í Facebook hópnum Coviðspyrnan, hóp sem stofnaður var til að „skipuleggja viðspyrnu gegn öfga­fullum og skaðlegum aðgerðum yfirvalda gegn Covid,“ segir í samtali við Stundina að vottorðið sem hann útvegaði sér hjá lækni vera ósvikið.

Frá og með 18. nóvember urðu þeir sem hafa fengið Covid-19 og lokið einangrun undan­skyldir grímu­skyldu, svo fremi sem þeir geti sýnt fram á vottorð þess efnis. Á þetta við um hátt í fimm þúsund einstaklinga hér á landi, en Jökull er ekki einn af þeim, líkt og hann stað­festir í samtali við blaðamann.  Hann útvegaði sér engu að síður vottorð til þess að losna undan grímu­skyldu og veitti öðrum meðlimum hópsins leið­beiningar um hvernig þeir gætu gert slíkt hið sama. 

Hægt er að fá vottorð vegna heilsufars­ástæðna sem koma í veg fyrir að einstaklingur geti notað grímu. Á síðu hópsins ber Jökull fyrir sig að grímur valdi honum kvíða­köstum, innilokunar­kennd og öndunar­erfiðleikum. Aðspurður hvort það sé rétt að hann glími við slíkan kvíða svarar hann almennt og segir að grímur geti valdið heilsufars­tjóni eins og stressi, inni­lokunnar­kennd,öndunar­erfiðleikum, mígreni og öðru tjóni. „Þetta er staðfest af embætti lækna og kemur fram í rann­sóknum,“ segir Jökull, sem síðar lét í ljós að hann upplifði köfnunar­tilfinningu vegna grímu­notkunar.

Dapurlegt og siðlaust

Víðir Reynisson, yfir­lögreglu­þjónn almanna­varnar­deildar ríkis­lögreglu­stjóra, segir dapurlegt að fólk sýni hvert öðru ekki þá virðingu að bera grímur þar sem það á við. Það væri „siðlaust“ og „vanvirðing við samborgarana“ að beita blekkingum til að verða sér úti um vottorð til að komast hjá grímu­skyldu. 

Almanna­varnir og land­læknis­embættið hafa hamrað á því ítrekað og endur­tekið frá því að Covid-19 faraldurinn hófst að eina leiðin til að vinna bug á faraldrinum sé að þjóðin sýni samstöðu, fólk gæti persónulegra sóttvarna og sýni hverju örðu tillit og nærgætni. Víðir segir hegðun sem þessa þvert á þau tilmæli. „Ég verð að viðurkenna að mér finnst þessi afstaða mjög sérstök og skrýtin. Að þótt fólk sé ekki sátt við sótt­varnar­ráðstafanir sé það að leggjast svo lágt að ljúga að heilbrigðis­starfs­mönnum til að verða sér út um vottorð.“

„Allir geta fengið þetta“

„Ég hitti engan lækni, hringdi bara í heilsu­gæslu og bað um að tala við lækni út af vottorði. Sótti það samdægurs. Svo já, allir geta fengið þetta. Og þetta virkar. Búinn að fara á marga staði og prófa,“ skrifaði maðurinn í ummælum undir færslu sem hann setti inn í hópinn, mynd af læknis­vottorði sem undan­skilur hann grímu­skyldu. 

„Allir geta fengið þetta. Og þetta virkar“

Fleiri meðlimir hópsins sögðust ætla að gera slíkt hið sama í kjölfarið og fengu ráðleggingar varðandi hvað væri best að segja við lækni til að fá vottorð. Einn sagðist vonast til þess að hitta á góðan lækni og Jökull benti á að útlenskir læknar væru skilnings­ríkari. Annar stakk upp á því að þeir myndu síðan ganga saman grímu­lausir inn í verslun til að „sýna hinum hvernig lífið var „fyrir“ Covid.“

Á þræðinum greindi Jökull jafnframt frá því hvert hann gat farið án þess að bera grímu gegn vottorði. Sumar verslanir hafa bannað fólki inngöngu án grímu, óháð vottorði. 

Mótfallinn grímuskyldu

Jökull segist vera andvígur grímu­skyldu í núverandi mynd. „Grímu­skyldan er byggð á skoðunum WHO (World Health Organization), sem réði sem dæmi CDC (Centers for Disease Control and Prevention) til að rannsaka skilvirkni grímu­notkunar. CDC birti hinsvegar rannsókn þar sem fram kemur að jafnvel bestu grímur vernda ekki gegn Covid-19 eða öðrum flensum. Þar með eru þetta vísindi á móti skoðunum WHO, sem er einka­rekin stofnun. Þetta er aðeins ein af tugum rannsókna sem sýna hið sama. Ef fólk vill nota grímur og halda ranglega að það sé að bjarga lífum er það í lagi en að nota það sem hræðslu­áróður til að komi fólki í uppnám og valda varanlegum sálfræði­legum skaða á börnum okkar finnst mér það ekki í lagi.“

Rann­sóknin sem Jökull vitnar í er grein í útgefnu riti CDC, dagsett 5. maí 2020 þar sem farið er yfir mælingar á virkni aðferða sem ekki eru lyfja­fræðilegs eðlis á inflúensu faraldra. Þar kemur fram að samkvæmt þeirra rann­sóknum hafa einnota skurð­stofu grímur lítil áhrif á útbreiðslu inflúensu. Hins vegar virki fínagna­grímur best til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu, séu þær notaðar rétt og eftir leið­beiningum.

Í skýrslu frá CDC, dagsett 20. nóvember 2020, segir að gögn úr faralds­fræðilegum rann­sóknum styðji grímu­notkun almennings til varnar útbreiðslu gegn Covid-19 faraldrinum. Grímu­notkun geti þá hjálpað til að koma í veg fyrir útgöngu­bann, séu grímur notaðar samhliða hand­þvotti, loft­ræstingu og tilmælum um að almenningur haldi sig til hlés eða sem mest heima á meðan faraldrinum stendur.

Í umfjöllun Vísinda­vefsins um hvaða gagn grímur gera við Covid-19-smiti kemur fram að einfaldar grímur gegni þeim tilgangi að hremma dropa sem myndast við hóst og hnerra. Talið er að veiran berist einkum milli manna annað hvort beint með slíkum úðadropum eða óbeint um fleti sem fólk snertir. Grímur geti því dregið töluvert úr hættu á því að smitaður einstaklingur smiti aðra og virki sem vörn fyrir ósmitaða, þótt þær geti ekki varið fólk fyrir snertismiti.

Ósammála sóttvarnaraðgerðum 

Skýring­arnar sem Jökull gefur á því að hafa dreift ráðleggingum um hvernig best sé að komast hjá grímunoktun innan hópsins eru að hann hafi viljað upplýsa meðlimi hópsins um réttindi sín. „Ég setti þetta á lokaðan hóp fyrir fólk sem var mögulega ekki meðvitað um réttindi sín og vildi hjálpa þeim þar sem mjög fáir kynna sér „lögin“ um sótt­varnir,“ segir hann þá.

Í fyrstu grein laga um sótt­varnir segir að ráðherra sé heimilt að mæla fyrir um hvers konar ráðstafanir sem komið geta að gagni til að berjast við útbreiðslu farsótta innan lands, til eða frá landinu og til að berjast við útbreiðslu smits frá smituðum einstaklingum.

Jökull er hins vegar á móti aðgerðum stjórn­valda er varða Covid-19. „Já, ég er á móti þeim. Það hafa verið settar fram betri aðferðir frá sérfræðingum til að komast til móts við smithættu en allar þær hugmyndir eru hunsaðar. Bæði Covid greiningar­prófið og aðferðir stjórn­valda á heimsvísu eru undir lögsókn af meðal annars læknum og lögfræðingum þar sem aðgerðir stjórn­valda brjóta á réttindum fólksins og byggjast ekki á vísinda­legum stað­reyndum.“

Í nýlegri álitsgerð frá dr. Páli Hreins­syni, um vald­heimildir stjórn­valda til opinberra sóttvarna­ráðstafana, kemur fram að til þess að heilbrigðis­ráðherra geti sett reglu­gerðir um opinberar sóttvarna­ráðstafanir þurfi ráðherra að hafa fengið tillögur frá sóttvarna­lækni, sem lögum samkvæmt þurfa að byggja á læknis­fræðilegu mati.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár